Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2005, Síða 6
6 FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ2005
Fréttir DV
Halldór
vanhæfur?
Ríkisendurskoðandi
kannar nú hvort Halldór
Ásgrímsson forsætísráð-
herra hafi verið vanhæfur
tíl að taka ákvarðanir um
sölu ríkisbankanna vegna
eigna- og venslatengsla við
félögin sem keyptu Búnað-
arbankann. Eftir fund fjár-
laganefndar á miðvikudag
stóðu uppi spurningar um
hæfi Hedldórs og því ákvað
Ríkisendurskoðun að rann-
saka aftur hæfi Halldórs.
Málið fær flýtímeðferð og
niðurstöðu er að vænta um
eða eftír helgi.
Landsliðs-
þjálfari yfir
afreksbraut
Sigurðtir
Ingimundarson,
landsliðsþjálfari
karla í körfu-
knattleik, hefur
verið ráðinn
umsjónarmaður
afreksbrautar
Fjölbrautaskóla
Suðumesja sem
tekur til starfa næsta
haust. Námið er sam-
starfsverkefni íþrótta-
akademíunnar og Fjöl-
brautaskóla Suðumesja
og er nýtt af nálinni. Þar
er ungu fólki gefið ein-
stakt tækifæri til að
stunda íþróttir af kappi
undir handleiðslu fær-
ustu þjálfara meðfram
góðu og traustu námi í
skólanum.
ErHannes
Hólmsteinn
saklaus?
Kolbrún Bergþórsdóttir
blaöamaður.
„Ég sé ekki að Hannes hafi
brotið stórlega afsér. Hann
hefði átt að gæta betur að sér
I að geta heimilda, en hann
framdi engan glæp. Ég hefði
orðið ósátt efhann hefði verið
dæmdur. Menn gengu alltof
hart fram gegn honum, ég
stend með Hannesi."
Hann segir / Hún segir
„Ég veit það ekki, hefheyrt
margt um þetta mál, en hef
ekki lesið málsgögn og þar á
meðal ekki þá bók sem um er
að ræða. Þaö er til ákaflega
mikið afbókum sem ég hef
ekki lesið og langar að lesa.
Ég er viss um að ég á eftir að
hafa meira gaman afþví að
lesa mjög margar þeirra en
þessa bók Hannesar Hólm-
steins Gissurarsonar.“
Möröur Árnason
þingmaður.
42 ára málari, Heimir Sigurðsson, var í gær dæmdur í átján mánaða fangelsi í
Héraðsdómi Reykjavíkur. Hann stakk vítisengilinn Jón Trausta Lúthersson í
brjóstið. Heimir var sýknaður af ákæru fyrir manndráp en fundinn sekur um
hættulega líkamsárás.
fyrir að stinna vítisennil
Eins og áður hefur komið fram hér í DV var árásin afleiðing mik-
illa deilna sem staðið höfðu á milli Heimis og fyrrverandi konu
hans, Rutar Unnarsdóttur. Voru deilurnar komnar á það stig að
Rut var farin að leita til Jóns Trausta Lútherssonar í von um
vernd fyrir Heimi og ágangi hans.
Rut og Jón Trausti vom saman
kvöldið sem árásin átti sér stað. Þau
höfðu farið á myndbandaleigu og
leigt sér tvær gamanmyndir. Þegar
þau komu heim til Rutar stóð Heim-
ir í innkeyrslunni, skammt frá
bflnum sínum.
Jón Traustí lagði
bflnum sem hann
og Rut vom á
beint aftan við
bfl Heimis
þannig
hann var
„blokkerað-
ur“, eins og
Heimir orð-
aði það í
héraðs-
dómi.
Jón
Traustí stökk út úr bflnum, klæddi
sig úr jakka og vestí sem bar áletrun-
ina „Fafiier MC“ og bjóst til að jafna
um manninn sem hafði staðið í hót-
unum við vinkonu hans.
Stunginn
„Hefur þú ekki gert
nóg?" öskraði Jón
Traustí og gekk að
Heimi, sem um
leið hörfaði, tók
nokkur skref aftur á bak. Jón Traustí
ýtti þá við Heimi sem hrökklaðist
aftur á bak. Skyndilega svaraði
Heimir. Hann þreif upp stærðarinn-
ar hníf sem hann geymdi í jakka sín-
um og lagði til Jóns Trausta. Sjálfur
segist Jón Trausti ekki hafa séð hníf-
inn en skyndilega orðið var við blóð
sem lak niður líkama hans. Hann
hljóp þá að bflnum þar sem Rut
beið. Hann settíst inn og ætlaði að
keyra burt en gat það ekki. Rut tók
þá við og kom þeim á brott. Sjúkra-
bfll mættí bfl þeirra og kom Jóni
Trausta til hjálpar.
Sýknaður af manndrápsákæru
Heimir Sigurðsson var ákærður
fyrir manndráp vegna þessa en var
„Hefur þú eíád
gert nóg?"
sýknaður í héraðsdómi í gær. Hann
var þó fundinn sekur um hættulega
Líkamsárás og fékk 18 mánaða fang-
elsisdóm að launum. Sýkna Heimis
af manndrápsákærunni er tilkomin
vegna þess að fjölskipaður dómur
komst að þeirri niðurstöðu að fram-
koma Jóns Trausta yrði ekki skýrð á
annan veg en að hann hefði ætíað
sér að jafna um Heimi. Því sé ekki
sannað að Heimir hafi ætlað að ráða
Jóni Trausta bana. Heimi er einnig
gert að greiða Jóni Trausta sex
hundruð þúsund krónur í skaða- og
miskabætur. andri@dv.is
Heimir Sigurðsson Sykn
aður en fær I8mánuði.
JónTrausti Lútherson Var ílífshættu
eftir hnífstungu Heimis.
Antonio og Kristín í Yrsufelli óttast að verða send á stofnun
Mæðginin neita að mæta
á fund hjá Félagsbústöðum
„Nú eru þeir að boða okkur á
fund," segir Antonio Passero, sonur
Kristínar Guðríðar Hjaltadóttur í
Yrsufelli 7. Mæðginin sitja enn sem
fastast í Yrsufellinu, þrátt fyrir að all-
ir nágrannar þeirra hafi skrifað und-
ir áskorun til Félagsbústaða um að
vísa þeim á dyr í fimmta skiptíð.
„Við eigum að mæta til félagsráð-
gjafa í Mjódd á þriðjudaginn. Nú
kenna Félagsbústaðir okkur um allt
vegna þeirra mála sem hafa komið
upp í stígaganginum. Við ætlum ekki
að mæta. Við lentum í því seinast að
þau reyndu að plata okkur á stofn-
im," segir Antonio, sem kveðst reiðu-
búinn að fara á götuna þegar í stað
verði þess óskað. Hann og móðir
hans eyði hvort eð er öllum dögum á
götunni.
Snemma í gærmorgun voru
Yrsufellsmæðginin komin á biðstöð
strætísvagna við Lækjartorg, en þau
dvelja ýmist þar, á Hlemmi eða
vappa um miðborgina. Antonio var
með bakpoka og vel fór á með þeim
þar sem þau gæddu sér á pylsu. Svo
virtist sem þær áhyggjur sem hafa
legið á herðum þeirra síðustu vikur
væru víðsfjarri. jontrausti@dv.is
Fjórir starfsmenn
féllu við Sunnuhlíð
Fjórir starfsmenn féllu á gang-
stétt við Sunnuhlíð, hjúkrunar-
heimili aldraðra í Kópavogi, í nóv-
ember árið 2000. Þetta kom fram í
aðalmálsmeðferð, sem fram fór í
gær, í máli sem Ólafía S. Grímsdótt-
ir höfðaði gegn sínum gamla vinnu-
stað. Samkvæmt Ólafi'u féll hún,
með þeim afleiðingum að hún fékk
mikinn verk í annan fótínn, sem
hefur ágerst og er hún óvinnufær í
dag. Yfirmenn Sunnuhlíðar sögðu
innganginn sem Ólafi'a, og þrír aðrir
starfsmenn, féllu við vera vöruinn-
gang og að þeir sem gengju þar um
gerðu slíkt á eigin ábyrgð.