Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2005, Síða 15
DV Fréttir
FÖSTUDAGUR 13. MAÍ2005 15
Fjöldamorðinginn Georg W. Bush
Bandaríkjaforseti imprar á því
annan hvern dag í Qölmiðlum að
hann ætli að útrýma hryðjuverkum
í heiminum. Herra Bush er, eins og
allir vita, með plan dauðans - sem
hann kallar á móðurmáli sínu
„WAR ON TERROR" Með stríði á
hendur þeim er hryðjuverkin
Sylvía Dögg
Halldórsdóttir
er ekki sátt viö
stríösstefnu George
W.Bush.
Myndlistarneminn segir
ffemja ætíar hann líklegast að
ganga frá ölium þeim er eru hon-
um ósammála og þeirra íjölskyld-
um. Ef það hefur afleiðingar ætíar
hann örugglega að stúta þeim líka.
Þaxmig hefur hann haft það hingað
til. Hann spilar óður áfram í for-
setaleik sínum sem minnir óneit-
anlega á borðspilið Risk - um
heimsyfirráð. Ekkert fær hann
stoppað virðist vera. Hann myrðir
fólk í tonnatali á degi hverjum
óbeint í nafni friðar og heilagrar
Ameríku. Ekkert gerist. Nema auð-
vitað að fólk tapar mannslífum sín-
um í blóðbaði samtímans. Fólk
reynir að mótmæla í öllum mögu-
legum myndum. En það virðist
ekki breyta neinu.
Hundrað dóu f írak í gær og
tæplega hundrað í fyrradag og töl-
umar eru famar að hljóma óraun-
verulegar. „Operatíon Matador" er
enn ein kalda gusan framan í aum-
ingja frakana.
Ekki nóg með að í myndlíkingu
við spilið sem flestir þekkja er
nafngifitin niðrandi - heldur þýðir
orðið -MORÐINGINN- á spænsku.
Ótrúlegt. Ótrúlegt. Ótrúlegt! Og
maðurinn veður laus áffam. Fyrr-
verandi forsetafrú, fröken Barbara,
virðist hafa gleymt að kenna syni
sfnum að það er ekki hægt að leysa
ofbeldi með ofbeldi! Ofbeldi þarf
að yfirbuga með FRIÐI en bardag-
inn heldur áffam. Bandaríkjafor-
seti hefúr samt bætt ffiði inn í spil-
ið og hefur sagt í ræðum sínum
seinustu daga að ffiður muni vera
framtíð hverrar þjóðar! Sem og
vonandi verður þegar honum
hentar svo. Þvílík hræsni
ofan í hræsni. Stoppum
þennan geðsjúkling
áður en hann myrðir
fieiri menn, konur og
börn! Ég skora á ís-
lensk stjómvöld að
standa í hárinu á
þessari mannleysu,
sem augljóslega veit
ekki betur, og sýna
fordæmi!
í dag
Á þessum
degi árið 1981
skaut
tyrkneskur
tilræðismaður
á Páfa
Páfi skotinn
Á þessum degi árið 1981skaut
23 ára tyrkneskur námsmaður,
Mehmet Ali Agca, Jóhannes Pál
páfa II. Fjómm skotum var hleypt
af. Tvö hæfðu páfa, annað fór í
kviðinn og
hitt í vinstrti
hendi hans.
Sextug
bandarísk
kona og tutt-
ugu og
þriggja ára
________________ konafrá
Jamaíka urðu
einnig fyrir skotum. Tilræðið átti
sér stað skömmu fyrir vikuiegt
ávarp páfa á Péturstorgi. Páfi var
fluttur í snarhasti á Gemelli-
sjúkrahúsið þar sem hann var
skorinn upp og tók aðgerðin tæpa
sex tíma. Fjómm dögtun eftir til-
ræðið bauð páfi tilræðismannin-
um Agca fyrirgefrtingu.
Fjórum dögum fyrir tilræðið
kom Agca til Ítalíu. Hann hafði þá
nýlega flúið úr herfangelsi þar
sem hann sat fyrir morðið á Abdi
Ipekc, ritstjóra frjálslynds dag-
blaðs í Istanbul. í herfangelsinu
fundust bréf þar sem Agca viðrar
hugmyndir sínar um að ráða páfa
af dögum í fyrihugaðri heimsókn
hans til Tyrldands. Seinna vom
uppi hugmyndir um að búlgarska
leyniþjónustan tengdist tilræðinu.
Agca hafði þá látið í té nýjar upp-
lýsingar varðandi málið og var
réttað yfir þremur Búlgömm og
þremur Tyrkjum vegna þessa.
Réttarhöldin fóm út um þúfur
eftir að Agca, aðalvitnið í málinu,
lýsti því yfir að hann væri Jesús
Kristur endurfæddur og heims-
endir væri væntanlegur.
Jóhannes Páll páfi hitti Agca
árið 1983 og veitti honum fyrir-
gefningu sína. Páfi viðraði seinna
hugmyndir þess efnis að Agca yrði
náðaður. Það gekk svo eftir árið
2000 og var Agca framseldur til
Tyrklands þar sem hann afplánar
nú síðustu ár fangelsisvistar sem
hann fékk fyrir morðið á Abdi
Ipekc.
er komin í verslanir
íjallað um 63 ættir burkna, tvíkímblöðunga
og einkímblöðunga
íjallað um yíir 400 ættkvíslir og einkennum
þeirra lýst
fjallað um nokkuð á annað þúsund tegundir
garðblóma og auk þess fjölmörg afbrigði
þeirra, tilbrigði og sortir
eru um 800 litmyndir af garðblómum
í íslenskum görðum
er umfjöllun um langflestar tegundir,
afbrigði og sortir garðblóma sem reynd
hafa verið í íslenskum görðum og gefið
hafa góða raun.
Bókin er 480 bls. í stóru broti
og öll litprentuð.
Sannkölluð
blómaveisla!
Hamlhúk
urn fjölœrnr
skrmtjurtir
ogsumnrhlóm
m
SKRUDDA
Grundvallarrit fyrir
alla garðeigendur
og áhugafólk um ræktun.
Eyjarslóð 9*101 Reykjavík
s. 552 8866 • www.skrudda.is
í bókinni er m.a.