Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2005, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2005, Blaðsíða 39
DV Síðast en ekki síst FÖSTUDAGUR 13. MAÍ2005 39 A morgun Hæg breytileg átt Alíhvai 14-Allhvasst Hae, þlð þarna á Austurlandi. Færustu menn á sviði veðurfræða segja að hitinn hjá ykkur geti farið upp 18 stig í dag. Kannski það verði líka dálítið heitt fyrir norðan. Þið hin: Farið fvind- jakkana! * Allhvasst Hinn daginn éé ^ Strekkingur * * Allhvasst Fremur hægur vindur || * é Nokkur vindur Jokkur indur Nokkur vindur Kaupmannahöfn Oslo Stokkhólmur Helsinki London París Berlín Frankfurt Madríd Barcelona Kjallari Til hamingju Selma! Allar fyrrverandi Eurovison-stjörnurnar söfn- uðust saman fyrír utan útvarpshúsið með kerti og gítara og Eyvi spilaði Nínu með engan klút á hausnum. ljósið og þegar ég segi ljósið þá meina ég auðvitað Selmuna og snilldina í íslenskri popptónlist. Öskrandi ísland Við sögðum ekki orð þegar Selman söng lagið aftur og tók við bikarnum. Við vorum svo orðlaus- að sjá hann æstan, ég efast um að margir hafi upplifað það. Allar fyrrverandi Eurovison- stjörnurnar söfnuðust saman fyrir utan útvarpshúsið með kerti og gftara og Eyvi spilaði Nínu með engan klút á hausnum. Ég gleymdi að borða hneturnar mín- ar og var eins og límdur við sjón- varpið firam á nótt, það var ákveð- ið að halda Eurovision í Egilshöll vegna þess að ekkert annað hús er nógu stórt og samt er Egilshöllin eiginlega of lítil. Ekkert hús var nógu stórt fyrir okkur þessa nótt, svo stolt vorum við af sigrinum, svo stolt vorum við af Selmunni og að lokum brast ég í grát, lét mig falla í sófann og beit í koddann af sælu. Þegar ég settist fyrir framan sjónvarpið á laugardaginn í næstu viku fór um mig kunnuglegur hríslingur sem seinna um kvöldið átti eftir að breytast í hreinan trylling. Sambýlismaður minn var búinn að útbúa einn af sínum óviðjafnanlegu salats- og hnetu- bökkum. Það er ekkert sem gefur káh betra bragð en ristaðar (eða ofnbakaðar) hnetur og kókosflög- ur. Hann lagði bakkann varlega á borðið fyrir framan mig og hlammaði sér svo við hliðina á mér í sóftmn. „Ekki gúffa“, skipaði hann mér og kleip í eyrnarsnepil- inn. „Æ, þegiðu“, svaraði ég og gúffaði í mig ristuðum hnetum en lét salatið eiga sig. Balkanarsökka Við vorum ekkert að rífast vegna þess að við rffumst ekki á Eurovision-kvöldum, við höfðum hvort sem er engan tíma til þess því við höfðum um svo margt að ræða þegar keppnin fór af stað; hvernig er hægt að semja jafn leiðinleg lög og þeir gera þarna í Balkanlöndunum? Spánverjarnir og Grikkirnir hafa nú oft verið með slæm lög en það eru þjóðir sem hafa a.m.k. vit á því að senda fólk í keppnina sem hægt er að hafa nautn af að horfa á, það er nú það minnsta ef maður er hæfi- leikalaus... alls konar svona kjaftæði. Svo kom að Selmunni. Langþráð viðurkenning Sambýlismaður minn greip í olnbogann á mér, ég greip í hnéð á honum, Selman gekk á svið. Við önduðum ekki í fimm mínútur en við lifðum það af. Allt gekk upp! Það skríkti í okkur strákunum, dans! Söngur! Taktur!, Sveifla!, Grúv! Hvílík snilld, ég datt eigin- lega út og gleymdi að gúffa f mig hneturnar, rankaði ekki við mér fýrr en í atkvæðagreiðslunni og loksins, loksins! sá heimurinn ir að við höfðum hvorki vit á því að borða hnetur né klappa hvor öðrum eða káfa (og það er sjald- gæft að hommar verði svo orð- lausir). Gísli Marteinn og fleira fólk æsti sig í sjónvarpinu en ég gekk út á svalir og litaðist um í Kópa- voginum. Ekki neitt. Dauðaþögn. Svo, fyrirvaralaust, skall á mér öskurbylgja dauðans, ég kipptist við, þetta var eins og að fá blauta tusku í samkynhneigt andlitið. Kópavogurinn öskraði af gleði og ég veit að þeim leið alveg eins í Vestubænum, Breiðholtinu og Garðabæ vegna þess að alls staðar var skotið upp flugeldum (hvar geymir fólk flugelda og hvers vegna, ef við skyldum vinna í Eurovisioninu). Markús stamar Svo settu þeir á aukafréttatíma og Markús Örn var í viðtali og náði ekki andanum, það var merkilegt Þorsteinn Guðmundsson er hommi og verður vitni að fyrsta sigri Is- lands í Eurovision. Við sögðum ekki orð þegar Selman söng lagið aftur og tók við bikarnum. Við vorum svo orðlausir að við höfðum hvorki vit á því að borða hnetur né klappa hvor öðrum eða káfa. Jakob Bjarnar Grétarsson • Þeir em margir vonglaðir veiði- menn með heiftarlega veiðidellu sem ekki fengu úthlutað leyfum á hreindýr næstkomandi sumar og em því með böggum hildar. Pálmi Gests- son leikari er til dæmis einn þeirra og ekki sáttur, en hann fór á hreindýr í fyrra og hefur aldrei upplifað annað eins ævintýr líkt og lesa máttí um í DV. Blaðið getur hins vegar sagt af einum þjóðþekktum manni sem hlaut leyfi nú og hrósar happi: Guðlaugur Þór Þórðarsson alþingismaður. Mun þetta hafa komið Guðlaugi nokkuð á óvart því að sögn er þetta eina happadrættíð sem hann hefur unnið í... • Margir ráku upp stór augu þegar þykkur pakki - heilt rjóður - fylgdi Mogganum í gær, The Jökla Series eftír Ólaf Elíasson. Víst er að þeir sem ekki em þeim mun betur að sér í listínni hefur ekki þótt tiltakanlega mikið til loftmynda af Jökulsá á Brú að vetri koma nema þá í þeim skilningi hversu mikið var lagt í að birta þær. Ólafur hefur reyndar lengi verið áhugamaður um loftmyndir. Þannig segir sagan að hann hafi einhvern tíma fyrir nokkrum ámm keypt loftmynd hjá Landmælingum á Akranesi á um þrjátíu þúsund kall. Svo rambaði hann með hana á gallerí í einhverri stórborginni þar sem myndina rak á fjörur heims- borgarans Sigurjóns Sighvatssonar sem greiddi hátt í milljón fyrir myndina en Sigurjón er einmitt frá Akranesi... • Ein helsta frétt gærdagsins hlýtur að teljast sú í Fréttablaðinu sem er með fyrirsögninni, sem segir kannski allt sem segja þarf: „Stuðn- ingur við R-lista mestur útí á landi“... • Ýmsir dunda sér nú við það sér til skemmtunar að lesa sig í gegnum ræður Gunnars örlygssonar. Þar em ýmis gullkorn, skeytí sem Gunnar hefur sent „kvótaflokkunum" í gegnum tíðina og þeim sem þar em „líklegast við hvolpaleik og slefi undir þægilegum strokum bláu hand- arinnar." Hann fer mörgum orðum um sérgæsluna sem einkennir flokksmenn stjórnarflokkanna sem „styðja núverandi kvótakerfi. Til allrar lukku og guðs lofaða mildi er fólk farið að átta sig á mesta órétt- læti íslandssögunnar,“ segir ræðu- skörungurinn sem nú hefur líklega breytt um skoðun... • Einn kemur þá annar fer. í Aust- urglugganum er greint frá því að helsta von ungkrata á Austurlandi sé Hákon Seljan en hann fer nú mikinn sem smali fyrir össur Skarp- héðinsson eystra. Svo öflugur er Há- kon að Austurglugg- inn fullyrðir að ann- ar hver menntskæl- ingur á Héraði sé orðinn Samfylking- armaður. Hákon á vitanlega ekki langt að sækja eljuna en hann er barnabarn Helga Seljan eldri, fyrrverandi þingmanns og bindind- isfrömuðar og bróðir Helga Seljan yngri sem seint telst templari, en hann er nú aö slá í gegn sem út- varpsmaður á Talstöðinni...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.