Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2005, Qupperneq 4
4 FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ2005
Fréttir UV
Gottfólk
Mikill styr hefur staöið um Færeyingana Jonnu Hervöru Vágseið og Jacob, mann
hennar, síöan þau komu hingaö til lands fyrir fimm árum. Þau stóðu í miklum
slag við barnaverndaryfirvöld og misstu forræðið í Hæstarétti. Fyrir skömmu var
fólkið sem þau sökuðu um misnotkun á börnum sínum sýknað í öllum liðum eftir
að hafa þegar setið inni í eitt ár.
greiðir
Auglýsingastofunni
Góðu fólki var í gær gert að
greiða tveimur fyrrum
starfsmönnum sínum,
þeim Sveini L. Jóhannssyni
og Hjörvari Harðarsyni
tæpar þrjár milljónir króna
í vangoldin laun, sam-
kvæmt dómi Héraðsdóms.
Sveinn og Hjörvar sögðu
upp störfum hjá Góðu fólki
í febrúar 2004. Gott fólk
sýtir að Landsíminn hafi
fært viðskipti sín til Nonna
og Manna en þar vinna þeir
Sveinn og Hjörvar nú. Gott
fólk fór fram á 134 milljóna
króna bætur frá þeim félög-
um, en fékk ekki.
Meðgöngu-
tími her-
mannaveiki
lengist
Samkvæmt gögnum
sem norskir læknar hafa
frá hollenskum kollegum
sínum getur meðgöngu-
tími hermannaveiki, ffá
smiti að sýkingu, verið
allt að tuttugu dagar. Til-
fellum fjölgar enn í Nor-
egi og í gær voru tveir
nýir skráðir inn á sjúkra-
húsið í Austurfold. Nú er
tala sýktra komin upp í
50 og ekkert lát virðist á.
Tala látinna er komin
upp í átta. Tveir liggja
þungt haldnir í öndun-
arvél.
Óörugg leik-
svæði
Leiksvæðum fyrir börn á
ísafirði verður lokað nema
úrbætur eigi sér stað, enda
standast þau ekki ákvæði
Evrópusambandsins um
styrkleika og öryggi. Þessu
greindi
Björns-
son, for-
stöðu-
maður
félags-
mið-
stöðv-
arinnar
á ísa-
firði,
ffá á
fundi
að hafa látiú hau Ijúga
um misnolkun
Dönsk kona og færeyskur fyrrverandi sambýlismaður hennar
voru fyrir skemmstu áindin saklaus í áfrýjunardðmstól í Færeyj-
um og þeim greiddar skaðabætur vegna dóms sem féll yfir þeim
fyrir fjórum árum. Þau sátu eitt ár í fangelsi fyrir meinta kynferð-
ismisnotkun á börnum konunnar en vitnisburður barnanna
skipti sköpum. í fyrra drógu þau hins vegar vitnisburðinn til
baka og sökuðu stjúpmóður sína, Jonnu Hervöru Vágseið, sem
býr í Garði á Reykjanesi, um að hafa með ofbeldi þvingað sig til
að ljúga upp á móður sína og stjúpföður.
„Þau eru ekki saklaus. Við erum
mjög óánægð með þessa niður-
stöðu. Við vorum ekkert að leika
okkur að því að koma hingað með
börnin," segir hin færeyska Jonna
Hervör Vágseið um sýknu móður-
innar og stjúpföðursins. Fyrir fimm
árum kom hún tii landsins með eig-
inmanni sínum ásamt sjö börnum,
sem þau eiga bæði saman og úr fyrri
samböndum. Þau komu sér fyrir í
kúlutjöldum og vöktu fljótt athygli
barnaverndarnefndar, sem svipti
þau forræði yfir börnunum og fann
þeim fósturheimili.
Klúður hjá löggunni
Móðirin og stjúpfaðirinn héldu
aiitaf fram sakleysi sínu. Þau eru fyrr-
um makar Jonnu og Jacobs en slitu
samvistum eftir fangavistina. Búist
var við því að höfðað yrði meinsæris-
mál á hendur Jonnu og Jacobi í kjöl-
far úrskurðarins en samkvæmt Dan
Klein, ritstjóra færeyska dagblaðsins
Oyggjatíðindi, sem hefúr fylgst með
málinu, gæti verið bið þar á: „Mjög
mikilvægu skjali var sleppt nú þegar
þau voru sýknuð. Skjal sem sýndi
áverka sem einn drengjanna var með
Samsæri Barnaverndarnefndar Jonna me
sonum smum tveimurog fjölskylduvini i stof-
unm i Garðinum á Reykjanesi. Hana grunar ad
samsæri sé um að ná yngstu sonunum af
henni, likt og hinum börnunum.
DV-mynd Stefán
á höfði. Það bíða allir í Færeyjum
spenntir eftir því að Jonna verði
ákærð en ég fæ engin svör þegar ég
spyr lögregluna. Ég held að þeir ætli
að láta málið niður falla út af klúðr-
inu með skjalið."
Alvarlega vanhæf
Jonna og Jacob búa nú í Garði
ásamt tveimur ungum sonum sín-
um, sem báðir eru fæddir á íslandi,
og elsta syni Jonnu. Fyrir einu og
hálfu ári synjaði Hæstiréttur þeim
um forræði fimm barna þeirra en
önnur tvö eru uppkomin. Þau voru
talin alvarlega vanhæf til að fara
með forsjá barnanna og ástæða til
að óttast um börnin, sem báru ein-
kenni vanrækslu og grunur lék á að
þau hefðu sætt líkamlegu ofbeldi.
Samkvæmt niðurstöðu sérfræðinga
tóku þau ffamförum í þroska og líð-
an þeirra batnaði hjá íslenskum
fósturfjölskyldum.
Beiti börnin ekki ofbeldi
„Ég hef aldrei beitt þessi böm of-
beldi," sagði Jonna í viðtali við DV í
fyrra. Hún og Jacob sögðu Lindu,
elstu dóttur Jacobs, vera með sam-
særi gegn sér, ásamt barnavemdar-
yfirvöldum á Reykjanesi, til þess að
ná af þeim drengjunum ungu, sem
þau hafa enn forræði yfir. Linda hef-
ur átt fósturheimili nokkrum húsum
fyrir neðan hjónin, sem hitta hin
bömin tvisvar á ári. „Linda hefúr
alltaf verið sjúklegur lygari," sagði
Jacob og bætti því við að eiginkona
hans væri fyrirmyndarmóðir sen
aldrei mundi leggja hendur á bön
sín né annarra.
Næsta skref segir Jonna vera ai
fara fyrir Mannréttindadómstó
Evrópu. „Við ædum að fá alla dóm;
til baka, bæði í Færeyjum og á ís
landi."
halldot@dv.i
iþrótta- og æskulýðsnefrid-
ar ísfjarðarbæjar í síðustu
viku. Nauðsynlegt mun vera
að endurbyggja svæðin frá
gnmni. Jón telur þó hklegt
að frestur fáist til þess að
kippa þessu í liðinn.
Draumur um elli
Svarthöfði er byrjaður að undir-
búa ellina. Eins og staðan er í dag er
nokkuð langt í hana, en hversu
marga hefur maður ekki séð eldast
of hratt án fullnægjandi undirbún-
ings? Nú er Svarthöfði ekki að tala
um viðbótarlífeyrissparnað heldur
það sem meira máli skipdr: Hvað á
maður að gera?
Fjöldi aldraðra virðast nota þetta
lífstíðarfrí sitt í að hanga heima og
gera ekki neitt. Ekki Svarthöfði.
Hann veit eins og er að þegar fólk
hættír skyndilega að vinna getur
margt gerst. Svarthöfði þekkir þetta
af eigin raun. Meira að segja sumar-
fríið verður honum ofviða. Hann
hættir að fúnkera.
Á dögunum átt-
aði Svarthöfði sig á
því að hann væri
hættur að kunna á
stýrikerfið í tölvunni sinni. Þetta er
bara byrjunin. Áður en hann veit af
er hann byrjaður að spyrja son sinn
ráða. Láta börnin kenna sér. Eins og
sumir aldraðir sem kunna ekki að
nota músarbendil á tölvu. Þvílík
synd, því hvað er betra í ellinni en
góð tölva?
Hvernig hefur þú það
„Ég hefþaö mjög gott/segir Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri K6pavogs.„Það er bjart
veður ídag og ég vona að þaö verðijafn bjartyfir Kópavogi I framtlðinni. Það ergott
að vera orðinn bæjarstjóri hér og mér finnst aö mér hafi verið tekið mjög vel. Ég er
bjartsýnn maður að eðlisfari svo að bæjarstjórastaríiö er engin undantekning. “
Bankaræningjar þekkja þetta.
Þeir rjúka beint út í búð og kaupa sér
Playstation leikjatölvu eftir ránið.
Sáttir við sitt og myndu glaðir hanga
í klefanum mánuðum
saman til að leika
sér í tölvunni. Fæst-
ir fullorðnir hafa vit
á að leika sér í
tölvuleikjum og segjast ekki hafa
tíma. En maður verður að vinna í
hag fyrir ellina og gefa sér tíma fyrir
slíka hlutí.
Tölvuiærður eldri borgari er
framtíðin. Þá geta aldraðir haldið
Playstationmót á elliheimilum. Enga
félagsvist, nú verður fjör. Þeir geta
skotið hverjir á aðra í skotíeikjum og
tekið heilu heimsmeistaramótín í
knattspyrnu. Allt sem þeir gleymdu
að gera í lífinu því þeir voru að safna
í lífeyrisspamað.
Ein hreinlíf vinkona Svarthöfða
sagði fyrir nokkru að þegar hún yrði
gömul myndi hún byrja að reykja
kannabis. Hún þorir því ekki núna.
Á svipaðan en löglegri hátt frestar
fólk því að slappa af og leika sér.
Vandinn er, að eftir áratuga erfiðis-
vinnu við að leggja inn á viðbótar-
og séreignarlífeyrissparnaðinn kann
fólk ekki lengur að leika sér.
Blekking bankabókarinnar er eitt
helsta vandamál kynslóðanna.
Svarthöfði