Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2005, Qupperneq 13
X»V Fréttir
FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ2005 11
Holl bjórböð
Ferðamenn í Austurríki
geta nú slappað af í góðu
bjórbaði á ferðamannastað
við Starkenberger
kastalann í Týról.
Boðið er upp á
laugar með tæp-
um 20 þúsund
lítrum af bjór.
Forsvarsmenn
staðarins segja
bjórinn lækna
ýmsa húðsjúkdóma. Sam-
kvæmt fréttum þykir sum-
um gestanna þó betra að
sötra bjórinn en synda í
honum.
Nakinn
sannleikur
Nokkrir filippeyskir
háskólanemar berhátt-
uðu sig íyrir utan for-
setahöll landsins á dög-
unum til að mótmæla
versnandi ástandi í
menntamálum. Mót-
mælendurnir, allt strák-
ar, fengu að leika lausum
hala í um korter áður en
lögreglan stuggaði þeim
í burtu. í yfirlýsingu
sögðu þeir að „berstríp-
aður sannleikurinn"
væri sá að ríkisstjórnin
liti ekki á menntun sem
grundvaUarrétt íbúa
landsins. Filippseyingar
voru leiðandi í mennta-
málum í Asíu á 8. ára-
tugnum. Vegna ónógra
fjárframlaga hefur
menntuninni hnignað.
Gamaldags
en fullgilt
Gamla góða flöskuskeyt
ið sannaði gildi sitt í vik-
unni þegar 84 skipbrots-
mönnum var bjargað af
eyðieyjunni Kókó und-
an strönd Kosta Ríka
eftir tíu daga úthald.
Lögregla í Perú hóf leit
að fólkinu eftir að skip
sökk, en talið var að það
væri að flytja ólöglega
innflytjendur tii Bandaríkj-
anna. Skipbrotsmennirnir,
48 Ekvadorbúar og 40 Perú
búar, gripu til þess ráðs að
senda hjálparbeiðni með
flöskuskeyti og var þeim
bjargað sólarhring síðar.
Arnold Schwarzenegger kynnti í vikunni metnaðarfulla áætlun yfirvalda í
Kaliforníu um niðurskurð á útblæstri gróðurhúsalofttegunda í fylkinu. Tilkynn-
ingin kom á alþjóðlegri loftslagsráðstefnu í fylkinu. Stefna hans er ekki í neinu
samræmi við stefnu ráðandi afla í Repúblíkanaflokknum.
Sökudólgar Stórar verksmiðjur
eru taldar eiga þó nokkra sök á
loftmengun á jarðkringlunni.
„Ef við byrjum ekki núna
strax verðum við ofsein."
Arnold Schwarzenegger, fylkisstjóri Kaliforníu, lýsti yfir stríði á
hendur gróðurhúsaáhrifum síðastliðinn miðvikudag, þegar
hann kynnti róttækar langtímaáætlanir um niðurskurð á út-
blæstri gróðurhúsalofttegunda í Kaliforníu.
roi
CALtFOF
ciiTie
Arnold Schwarzenegger Hasar-
myndaleikarinn fyrrverandi undir-
ritar lög til að stemma stigu við út-
blæstri gróðurhúsalofttegunda.
Gamla hasarhetjan Arnold Schw-
arzenegger notaði tækifærið þegar
hann setti heimsumhverfisráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna í San
Fransiskó, þar sem saman eru
komnir borgarstjórar stærstu og
þéttbýlustu borga heims, tii að
kynna áætlunina. Áætíunin virðist
ganga þvert á stefnu samflokks-
manna Schwarzeneggers í
Repúblíkanaflokknum sem nú ráða
ríkjum í höfuðborginni Washington,
og hafa neitað að staðfesta Kyoto-
bókunina, samþykkt þjóða heims
um niðurskurð í útblæstri gróður-
húsalofttegunda.
Vel fagnað
Samkvæmt áætíuninni stefha yf-
irvöld í Kaliforníu að því, að innan
fimm ára verði útblástur gróður-
húsalofttegunda orðinn jafn því sem
hann var árið 2000, og að árið 2050
verði útblásturinn 80 prósentum
minni en hann var árið 1990.
„Kalifornía mun áfram vera leið-
andi í baráttunni gegn gróðurhúsaá-
hrifunum og vemdun umhverfis
okkar," sagði Schwarzenegger, sem
stal senunni og var klappað lof í lófa.
Hann sagði markmiðin metnaðar-
fttíl og til þess gerð að vemda hinar
mörgu náttúruauðlindir, heilsu al-
mennings, landbúnað og fjölbreytt
landslagið í fylkinu.
Snúið roð í hund
Kyoto-sáttmáiinn var undirritað-
ur af Bandaríkjunum árið 1998 af A1
Gore, þáverandi varaforseta lands-
ins. Hann tók gildi í febrúar
síðastíiðnum, þegar Rússar ákváðu
loks að staðfesta sáttmálann. Hins
vegar hafa núverandi stjórnvöld
Bandaríkjanna verið eins og snúið
roð í hund gegn Kyoto-sáttmálanum
og George W. Bush, forseti Banda-
rikjanna, hefur neitað að undirrita
hann, en í staðinn lagt til frekari leit
að olíu og nýtingu hennar til iðnaðar.
Schwarzenegger er hins vegar á
öndverðum meiði. „Ef við byrjum
ekki núna strax verðum við of sein,“
sagði hann, þegar hann útskýrði að
hann vildi halda hreinu lofti, tærum
vötnum og tilkomumiklum fjöllum
eins og hann vandist við þar sem
hann ólst upp, í heimalandi sínu
Austurríki.
Heimild:AFP
Skoðaðu bílana í smáauglýsingum Fréttablaðsins og Morgunblaðsins.
Skoðaðu bílana á www.brimborg.is. Komdu í Brimborg Reykjavík, Akureyri.
brimborg
Öruggur stadur til að vera á
Brimborg Reykjavfk: Bíldshöfða 6, sími 515 7000 | Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 462 2700 | www.brimborg.is