Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2005, Page 39

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2005, Page 39
DV Síðast en ekki síst FÖSTUDAGUR 3. JÚNl2005 39 Nýja fræga fólkið Ofbeldismenn eru hinar nýju fjölmiölastjörnur og það er ferlega pirrandi íyrir lærðan leikara eins og mig sem hefur hingað til getað gengið út frá því vísu að fólk þekki mig, virði mig, kinki kolli til mín og dýrki mig. Laugardaginn síðastlið- inn var ég staddur á bensínstöð að kaupa tvist, ég gekk inn í stöðina í grænu úlpunni minni, með skrítnu gleraugun sem er ætíað að draga að sér fyrstu athygli og filt-hattinn. Mér sýndist afgreiðslumaðurinn snúa sér að mér og gefa mér horn- auga en var ekki viss vegna þess að ég þykist aldrei taka eftir því þegar fólk glápir á mig. Það er meira kúl þannig. Ég tók mér góðan tíma til að finna tvistinn en það er annar vani, ég gef fólki alltaf góðan tíma til að horfa á mig og rifja upp í hug- anum hvar það hefur séð mig og hvað er uppáhaldsatriðið þeirra með mér. Ég gekk að afgreiðslu- borðinu, brosti þolinmóður tii af- greiðsludrengsins og skellti tvistin- um á borðið. Hann leit upp og starði. En ekki á mig. Á manninn sem stóð við hliðina á mér. Nóbodí orðinn sombodí Ég var gáttaður. Ég hafði ekki lent í svona uppákomu frá því að ég lenti við hliðina á Gunnari Þórðar- syni við kjötborðið í Nóatúni. Ég sneri mér að manninum við hliðina á mér og ætlaði að fara að heilsa honum eins og við gerum sem erum fræg, en það var eitthvað innra með mér sem hélt aftur af mér. Köllum það kvenlegt innsæi. Þetta var ekki Egill Ólafs, ekki Ómar Ragnars, ekki Þórhallur miðill eða Emilíana Torrini, þetta var skollit- aður maður með venjulegt andlit. Þetta var fokking nóbodí. Ég virti hann fyrir mér. Hann horfði óstyrk- ur á móti, óvanur því að láta jafn- frægan mann og mig virða hann fyrir sér en ég gaf mig ekki. Ég horfði og horfði, beygði mig aftur á bak tíl þess að sjá vangasvipinn, reyndi að rifja upp eyrun á honum í von um að hann væri kannski fræg- ur tónlistarmaður, ég færði mig nær honum og lyktaði í von xnn að finna áfengislykt ef vera skyldi að hann væri myndlistarmaður en ég kveikti engan veginn. Ég vissi ekkert hver þetta var. Ekki fýrr en ég sneri mér aftur að afgreiðslumanninum og kom auga á forsíðu DV í bakgrunni. Þar var stór mynd af manninum við hliðina á mér. Hann var þekktur ofbeldismaður. Fokk. Ég vissi ekkert hver þetta var. Ekki fyrr en ég sneri mér aftur að afgreiðslumanninum og kom auga á for- síðu DV i bakgrunni. Fáránlega kurteis Ég panikeraði í nokkrar sekúnd- ur og sagði brandara frá 1995. Það tók enginn eftir því. Skyndilega var það ég sem var nóbodí. Mér varð svo mikið um þetta að ég bakkaði frá borðinu, hneigði mig og sagði: „Eins gott að muna eftír flögunum." Svo drullaði ég mér bak við hillu og þóttist velja mér kartöfluflögur á meðan ég fylgdist með fræga of- beldismanninum borga fyrir bens- ínið sitt. Fólk hefur spurt mig: „Hvernig er hann, er hann al- mennilegur“ og ég verð að svara því: „Já, hann er mjög næs og kurt- eis.“ Hann bað um poka en hann bauðst líka til að borga fyrir hann. Hann bauð góðan daginn og hann þakkaði fyrir sig og brosti um leið. Hann var í gráum frakka og í íþróttaskóm frá Puma eins og mér skilst að allir frægir ofbeldismenn séu í núna. Hann kinkaði meira að segja til mín kolli á leiðinni út og blikkaði mig. Ég var of feiminn til að blikka til baka, fór bara hjá mér og flissaði og fiktaði við flögumar með fingmnum, alveg eins og smá- píka. Ég hef heldur hitt svona fræg- an ofbeldismann áður. Ég þekki svona lið En ég var fljótur að jafna mig vegna þess að ég hef tekið í spað- ann á Ólafi Ragnari, fundið ilminn af Dorrit og við Maggi Ólafs emm góðir vinir. Ég kalla ekki allt ömmu mína þegar kemur að frægu fólki. Ég hrifsaði til mín Þykkvabæjarskíf- ur og stmnsaði að búðarborðinu. Afgreiðslumaðurinn hélt áfram að horfa á eftir fræga ofbeldismannin- um eins og hann væri guð almátt- ugur. Ofbeldismaðurinn steig upp í bíl og ók varlega burt. „Hann er voðalega kurteis," stundi af- greiðsludrengurinn upp. „Já, já, ég er með flögur," svaraði ég hrana- lega eins og ég nennti ekki að tala um þennan ofbeldismann enda- laust. Þegar afgreiðslufíflið sneri sér loksins að mér notaði ég tækifærið og sagði annan brandara (frá 1998), mjög góðan og viðeigandi en allt kom fyrir ekki. Ég fékk enga athygli. Ég spurði hvort þau ættu föstu- dags-DV (af því að ég skrifa alltaf kjallara á föstudögum), en það var ekki til. Ég tók nokkrar eftirhermur af sjálfum mér úr Fóstbræðrum en enginn kannaðist við það. Ég var ekki að gera mig þessu bensín- stöðvarpakki. Á leiðinni út hrinti ég niður nokkrum Mars-súkkulöðum á ofbeldisfullan hátt. Afgreiðslufá- bjáninn kallaði tíl mín: „Þetta er allt í lagi, ég tíni þetta upp á eftir.“ Þeg- ar ég settist upp í bílinn minn, hugsaði ég með mér, að það væri löngu kominn tími til að tala hrana- lega við konuna mína og krakka. Það er eina leiðin til að fá einhverja athygli í þessu landi. . 03/ Gola Helgin lofar góðu. Nú er tíml tjaldferðanna runninn upp og ekki amalegt að stökkva af stað strax í fyrstu viku júnl. Blíðviðri verður á sjómannadaginn. Ekki amalegt fyrir sjómennina að koma af millidekkinu og upp á land með sólina yfir sér. Þetta gerir líka tunnuhlaupið og koddaslaginn bærilegri. G^- 0h/ XmmJ „ Gola «fí2> 03 40 Gola ^ Jakob Bjarnar Grétarsson • Þórunn Hrefna Siguijónsdóttir situr nú við og ritar ævi- sögu Margrétar Frí- mannsdóttur al- þingismanns. Þór- unn Hrefria hefur áður ritað ævisögu Ruthar Reginalds og Guðmundar Sesars sem þekktur er fyrir baráttu sína gegn handrukkurum. Því er óhætt að segja að Þórunn sérhæfi sig í sérstöku fólki en hún er ein- hver mestí spekingur í Megasi sem um getur og hefur meira að segja haldið um hann sérstök námskeið. Hvar svo á að staðsetja stjórnmála- skörunginn Margréti í þessu litrófi er spurning... • Þóra Amórsdóttir var einhver öflugasti talsmaður og frétta- maður á RÚV í öllu er laut að réttinda- baráttu kvenna og fjallaði gjarnan um það hugðareftti sitt til dæmis í Speglinum. Hún hefur flutt þá arfleifð með sér upp á Háls en hún starfar nú á fréttastofu Stöðvar tvö. í frétt um að engin hót- elstarfsemi yrði á Bifröst á næsta ári tókst henni með ótrúlegum hættí að flétta inn í fréttina setningu um að launamunur milli kvenna og karla væri alltof mikill... • DVhefur greint frá því að Markús örn Antonsson sé að öllum líkindum á leið í sendiherra- stól í Kanada. Sjá þá margir í Valhöll lag á að greiða leið fyrir vonarstjarna flokksins í borgarmálum, Gísla Marteini Baldurssyni, með því að skáka Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni í útv- arpsstjórastólinn. Fáir sjá hnökra á þessari samsæriskenningu utan þeir sem hugsa til Þorsteins Páls- sonar sem er á leið heim úr sendiherrastólnum í Kaup- mannahöfn. Þeir gætu nefnilega vel séð Þorstein fyrir sér í Efsta- leitinu en talað hefur verið um að Mogginn sé búinn að læsa í hann klónum... • Næsta Mannlíf Reynis Traustasonar er væntanlegt seint í næstu viku og þar verður birt ítarlegt viðtal við Styrmi Gunnarsson. Mim Reynir lofa opinskáu viðtali við þennan dularfulla rit- stjóra Moggans sem sjaldan hefur gefið kost á viðtölum og ræðir Styrmir meðal annars um einkahagi sína... • Ummæli Finns Ingólfssonar forstjóra VÍS um Egil Helgason í Kastíjósinu hneyksla flesta. Finnur sagði að fyrir mörgum, mörgum ámm hefði Egill sem blaðamað- ur átt við sig viðtal en þá hafi andlegt og líkamlegt atgervi Egils verið með þeim hætti að Finnur setti hann út af sakramentinu. Ljóst er að Egill hefur ekki mikinn húmor fyrir þessu því á athugsemdakerfi vefs hans kom ffarn spurning til Egils um þetta atriði. Þá þegar var búið að undirbúa næsta pistil með fyrirsögninni einni „Róna- líf' án þess að texti fylgdi með. Sá næsti á kerfinu spurði hvort menn mættu eiga von á útskýringum í þeim pistíi? Þetta skítakomment hefur nú verið fjarlægt. Seinna kom í ljós að pistill Egils „Rónalíf' Ijallar um rón- ana í miðborginni... % * %

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.