Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2005, Síða 33
Menning DV
sköpunar nema með ofdirfsku. Það
er bara svoleiðis."
Verðui þú var við það hjá hinum
hámenntuðu dansstelpunum að
þærlíti þighomauga?
„Nei, reyndar eru svo fáir karl-
dansarar í dansinum að ég held að
frekar sé verið að bíða eftir mér.
Frekar að strákarnir, þessir örfáu,
líti mig hornauga. Þeir finna ógnina
og það er kominn skjálfti í þá.
Stelpurnar vantar alltaf einhvern til
að lyfta sér upp og snúa í hringi."
En eru þetta ekki eintómir
hommar sem leggja fyrir sig dans?
„Jú, það verður reyndar að segj-
ast eins og er að þeir eru fleiri þar
en gengur og gerist. Það eru jafn-
margir hommar í dansinum og
lessur f kvennafótboltanum. Held
ég. Sem er bara jákvætt."
Má þá kannski leiða að þvílíkur
að þú, með þessu áhugamáli, sért
að rækta konuna ísjálfum þér?
„Nei, alls ekki. Ég held að sannir
karlmenn gráti, dansi og tjái tilfinn-
ingar sínar. Það er ekkert karlmann-
legra en tjá tilfinningar sínar, gang-
ast við þeim og jafiivel bera á torg ef
svo ber undir. Dansa á torgum."
Hvernig er að semja dans með
kæmsturmi?
„Svona í fullri hreinskilni semur
hún meira en ég. Ég er meira á hlið-
arlínunni við að semja dansinn,
enda hún lærðari í faginu en ég. Ég
legg til góð ráð. Svo prófum við
sporin sem samin eru.“
Er ekki gaman saman heima í
dansinum?
„Jú, svo sannarlega. Við erum
með gott pláss heima tii að hreifa
okkur og tökum oft sporið þar.
Verst kannski fyrir nágrannana. En
þeir kvarta ekki enn.“
Við hvers konar tónlist dansið
þið helst?
„Við hvað sem finnst. Ég get
dansað við allan andskotann. Ef við
kunnum ekki dansinn búum við
hann til. Við getum hreyft okkur við
allt sarnan."
Erþá ekki tangóinn ekki málið?
„Reyndar erum við að velta því
fyrir okkur að fara að sækja dans-
námskeið hjá tangóparinu góða,
Hany Hadaya og Bryndísi Halldórs-
dóttur. Það er næst á dagskrá."
Fuglafit með kroppnum
Mörg þeirra atriða sem fram
voru reidd voru smart, eins og til
dæmis þegar kona og maður léku
fuglafit með líkömum sínum og
stórri snúru. Annar trúðurinn, leik-
inn af konu, svífur upp í gífurlegri
rólu sem líkist báti. Hvert bam
fylgdist með og enginn svaf, hún
brunaði og brunaði fram og aftur
yfir höfðum áhorfenda um leið og
styttist alltaf í róluböndunum þar til
hún var alveg komin upp í rjáfur,
simmsalabims, á örskotsstundu
hvarf hún upp um toppinn á tjald-
inu. Mörgum var brugðið, margir
hlógu, þetta var- sirkus. Þeir sem
tóku saman sitt pikk og pakk og
flýttu sér heim, löngu áður en trúð-
urinn flögraði út í himininn, misstu
af besta atriðinu. í því lá veikleiki
sýningarinnar, að það þurfti að bíða
svo lengi eftir því sem maður býst
við að fá fram borið í sirkusi. Sagan
um Augusto, eða Gústa trúð, byggir
á sögu eftir Henry Miller. í Qölritaðri
dagskrá sem öllum er afhent við
innganginn, er fullorðna fólkinu
bent á að lesa örlagasögu Gústa
trúðs fyrir börnin áður en sýning
hefst. Til þess gefst náttúrlega eng-
inn tími því það tekur dálitla stund
að lesa þrjár vélritaðar síöur fyrir
börn einkum og sér í lagi í myrkri.
Elísabet Brekkan
stjupmömmo og
fjögur stjúpböro
Hvarbúa
b