Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2005, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2005, Page 32
32 MÁNUDAGUR2. MAÍ2005 Menning DV Ritfregn Gáruð vötn Mál og menning hefur gefið út í kilju skáldsöguna Gáruð vötn eftir Kerstin Ekman í þýðingu Höllu Sverrisdóttur og er það þriðja verkið eftir þess virtu sænsku skáldkonu sem birtist í ís- lenskri þýðingu. Gáruð vötn er fjölskrúðug og heili- andi saga, þar sem sögusviðið er Stokkhólmur og Osló, Vermaland og Feneyjar. Hún hef- ur hlotið mikið lof gagnrýnenda og lesenda um alla Evrópu. Kerstin Ekman er einn dáðasti og vinsælasti höfundur Norður- landa. Á íslensku hafa áður komið út eftir hana Atburðir við vatn, en fyrir hana hlaut Kerstin Ekman Bók- menntaverðlaun Norðurlanda- ráðs, heillandi og hörkuspenn- andi krimmi. Fyrsti hluú þess rómaða þríleiks sem nú heldur áfram í Gáruðu vatni, Miskunn- semi Guðs, kom út í fyrra. Um söguna segir útgefandi: „Seinni heimsstyrjöldin setur sinn svip á líf heimamanna í Svartvattnet í Norður-Svíþjóð. í þessari sögu er Myrten, dóttir Hil- levi Halvarsson orðin fullvaxta. Þegar hún heldur til Stokkhólms tekur hún með sér leyndarmál sem ekki einu sinni Kristín fóstur- sysúr hennar þekkir. Enn sem fyrr er Kristín, sem hefur átt afar erfitt í stríðinu, sú sem reynir að leita upp úr djúpi gleymskunnar og tengja gamla tíma og nýja. En minningamar sökkva hægt og hægt eins og steinar og það nýja lætur hærra en fuglasöngur og lækjarniður.'1 Bókin er 408 bls. og er leið- beinandi verð kr. 1.799. Sumarsýning opnuð njá Yzt í gær var opnuð sumarsýning í gallerí og listversluninni Yzt að Laugavegi 40. Þar er í boöi mikið úrval grafflcverka Sigrid Valtin- gojer sem nýlega sýndi í Ásmund- arsal við góðar undirtektir. Einnig er Tolli fastagestur á Laugavegin- um með olíuverk sín. Mireya Samper sýnir skúlptúr og verk unnin með blandaðri tækni, Elías B. Halldórsson er Uka með sínar Ijómandi ol- íumyndir, Páll á Húsa- Tolli er meðal þeirra sem selja verk sfn hjá Yzt felli sýnir meöal annars svellþrykk, Elísabet Olka olíu- myndir, Kristín Þorkelsdóttir vatnslita- myndir. Þá eru í boði sjaldgæfir gripir eftir Guðmund frá Miðdal: bæði olíu- og vatnslitamyndir, og einnig eftir hann og samstarfsfólk hans í Listvinahúsinu sem hann rak frá 1930-1960 er úrval leir- muna úr íslenskum leir. Hjá Yzt er opið kl 12-18 á virkum dögum og 12-17 á laugardögum í sumar. Norman Mailer selur handritasafn sitt Bandaríski rithöfúndurinn Norman Mailer sem orðinn er átta- tíu og tveggja ára hefur selt skjöl sfn og handrit úl Háskólans í Texas fyr- ir tvær og hálfa miljón dala. Skjala- safiúð tekur til 900 kassa af handrit- um, vélritum og um tíu þúsund bréf. Norman Mailer var áberandi í bandarísku menningarlífi frá unga aldri og var feyki afkastamikill: hann er þekktastur fyrir stríðssögu sína The Naked and the Dead og vann seinna Pulitzer fyrir lýsingu á átakamiklum tímmn sjötta ára- tugarins f The Armies of the Night. Meðal verka hans frá síðari hluta ferils hans má nefna The Ex- ecutioner’s Song og umdeilda ævi- sögu Marilyn Momoe. Sala á hand- ritasöfhum sem þessu tryggir há- skólanum forgang í rannsóknum á Mailer og höfundarverki hans. Mailer lýsú áhyggjum sínum yfir ástandi mála í Texas þegar tilkynnt var um gjöfina, en safnið við há- skólann er öflugt. Hann sagði ekki hafa dregið úr vilja sínum að selja safiúð þangað að á stríösárunum hefði hann hloúð þjálfún sína þar. Apótekarinn eftir Haydn og Goldoni var frumsýndur hjá Óperustudíó á föstudags- kvöld. Sigurður Þór Guðjónsson skemmti sér vel á sýningunni Þetta er í annað sinn sem íslenska óperan og Listaháskólinn bjóða upp á samvinnu um óp- eruflutning. Að þessu sinni var nemendum ýmissa tónlistarskóla í hljóðfæraleik, myndlist og hönnun boðið að vera með. Það var góð hug- mynd að flytja óperu efúr Jósef Haydn. Þær sjást sannarlega ekki oft á sviði óperuhús- anna og er reyndar ekki hlaupið að því að kynnast þeim eftir öðrum leiðum. Þetta verk er hefðbundin gamanópera og mjög eftir bókinni eins og komist var að orði í blaðaviðtali vegna sýningarinnar. En Haydn kann sannar- lega til verka, alveg frá forleiknum og til loka verksins. Per- sónurnar eru skýrar og aríumar og sam- söngvarnir bjóða upp á söng sem er ekkert barnameð- færi og hljómsveitarleikurinn lumar á ýmsum snjöllum uppátækjum. Húmorinn er smellinn og jafnvel frumlegur sem ekki kemur á óvart Þetta var mjög vel heppnuo sýning og sannar hve tónlistar- skólarnir okkar eru agaðir og metnaður þeirra mikill.___________ þegar Haydn er annars vegar. Gifúngaratriðið, sem er reyndar bara gabb með tveimur bókurum, er algjör snilld. Samsöng- ur elskendanna í síð- asta þætti er það líka og sömuleiðis tyrkjag- lens sönghópsins. í áðurnefndu blaðaviðtali kom fram að flytjendurnir voru strax settir í þann gír að setja upp óperusýn- ingu á prófessjónal hátt og engar afsakanir teknar gildar. Þetta gekk fullkomlega upp. Sýningin mátti ekki að- eins heita hnökralaus heldur var sviðfram- koman hreinlega örugg- ari á ýmsa lund en við eigum að venjast í ís- lenskum óperusýning- um. Leikur hljómsveitar- innar var einnig traustur og fallegur. Vel tókst að tryggja samfellu í þeim tveimur persónum sem deila söngvurum þó auð- vitað hefðu söngvaramir samt hver sinn tónlistar- lega og raddlega persónu- leika. Atriðin með söng- hópnum voru einstaklega fnskleg og skemmtileg. Einsöngvaramir stóðu sig allir með stakri prýði. Þeir vom glaðbeitúr, ákveðnir og músikalskir. Hörku lið. En vita- skuld vom þeir ekki ávallt fljúgandi mælskir í söngnum eins og eðlilegt Óperustúdíó íslensku óperunnar og Lista- háskóla íslands 2005. Gamanóperan Apótekarinn (Lo Speziaie) eftir Haydn, byggð á leikriti eftir Carlo Goldoni. Leik- stjóri: Ingólfur Niels Árnason. Söngvarar: Þorvaldur Þorvalds- son, Erlendur Elvarsson, Guð- björg Sandholt, Sólveig Samú- elsdóttir, Jóna Fanney Svavars- dóttir og Ólafía Línberg Jens- dóttir. Sönghópur og hljómsveit Óperustúdiósins. Stjórnandi: Kurt Kopecky. Islenska óperan 29. apríl. Ópera er með nemendur en þó var undra- vert hve langt þeir komust í þeim efnum. Ekki dró snjall og einfaldur sviðsbúnaður og hönnun úr áhrifum sýningarinnar. Þetta var mjög vel heppnuð sýning og sannar hve tón- listarskólamir okkar em agaðir og metnaður þeirra mikill. Við megum vænta mikils af íslensku óperunni í framtíðinni og íslenskri sönglist al- mennt með svona góðu fólki. Og fólk ætú ekki að láta þessa sýningu framhjá sér fara. SlgurBur Þór GuBjónsson Ofurhetjur myndasagna eru í sókn á hvíta tjaldinu. Myndasögurisinn Marvel ætlar nú að leggja í framleiðslu eigin kvikmynda. i mt, c Tilkynnt var í New York á fimmtudag að myndasöguveldið Marvel Enterprises ætíi að hefja ffamleiðslu á kvikmyndum byggð- um á einhverjum af þeim fimm- þúsund myndasöguhetjum sem fyrirtækið hefur skapað á sfnum langa ferli í myndasögubransanum. Til þessa hefur stórveldi mynda- sögublaða Bandaríkjanna látið duga að leigja söguhetjur sínar sjálfstæðum ffamleiðslufyrirtækj- um sem síðan hafa lagt í gerð kvik- mynda á borð við Spiderman. Merkjavara Vfst hefur Marvel grætt vel á áhættusömum stórmyndum, en gróðinn hefur verið stærri hjá ffam- leiðendum og dreifingarfyrirtækj- mn vestanhafs. Nú er mál að linni, sýnist þeim hjá Marvel. Þeir æúa nú sjálfir að græða á kvikmyndum og ekki síður á öllu því fylgidóú í merkjavöru og leikföngum sem nú orðið skapa jafnvel meiri hagnað en kvikmyndimar sjálfar. Marvel hefúr alla tíð verið New York-fyrirtæki. Þeir hafa nú gert samning við Paramount um gerð tíu mynda á næstu átta árum, en fýrirtækið fær aðeins dreifingar- þóknun, Marvel heldur efúr öllum leyfisrétti fyrir aukaffamleiðslu. Meðal þeirra sem brátt komast á hvíta tjaldið em hetjur á borð við Kaftein Ameríku, Nick Fury, Aven- gers-Iiðið, og Thor, það ljóshærða vöðvatröll. Samið við aðalmann Það auðveldaði þessa ákvörðun að Marvel gekk ffá málum sínum við teiknarann og höfúndinn Stan Lee sem gekk til liðs við Marvel 1939 og átti stóran þátt í velgengni fyrirtækisins. Lee hafði sótt mál gegn fyrirtækinu og heimtað hlut í væntanlegum hagnaði. Hann fær tíu milljónir dala í forgjöf. :\ i i \ i Það er Merrill Lynch Commercial Finance sem fjár- magnar þessa fjár- fesúngu með láni uppá rúmar 500 miljónir dala gegn veði í kvikmyndun- um. Áæúaður kostn- aður við hverja mynd er á bilinu 45 til 180 milljónir doll- ara. Enginn þeirra verður bönnuð börn- um sem ætú að auka markaðsmöguleika myndasögurisans verulega. Myndasögublað með Capta- in Marvel hinum yngri Mikill hagnaður Fordæmi fyrir samskiptum þeirra við risana ætm að vera hvetj - andi. Spider-Man og Spider-Man 2 sem Sony framleiddi drógu 1.6 i ! milljarð dala í kass- ann í heiminum. Þriðja mynd serí- unnar er væntanleg 2007. Tíu myndir byggðar á ýmsum hetjum fyrirtækis- ins eru þegar í undirbúningi, fyrir utan þær tíu sem Marvel æúar að framleiða á eigin spýtur. Marvel hefúr áður valdið styr á markaði. Fyrir- tækið var nærri gjaldþroti 1998. Fyrir- tækið er á markaði. Bréfin tóku stökk strax á fimmtudag og ef menn vilja fjárfesta þá eru bréfin núna seld á 9.52 dali. Hækk- uðu þann daginn 1,7%. Myndasög- urnar halda áfram að leggja undir sig hvít tjöld og skjái

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.