Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2005, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2005, Síða 3
DV Fyrst og fremst FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ200S 3 t Vasklegir Trausti, Dybeck, Einar, Gunnlaugur og Andri fyrir aftan. Þeir voru í óðaönn að ganga frá hreinlætisverkfærunum, strákarnir hjá hreingerningaþjónustunni Þveglinum, þeir Trausti Einarsson, Dybeck, Einar Gunnlaugsson, Andri Jónsson og Gunnlaugur Þór Einarsson. Þegar DV greip þá glóðvolga niðri við Ingólfstorg í miðbæ Reykjavíkur sögðust þeir nýbúnir að standa í þrifum á íbúð í Bröttugötu í Grjótaþorpinu. Þeir sérhæfa sig í þrifum á íbúðum áður en flutt er inn í þær, hvort sem þær eru nýjar eða notaðar. Að sögn Einars er meira en nóg að gera og búið að vera allt brjálað frá áramótum. „Við þrifum sjö íbúðir í gær og erum búnir með fjórar í dag,“ sagði Einar. Skyndimyndin Spurning dagsins Ætlar þú í útilegu um helgina? Ekki þessa heldur næstu „Nei, ætla bara að vera heima þessa helgina. Ég er hins vegar að fara um næstu helgi í Norðurá. Ekkert stressaður hvort ég fæ lax eða ekki. Útiveran og félagsskapurinn erþað sem skiptir máli." Jón Hermannsson úrsmiður. „Nei. Er ekkert svo mikið fyrir að fara í útileg- ur. Fer þó stundum með fjölskyldunni." Birkir Sveins- son, rafvirkjanemi í Iðn- skólanum í Hafnarfirði. „Já.égerað fara á Þingvelli um heigina. Fer með vinkonum mínum og við ætlum að hafa það gaman og gott." Júlía Aradóttir, nemi í MR. „Nei, því mið- ur. Er mikið gefinn fyrir úti- legur en kemst ekki þessa helgina.Ætla hins vegar að vera virkur við það í sumar, dugiegur að fara áfjöll." John Snorri Sigurjónsson vélfræðingur. „Nei, ekki útilegu. Ég ætla í reið- túr. Er að fara að setja hross- in í haga að ingóifshvoii, austur í Ölfusi." Sigurjón Bláfeld, eftir- litsaðili í Aðfangaeftirlitinu. Sumarið er komið í öllu sínu veldi. Er þá loks þolanlegt að gera sér svefnstæði undirtjaldhimni undir berum himni. Myndi kallast útrás í dag „Líklega er myndin tekin á síðustu árum Inuk-hópsins, um 1977," segir Þórhallur Sigurðsson leikstjóri um Gömlu myndina. „Inuk-hópurinn var settur saman í Þjóð- leikhúsinu til þess að vinna leikverk fyrir ís- lenska skóla um eski- móamenninguna. Þetta var svona lítil dæmisaga með söngv um og dönsum og meira leikhúsfjöri. Síðan sáu ein- hverjir útlending- ar þetta og buðu okkur að koma út með verkið og þannig vatt þetta upp á sig. (dag myndi þetta líklegast kallast útrás. Við ferð- uðumst um alla Evrópu og til Suður- og Mið-Ameríku. Þegar upp var Það er staðreynd að samkvæmt tölfræði eru Ástr- alskar konur lík- legastar til að sofa hjá á fyrsta stefnumóti. staðið höfðum við farið til nítján landa og sýnt leikritið hátt í 300 sinnum. Við gátum þó ekki tekið nærri því öllum þoðum sem við fengum. Með mér f hópnum voru Brynja Bene- diktsdóttir, Kristbjörg Kjeld, Ketill Larsen og Helga E. Jónsdóttir. Við sýnd- um þetta í fimm ár, með hléum þó þar sem við vorum öll upptekin við annað, bæði að leika og leik- stýra. En þetta var skemmtilegur tími." Skítamórall Samkvæmt Orðabók um slangur getur orðið mórall þýttýmist líðan og hugarástand, ellegar samkomulag eða samlyndi. Þannig mun vera óhætt að leiða líkum að því að Málið forskeytið skíta- setji neikvæða merk- ingu í hugtakið. Sá sem er með skita- móral hlýtur þá að vera annaðhvort í slæmu hugarástandi, líða illa eða jafn- vel vera í slæmu samlyndi við samfé- lagið og sittnánasta umhverfi. ÞEIR ERU BRÆÐUR Fréttastjórinn & sendiráðunauturinn Sigtryggur Sigtryggsson, fréttastjóri á Morgunblaðinu, og Bjarni Sigtryggsson, sendiráðunautur fslands i New York, eru bræður. Þeir eru synir hjónanna Bryndis- ar Bjarnadóttur og Sigtryggs Þórhalls- sonar. Þeir ólust upp á Húsavik og er Sig- tryggur fæddur 14. febrúar árið 1950 og Bjarni er fæddur 12. febrúar árið 1946.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.