Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2005, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2005, Qupperneq 32
32 FÖSTUDAGUR 70. JÚNÍ2005 Menning XXV Listahátíð í Reykjavík er nú formlega lokið. Þórunn Sigurð- ardóttir, stjórnandi hátíðarinnar, er harla kát. Þessi fyrsta hátíð sem haldin er á ári oddatölunnar kostaði rúmar 250 milljónir og var myndlistin í öndvegi. Næst er það tónlistin. A íslenskum skóm Ljóð Sjálfur Halldór Laxness leggur til Ijóð í DV dagsins. Vaka-Helga- fell hefur nýverið gefið út kvæða- safnið „Dáið er alt án drauma og fleiri kvæði" en frá unglingsaldri orti Laxness kvæöi af ýmsu tagi: Angurvær og skrýtin. í bókinni eru mörg þekktustu kvæði Hall- dórs, þrjátíu og fimm að tölu, og er þeim raðað upp í tímaröð. Þannig er elsta kvæðið og það fýrsta ort 1918, þegar skáldið er aðeins 16 ára. Kvæðið Á íslenskum skóm, sem hér birtist, er númer tvö í röðinni og ef til viíl lýsandi fyrir það sem koma skyldi þegar Halldór var annars vegar: Skáldið um heim- inn allan á íslenskum skóm. Þá í óeiginlegri merkingu því Halldór var fagurkeri þegar skór voru annars vegar lflct og á öðrum sviðum. Þannig að hann var ekki á sauðskinnsskóm þar sem hann fór. Birt með góðfúslegu leyfi út- gefanda. Mynd Halldór Laxness Kvæðið fyrirneðan er kannski fyrir- boðiþess sem koma skyldkSkdld ið um heim- inn á Islensk■ um skám. Á íslenskum skóm Égætla að ta/a við kónginn í Kina ogkanski við páfann í Róm. Oghvortsem það veröur tilfalls eða frægðar þá fer 6g á íslenskum skóm. „Engan fagurgala? Það er ekki hægt. Þetta tókst svo vel. Ég veit ekki hvað ég á að segja annað," segir Þórunn Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Listahátíðar í Reykjavík, sem nú var að ljúka. Þónmn segir að þetta sé fyrsta hátíðin sem haldin er á oddatölu. Hingað til hefur hátíðin verið haldin annað hvert ár. Annað sem nýtt er varðandi Listahátíðina er, að aldrei fyrr hefur myndhstin verið í öndvegi og verða flestar þær sýningar sem settar voru upp í tengslum við hátíð- ina opnar áfram í sumar. „Heildarniðurstaðan er mjög góð,“ segir Þórunn. „Feikilega góðar viðtökur og góðir dómar, samanber dóm Sigurðar Þórs í DV um Anne Sofie von Otter söngkonuna sænsku. Hátíðin kostar rúmar 250 milljónir Aðspurð um kostnaðartölur segir Þórunn fyrirliggjandi nákvæma áætlun fyrir allt árið og allt bendi til þess að sú áætlun standist. „Við erum með allt aðrar tekjur af svona hátíð. Myndlistin gefur okkur engar tekjur - hún er þess eðlis. Þannig að ekki koma miklar tekjur á móti í aðgangseyri. Þannig að við vorum búin að safna fyrir þeim þætti. En árið kostar um 120 milljónir og erum við þá að tala um hátíðina, rekstur og undirbúning fyrir næsta ár. Við erum með svipað hlutfall fjármagns frá samstarfs- og styrktaraðilum og verið hefur. En fyrir utan þessar 120 milljónir sem fara í gegnum okkar hendur, er mikið fjármagn í verkefnunum hjá stofnunum sem við vinnum með. Verðgildi hátíðarinnar er þannig miklu meira og örugglega má margfalda þessa tölu með tveim- ur.“ Því er fyrirliggjandi að hátíðin hefur kostað rúmlega 250 milljónir. Að auki segir Þórunn koma mildð af erlendu fjármagni inn í þetta og heildarveltan því enn meiri. Anne Sofie stendur uppúr Aðsóknin var mjög góð að sögn Þórunnar og hún nefnir sem dæmi, að bara fyrstu þrjár vikurnar sem Listahátíð stóð yfir höfðu átta þús- und manns komið á Listasafn Reykjavíkur á Dieter-sýninguna þar. „Sem er mjög fi'nt. Svo höfum við fengið gríðarlega mikla umfjöliun erlendis og í fyrsta skipti sem svo er. Hingað komu fjölmargir útlendingar sem skrifuðu í sína fjölmiðla ekkert smáræði um það sem hér er að ger- ast." Þórunn kemst ekki hjá því að svara spurningunni um hvaða at- riði stendur upp úr að hennar mati og henni vefst tunga um tönn. Vill ekki gera upp á milli barnanna sinna. En nefnir svo með semingi Anne Sofie von Otter. „Hún var stórkostleg." Hleypur ekki á eftir stóru nöfnunum Undirbúningur næstu hátíðar er hafinn og þamæstu háfiðar reyndar einnig. Þó segir Þórunn of snemmt að tíunda það sem verður í deigl- unni að ári. „En þá verður mikil músfk. Miklu meiri en verið hefur á undangengn- um hátíðum. Ég er nú að leggja drög að allskyns stórum samstarfsverk- efnum og er að fara út um helgina í þeim erindagjörðum." Stefna Listahátíðar í Reykjavík er sú að byggja ekki á „stórum nöfn- um“ heldur almennilegum verkefn- um eins og Þórunn orðar það. „Það er aðalverkefiiið núna að finna sam- starfsgrundvöll með erlendum og innlendum aðilum. Ég er ekki mikið að keppa á því sviði að hlaupa á eft- ir stórum nöfnum. Það yrði bara katalóg-hátíð sem felst í að pikka út einhver flott nöfn. Frekar að stuðla að einhverju sem skiptir íslenskt listah'f máli til lengri tírna." Tóta & listakonurnar Jákvæð mismunun? Starfsmenn Listahátlð■ ar eru eingöngu konur. Þær eru ánægðar með hvernig til tókst að þessu sinni. Þórunn er lengst til vinstri. DV-mynd Heiða Leikarinn Friðrik Friðriksson semur dansa ásamt kærustunni sinni Álfrúnu Örnólfs- dóttur. Óvenjulegt áhugamál, sé til þess litið að karl- menn hafa lítt látið til sín taka á þeim vettvangi og eru í miklum minnihluta. Friðrik Friðriksson fæst við það, ásamt kærustu sinni Álfrúnu örn- ólfsdóttur, að semja dansa. í gær- kvöldi var sýnt dansverk eftir þau á mikilh danssýningu og/eða dans- keppni í Borgarleikhúsinu og bar yf- irskriftina 25 tímar. Þegar þetta er ritað er ekki vitað hvort þau höfðu sigrað, en verk þeirra „9.50 aha virka morgna" atti kappi við átta önnur verk. Miðað við þann einlæga áhuga sem Friðrik hefur á danslistinni þá kæmi það ekki á óvart. Svo virðist sem leikarar hafi brennandi áhuga á danshstinni enda eiga verk í keppn- inni þau Hahdóra Geirharðsdóttir, Ingvar E. Sigurðsson, Guðlaug Ehsa- bet Ólafsdóttir og Margrét Vil- hjálmsdóttir, svo einhverjir séu nefndir. í miklum kynningartexta sem Borgarleikhúsið sendi frá sér vegna keppninnar kemur fram að Friðrik sé menntaður leikari en sjálfrnennt- aður dansari. Hann starfar aðahega við leikhst, en dreymir um að verða atvinnudansari. í því samtah við Friðrik sem fylgir má ljóst vera að það er ekkert grín. Er þetta gamall draumur? „Jahh, já, það má segja það. Það var ekki tíl Listdansskóh, eða ég var ekki búinn að uppgötva þann mögu- leika, þannig að ég fór í Leiklistar- skólann. Sé það núna að ég hefði miklu frekar vUjað vera í dansskóla." Ómenntaður á sviði dansins? „Já, það er ég. En ég er mjög góð- ur á dansgólfinu ef er gott partí og góð tónlist. Það myndi enginn kaha mig ómenntaðan þar.“ Má heita ofdirfska af þér að semja dansverk? „Jú, en það verða bara ekki tU neinir stórkostlegir hlutir á sviði list- BORGARLEIKHUSIÐ Leikfélag Reykjavíkur • Listabraut 3, 103 Reykjavík NÝJA SVIÐ/UTLA SVID/ÞRIÐJA HÆDIN KALLI A ÞAKINU e. Astrid Lindgren I somstarfi við Á þakinu Su 12/6 kl 14 UPPS, Su 12/6 kl 17 UPPS, Lau 18/6 kl 14, Su 19/6 kl 14 - UPPS, Su 26/6 kl 14, Lau 9/7 kl 14, Su 10/7 kl 14, Su 17/7 kl 14, Su 24/7 kl 14 Börn 12 ára og yngri fá frítt í Borgarleikhúsið f fylgd fullorðinna - gildir ekki á barnasýningar Miðasölusími 568 8000 midasalaiðborgarleikhus.is Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is Miðasalan i Borgarleikhúsinu er opin: 10-18 mánudaga og þriðjudaga, 10-20 miðviku-, fimmtu- og föstudaga 12-20 laugardaga og sunnudag STÓRA SVIÐ 99% UNKNOWN - Sirkussýning CIRKUS CIRKÖR frá SVlÞJÓÐ Þri 14/6 kl 20, Mi 15/6 kl 20, Fi 16/6 kl 20, Fö 17/6 kl 20 Aðeins þessar sýningar NÝJA Sm/UTIA SVIÐ/ÞRIÐJA HÆÐIN ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR Einleikur Eddu Björgvinsdóttur. I kvöld kl 20 - UPPS„ Uu 11/6 kl 20, Þri 14/6 kl 20, H 16/6 kl 20, Lau 18/6 kl 20, Su 19/6 kl 20 Slðustu sýningar Biðin eftir bestu bitunum of löng Nýverið skemmti franski sirkus- inn Cirque áhorfendum, stómrn og smáum, í stóru tjaldi á hafnarbakk- anum í Reykjavlk. Að fara í sirkus er alveg sérstök tilfinning. Að sitja í hringnmn umhverfis trúða og loft- fimleikamenn er alveg sérstök til- finning. Fuhorðið fólk þyrpist í hrönnum með skýfalhð á hælun- um, eftirvæntingarfuhar ömmur og spenntir afar. Barnabömin rétt svo hafa við þessu æsta sirkusfólki. Þegar inn kemur og allir búnir að koma sér fyrir, flugvéladrunur, um- ferðargnýr og annar hávaði að utan farinn að venjast í eynun sem ein- hvers konar tilheyrandi hljóðmynd ,gengur ung glæsileg stúlka í fjaðra- pilsi á lfnu, hátt fyrir ofan höfuð hinna eftirvæntingarfúhu barna. Jafnvægisskyn hennar er gott, hún gengur á línu hðug og fer í sphtt uppi í loftinu. Hverjir voru Antonio og Ausgusto? Síðan hefjast heldur langdregn- ar frásagnir af einhverjum trúði sagan af Antonio og Augusto er sögð á ensku af frönskumælandi leikurum. Frásögnin nær einhvem veginn ekki til áhorfenda enda aUt of mikið talað mál, miðað við að þetta sé sirkus. Bamabörnin ókyrr- ast, khður fer um salinn, afar verða að túlka og rétt við tjaldopið hrýtur faðir, enda situr hann skammt frá gífurlegum rafmagnsofni. Hér vom á ferðinni flinkir listamenn sem hefðu notið sín betur í sal með bærilegri nánd við fuUorðið fólk. Þegar annar trúðurinn lék sér með tepparúUu á bakinu og festi frakkann sinn í snúru sem hékk ofan úr loftinu, hló ungviðið og afar „Mörgum var brugð- ið, margir hlógu, þetta varsirkus. Þeir sem tóku saman sitt pikk og pakk og flýttu sér heim, löngu áður en trúðurinn flögraði út í himininn, misstu afbesta atriðinu." hneggjuðu svolítið þótt þeir virtust fremst vera með hugann viö hvað væri í matinn. Hópurinn sem samanstóð af tveimur fimum stúlkum, einum of- urhðugum leikara og einum tón- hstarmanni, var samstiUtur. Tóna- flóðinu á ásláttarhljóðfæri vel stýrt, en aUt of langar heUur af tah sem skapaði ókyrrð og skilningsleysi. Þeir sem stjómuðu innkaupum á þessum sirkusi hafa líklega ekki verið með réttan markhóp í huga, því biöin í hvert sinn eftir því skemmtílega var svo löng.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.