Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2005, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ2005
Sport DV
Sigurður Jónsson, þjálfari Víkings, gefur lítið fyrir ásakanir Vilhjálms Vilhjálmssonar um að hann sé
erfiður í mannlegur samskiptum og segir að Vilhjálmur eigi að líta í eigin barm.
jbne
nie
Framdi agabrot og raðaöi i sig
hamborgurum og trönskum
Hamborgara-vllli vunjaim
Vilhjálmsson gat ekki agao Si
mataræöinu og var gripinn
meö ruslfæöi eftir leik þegar
| hann átti aö vera I aðhaldi.
í samtali við DV Sport í gær, sagði Vilhjálmur Vilhjálmsson, fyrr-
um leikmaður VQdngs, að sér þætti hart að vera boðið að fara frá
liðinu, eftir að hafa gengið illa að koma sér í form eftir meiðsli og
sagði Sigurð ekki góðan í mannlegum samskiptum. Sigurður er
hissa á þessum ásökunum og bendir á, að það sé Vilhjálmur sem
eigi í vandamálum með mannleg samskipti. Vilhjálmur ekki
orðið við áralöngum kröfum hans um að koma sér í sómasam-
legt form til að vera boðlegur með hðinu.
„Eftir að Vilhjálmur var ekki í
nógu góðu formi í fyrra, samkvæmt
þeim kröfum sem ég set, áttum við
fund þegar hann skrifaði undir nýj-
an samning við okkur fyrir þetta
tímabil, þar sem við
ákváðum
að bæta upp það sem miður fór í
fyrra og reyna að læra af því í ár. Vil-
hjálmur fer svo í fitumælingu, sem
ég tek þátt í að fjármagna sjálfur í
haust og þá var hann of þungur,
þannig að við komum honum að hjá
einkaþjálfara til að reyna að vinna
bót á því. Hann var alveg sammála
mér með að hann hefði ekki verið í
nægiiega góðu formi í
fyrra og úr varð
að hann ætíaði
sér að missa
um tíu k£ló
fram að ára-
mótum. Þegar
hann á
svo
„Svo er hann grípinn í
sjoppunni eftir le.
með tvöfaldan ham■
borgaraog franskar"
að vera búinn að missa þessi tíu kíló
þegar við byijum að æfa í janúar,
kemur í ijós að h'tið sem ekkert hefur
gerst hjá honum og hann er enn of
þungur," sagði Sigurður.
Mikið fyrir hamborgara
Ég hef verið að fitumæla þessa
stráka og margir þeirra hafa náð
ágætum árangri, en Villi stóð bara í
stað og það uppfyllir ekki mínar
kröfur. Þar að auki hefur hann kom-
ið sér í klandur með því að fremja
agabrot sem ég hef ekki verið sáttur
við. Hann var til að mynda að sleppa
því að mæta á æfingar undir það síð-
asta án þess að láta nokkum mann
vita. Hann spilaði síðasta æfinga-
leikinn fyrir mót með okkur, þá var
hann eitthvað meiddur og dugði því
ekki nema í 60-70 mínútur, en svo er
hann gripinn í sjoppunni eftir leik
með tvöfaldan hamborgara og
franskar," sagði Sigurður, en
Vilhjálmur virðist vera mik-
ið fyrir hamborgara, því samkvæmt
heimildum DV Sports mætti hann á
leik Víkings og Vfkings Ólafsvíkur í
lok síðasta mánaðar með
hamborgara, franskar og stóran
shake frá McDonald’s og hann rað-
aði þessu í sig fyrir framan
stuðningsmenn liðsins, sem voru
furðu lostnir á framkomu leik-
mannsins, sem þeim skildist að væri
í ströngu aðhaldi.
Sigurður sár
„Það eru margir í kring um mig
hálf hissa á því hvað ég var lengi þol-
inmóður við Vilhjálm. Það er nú
bara þannig að hann er góður strák-
ur og hefur þetta mikia hæfileika og
spyrnugetu sem finnst hvergi ann-
arsstaðar, þannig að það er alveg
sorglegt að horfa upp á hvað hann er
að sóa hæfileikum sínum svona. Það
er ekki hollt fyrir menn að fá enda-
laus tækifæri og því varð bara að
grípa inn í. Hann varð uppvís að
slæmum agabrotum þegar við vor-
um úti á Spáni og mætti svo ekki á
tvær æfingar um daginn, þrátt fyrir
að hafa lofað að taka sig á.
Ég er ekki fyrsti þjálfarinn sem
lendir í þessu, því hann hefur verið í
þessum vandræðum annars staðar.
Hann þarf að taka í gegn hjá sér
mataræðið ef hann ætíar að ná ár-
angri í þessu og hann er greinilega
ekki tilbúinn til að gera það fyrir
mig.
Ég skil svosem að hann segi að ég
sé erfiður í samskiptum, því það er
ég sem set vinnureglumar og ef
hann getur ekki farið eftir þeim, er
eðlilegt að ég verði honum erfiður í
mannlegum samskiptum," sagði
Sigurður um ásakanir Vilhjálms.
„Ég er mjög sár út í ViÚa eins og
fleiri héma hjá
félaginu, því
við vorum
búnir að
reikna
með því
að hann
yrði lykil-
maður
hjá okkur
í sumar,
sagði Sig
urður að
lokum.
baldur@dv.is
Sumarhappdrætti
\i 1
V I
150
skattfrjálsir vinningar
að verðmæti
18.795.000 kr.
Glæsilegir
1 Honda CR-V ES
Verömæti 2.995.000 kr.
1 Bifreið eða greiðsla
upp í íbúð
Verðmæti 1.000.000 kr.
148 Úttekt hjá ferðaskrifstofu
eða verslun
Hver að verðmæti 100.000 kr.
Upplýsingar um vinningsnúmer í
símum 5401918 (símsvari) og
5401900 og á vefsíðunni
krabbameinsfelagid.is/happ
Dregið 17. júní 2005