Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2005, Blaðsíða 19
DV Sport
FÖSTUDAGUR 10. JÚNl2005 19
JSF
Eiður Smári Guðjohnsen er á góðri leið með að verða markahæsti landsliðsmaður Islands
frá upphafl. Með því að skora sex mörk í síðustu sjö landsleikjum er Eiður Smári kominn
með 15 mörk og hefur komið sér upp í 2. sætið á listanum. Eiður fór nú síðast upp fyrir
föður sinn Arnór Guðjohnsen og Ríkharð Daðason sem báðir hafa skorað 14 A-landsliðs-
mörk. Landsliðsfýrirliðinn hefur skorað 13 af mörkunum sínum 15 í „alvöru" landsleikj-
um en hann hefur átt þátt í 24 mörkum í þeim 28 leikjum sem hann hefur spilað í und-
ankeppni heimsmeistarakeppni eða Evrópumóts.
Það hefur verið hægt að
treysta því að Eiður Smári
Guðjohnsen komist á blað þegar
að hann mætir í Laugardalinn en
hann skoraði í fyrrakvöld í
fimmta landsleik sínum í röð í
Dalnum. Því afreki hefur enginn
landsliðsmaður náð síðan fsland
lék sinn fyrsta landsleik á Laugar-
dalsvelli fyrir 48 árum.
Kahn hélt síðastur hreinu
Það eru liðin tæp tvö ár síðan
Eiður Smári mætti í landsleik
hingað heim án þess að komast á
blað en það var Oliver Kahn,
markvörður þýska landsliðsins
sem síðast hélt hreinu gegn okkar
manni í markalausu jafntefli
þjóðanna 6. september 2003.
Eiður Smári slapp reyndar einn í
gegn í leiknum en Kahn sá við
;.V; honum.
wB Síðan þá hefur fsland leikið
fimm heimaleiki, gegn ítölum.
Búlgörum og Svíum í fyrra og svo
gegn Ungverjum og Möltubúum í
þessarri viku og alltaf hefur Eiði
Smára, þrátt fyrir mjög stranga
gæslu, tekist að skora.
Það var frábært að fylgjast
með landsliðsfyrirliðanum í leikj-
unum gegn Möltu og Ungverja-
landi. Þrátt fyrir langt og strangt
tímabil mætti Eiður Smári með
hárrétt hugarfar í þessa leiki,
leiddi liðið innan sem utan vallar
og gerði hvem fslending sem á
horfði afar stoltan. Eiður Smári
sýndi okkur einu sinni sem oftar
að þessi litla 300 þúsund manna
eyja norður í Atlantshafinu á einn
af bestu knattspyrnumönnum
Evrópu.
Eiður Smári Guðjohnsen hef-
ur fundið sig eins og áður sagði
sérstaklega vel í Laugardalnum á
ferli sínum með landsliðinu.
Eiður skoraði til dæmis sitt fyrsta
A-landsliðsmark aðeins 15
mínútum eftir að hann kom inn á
í sínum fyrsta leik á Þjóðarleik-
vanginum. Markið skoraðí Eiður
Smári með skalla í 3-0 sigri á And-
orra 4. september 1999. Síðan þá
hefur Eiður Smári leikið 19 lands-
leiki á Laugardalsvellinum og
skorað f þeim 10 mörk. Eiður
Smári á 17 landsleiki að baki á
öðmm leikvöngum en mörk hans
í þeim em „aðeins“ fimm.
Góð ákvörðun
Það er ekki hægt að segja ann-
að en sú ákvörðun landsliðsþjálf-
aranna Ásgeirs Sigurvinssonar og
Loga Ólafssonar að gera Eið
Smára að fyrirhða íslenska lands-
liðsins hafi gengið upp, hvað
varðar frammistöðu Eiðs Smára
að minnsta kosti. Eiður Smári
hefur nú leitt íslenska landsliðið
14 sinnum út á völlinn og skorað
átta mörk í þessum leikjum.
ooj@dv.is
■h
§e|
Eiður Smári (
skoraðlOmörkíf
leikjum sem hann i
Laugardalsvellinum.
Mörk Eiðs Smára í L
1. maridfl
Gegn Andorra 4. sept. 1999
-90.mfn.- Skoraöimeöí
skalla rétt utan markteigs í
fyrirgjöf Bjarna Guöjónssonar.
2. markiö
GegnMöltu 2.jún(2001
-68.mln.- Skoraöime
viðstööulausu skotl af r
eftlr sendingu Rúnars Kristlr
3. markifl
Gegn Andorra 21. ágúst 2002
-19. mfn. - Skoraði af stuttu faeri
úr markteignum eftir fyrlrgjöf
Arnars Þórs Viöarssonar.
4. marklö
Gegn Litháen 16. okt. 2002
- 61. mín. - Fékk stungusendingu
frá Brynjari Birni Gunnarssyni og
skoraði af mikilli yfirvegun.
5. marklö
Gegn Litháen 16. október 2002
-74.mfn.~ Fékk boltann utan
teigs eftir langa sendingu
Hermanns Hreiðarssonar, lék á
nokkra varnarmenn ög skoraði
með frábæru vinstri fótar skotl.
6. markið
Gegn ftalíu 18. ágúst2004
-17. mfn. - Fylgdi vel eftir skoti ||H
Gylfa Einarssonar úr marktelgnum
eftir að Gianluigi Buffon hafði varið.
7. marklö
Gegn Búlgaríu 4. sept. 2004
- 50. mfn. - Skoraði af öryggi úr
vitaspyrnu sem dæmd var þegar
Þórður Guðjónsson var felldur.
8. martdö
Gegn Svlþjóð 13.okt.2004
-66. mfn.- Skoraði með glæsllegu
skoti af 30 metra færi eftir samleik
við Heiðar Helguson.
9. markiö
Gegn Ungverjalandi 4. júní 2005
-18. mfn. - Skoraði með hnitmið-
uðu skoti úr telgnum eftir að Gylfi
Einarsson hafði unniðtækllngu.
10. markið
Gegn Möltu 8. júnl 2005
- 34. mfn. - Afgreiddi boltann
viðstöðulaust úr teignum eftir
fallegt einnar sendingar spil og
sendingu Gunnars Heiðars
Þorvaldssónar.
gn Svium með frábæru skoti afum 30 metra færi.
•íar hafa fengiö á sig I síðustu fjórum leikjum sínum I
tfma. DV-mynd Vilhelm
4 lelkir f röð Eiður Smári er réttur maður á réttum stað í teignum eftir að Gylfi Einarsson
vinnur tæklingu og boltinn dettur fyrir fætur fyririiðans. E'iður Smári er fljótur aðáttasigog
skorar með hnitmiðuðu skoti i bláhorniö. DV-mynd Stefán
5 leikir f röö Eiður Smári afgreiðir boltann I mark Möltu, gjörsamlega
óverjandi fyrir markvörð gestanna. Eiður setur um leiö endapunktinn á
frábæra einnar snertingar sókn islenska liðsins. DV-mynd Stefán
Æfingaleikir hjá undir 19 ára landsliðinu í knattspyrnu
Jafntefli við Svía í Sandgerði
íslenska liðið lék bet-
ur í leiknum og hefði
átt að ná sigri.
íslenska landsliðið, skipað
leikmönnuxn 19 ára og yngri,
lék öðru sinni vináttulands-
leik gegn sænska U19-liðinu í
gær, ísland vann fyrri leikinn
2-0 þar sem fyrirliðinn Theo-
dór Elmar Bjamason skoraði
bæði mörkin. Leikið var í
Sandgerði í gær og þegar upp
var staðið skildu liðin jöfh
með 2-2 jafntefli.
íslenska liðið lék betur í leikn-
um og hefði átt að ná sigri. Matthí-
as Vilhjálmsson skoraði eina mark
fyrri hálfleiks með góðu skoti eftir
flottan undirbúning Heiðars Geirs
Júlíussonar.
í síðari hálfleik virtist ísland
ætla að halda áfiram á sömu sigl-
ingu og fékk vítaspymu þegar
sænski markvörðurinn braut á
Matthíasi. Heiðar Geir fór á punkt-
inn en markvörðurinn bætti upp
brotið og varði spyrnuna.
Pétur jafnaði leikinn
Eftir þetta datt leikur íslenska
liðsins niður í nokkum tíma, vöm-
in klikkaði í tvö skipti og í bæði
skiptin náðu gestimir að skora og
tóku þannig forystuna. Pétur Mar
Pétursson náði þó að jafiia fyrir ís-
land eftir frábæra aukaspymu
Kristjáns Ara Halldórssonar, sem
var hættulegur eftir að hann kom
inn á. ísland fékk síðan færi til aö
tryggja sér sigurinn en það tókst
ekki og jafiitefli var niðurstaðan.
„Við spiluðum vel í dag en feng-
um á okkur tvö mjög ódýr mörk,
við áttum miklu meira í leiknum og
vorum bara óheppnir að klára ekki
leikinn í upphafi síðari hálfleiks.
Þrátt fyrir frekar lítinn undirbúning
gekk spilið ágætlega," sagði Pétur
öm Gíslason, leikmaður Hauka og
U19-landsliðsins, eftir leik.
elvar@dv.is
Bestur Theódór Elmar Bjarnason lék vel meö
fslenska 19 ára landsliöinu ileikjunum tveimur.
gegn Svíum. DV-mynd Pjetur