Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2005, Síða 8
8 MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST2005
Fréttir DV
Hvað liggur á?
„Næst á dagskrá hjá mér er að fara aftur ískólann en hann fer að byrja nú á næstunni. Ég er á
viðskiptabraut í Fjölbrautaskóla Suðurnesja og ætla mér að klára um jólin," segir Ólafur Geir
Jónsson, sjónvarpsstjóri netstöðvarinnar Splash, nemi og körfuknattleiksmaður.„Einnig er ég
að fara á fullt með körfuboltanum. Ég leik með liði Keflavíkur og er bæði í unglingaflokki og
meistaraflokki. Svo er ég alltafað vinna á fullu i þáttunum á Splash. Við náum vonandi að
stækka stöðina sem fyrst. Við ætlum að bæta viö fleiri þáttum og fá fleiri styrktaraðila. “
Einn kýldur í
Keflavík
Eitt líkamsárásarmál
kom upp í Keflavík aðfara-
nótt sunnudags. Ráðist var
á mann í Hafnargötu og
hann kýldur nokkrum sinn-
um í andlitið. Maðurinn var
fluttur með sjúkrabifreið á
Heilbrigðisstofnun Suður-
nesja til nánari skoðunar.
Sömu nótt slösuðust tveir á
skemmtistöðum í Keflavík.
Annað slysið æxlaðist
þannig að kona datt af stól
og rak höfuðið í en í hinu
slysinu meiddist maður á
öxl. Hvorugt tilfellið var þó
alvarlegt.
Háskóla-
rektor á móti
hjólabretta-
aðstöðu
Á fundi umhverfisráðs
Akureyrarbæjar var tekið
fyrir bréf frá Þorsteini
Gunnarssyni,
rektor Há-
skólans á Ak-
ureyri þar
sem hann
mótmælir því
að ekkert
samráð hafi
verið haft við
háskólann um
staðsetningu hjólabretta-
og línuskautaaðstöðu. Að-
staðan er sunnan Borga
sem er rannsóknahús há-
skólans. Umhverfisráð
áréttaði á fundinum að að-
staðan væri í ásættanlegri
fjarlægð frá húsnæði há-
skólans samkvæmt upplýs-
ingum um hljóðmengun og
ætti því ekki að hafa bein
áhrif á starfsemi skólans.
Freygarður Jóhannsson, athafnamaður í Kópavogi, varð fyrir heldur óskemmti-
legri lífsreynslu á föstudaginn þegar tveir menn réðust inn í fyrirtæki hans í
Hamraborg 7 og gengu í skrokk á honum. Árásarmennirnir ganga lausir og óttast
Freygarður um líf sitt.
Barinn ítrekað í höfuöiö
Ólafur Magnússon, segir að frjálslyndir hagnist á því að R - listinn haldi.
Telur líklegt að frjálslyndir verði í oddastöðu
Ólafur F. Magnússon, oddviti
frjálslyndra í Reykjavík, hefur ásamt
félögum sínum í Fijálslynda flokkn-
um fylgst grannt með störfum við-
ræðunefndar R-lista flokkanna að
undanfömu. Hann veit sem er að
framtíð hans í næstu kosningum
ræðst að miklu leyti af því hvemig
nefndin starfar, hverju hún skilar og
hver svo endanlega niðurstaðan
verður.
Samningaviðræðurnar um
framtíð R-listans segir Ólafur hafa
verið langdregnar og vandræða-
legar. „Það sem er pínlegast við
þessar viðræður er að það er ekki
verið að ræða pólitík, heldur skipt-
ingu embætta og bitlinga," segir
hann.
„Við í F-listanum bíðum róleg og
sjáum hvað kemur út úr þessu,“ seg-
ir Ólafur. Spurður hvort frjálslynd-
um hugnist ekki betur að R - lista-
samstarfið haldi en að eiga við alla
flokkana í hvern í sínu lagi segir
hann: „Það kemur okkur best að
vera þriðja aflið í borginni."
Draumastaða Ólafs og félaga
hans í F - listanum er sú að komast
í oddastöðu eftir kosningar. Ólafur
telur að það verði ekki ólíkleg nið-
urstaða. í nýjasta þjóðarpúlsi
Gallup mældist Sjálfstæðisflokkur-
inn með rúmlega 48% fylgi, R-list-
inn með 47% og Frjálslyndi flokk-
urinn tæplega 5%. Ölafur bendir á
að frjálslyndir hafa, í fyrri kosning-
um, fengið ávallt töluvert fleiri at-
kvæði upp úr kjörkössunum en
skoðanakannanir gáfu til kynna.
Frjálslyndir þurfa því ekki að bæta
við sig miklu fýlgi til að niðurstað-
an verði þannig að Sjálfstæðis-
flokkurinn fái sjö fulltrúa R - list-
inn sjö og frjálslyndir eiiin.
Væri Frjálslyndi flokkurinn þá
ekki búinn að leysa borgarstjóra-
krísu R-listans? Ólafur svarar hlæj-
andi: „Ég geng ekki með borgar-
stjóra í maganum."
andri@dv.is
Freygarður Jóhannsson, fimmtugur athaftiamaður úr Kdpavogi,
segist vera þakklátur fyrir að vera á lífi eftir að tveir menn réðust
á hann á föstudagsmorgun. Þeir lömdu hann ítrekað með felgu-
lykli í höfuðið og tókst Freygarði að komast burt frá mönnunum
á ótrúlegan hátt og gera grönnum sínum í Hamborg 7 viðvart.
Lögreglan í Kópavogi hefur tekið skýrslu af öðrum árásarmann-
inum og segir málið vera í rannsókn.
„Ég hélt að þetta væri mitt síð-
asta," sagði Freygarður í samtali við
DV { gær. Hann er enn með höfuð-
verk eftir árásina, skelkaður og hefúr
lagt fram kæru á árásarmennina tvo
og þá sem hann telur að hafi ráðið
þá til þessa.
Tveir menn með felgulykil
Freygarður segir tvo menn hafa
komið inn í fyrirtæki sitt á föstu-
dagsmorguninn. Þeir hafl kynnt sig
sem verkfræðinga á vegum Kópa-
vogsbæjar en þegar á reyndi hefðu
þeir ráðist aftan að sér með felgu-
lykli og ítrekað barið sig í höfuðið.
„Ég skildi ekkert í þessu en þeir
sögðu við mig að ég vissi af hverju
þeir væru komnir. Þeir börðu mig
síðan eins og harðfisk með felgu-
lykli," sagði Freygarður, sem komst
við illan leik út úr fyrirtækinu. Hann
segir nágranna sína í húsinu hafa
verið afar hjálplega enda sé hvergi
betra að vinna en í Hamraborginni.
Freygarður sagði við blaðamann í
gær að hann væri mjög þakklátur
grönnum sínum sem hlúðu að
honum eftir árásina.
greinilegt að það eru enn smá tögg-
ur í manni," sagði Freygarður sem er
sannfærður um að hann væri ekki til
frásagnar um atburðinn ef hann
hefði ekki komist burtu alblóðug-
ur. „Þetta var ekk-
ert annað en til-
raun til
manndráps.
Það lemur
Ósáttur við lögregluna
Freygarður sagðist ekki vera sátt-
ur við vinnubrögð lögreglunnar í
þessu máli. „Ég skil ekki seinagang-
inn í þessum mönnum. Þeir hafa all-
ar upplýsingar í höndunum til að
klára þetta en það eina sem þeir
hafa gert er að taka skýrslu af einum
manni. Ég fór á lögreglustöðina og
benti þar á tvo menn. Annar þeirra
átti síma sem hringt var úr í mig
áður en mennirnir tveir komu og
hinn átti bílinn sem sást aka burtu
frá staðnum þar sem árásin
átti sér stað. Þeir ganga
báðir lausir og ég spyr
hvort ég geti verið ör-
uggur með þessa
menn lausa á göt-
unni."
oskar@dv.is
Með hausverk og skurði
Freygarður segist enn vera
með höfuðverk en sé ann-
ars ótrúlega hress miðað
við aðstæður.
Óhuggugleg sjón
Freygarður sést hér
alblóðugur eftir
árásina á föstu-
dagsmorguninn.
Fékk aukakraft
Freygarður náði að yfirbuga árás-
armennina tvo, komast út úr fyrir-
tækinu og niður á jarðhæð hússins
þar sem hann lét nágrannana vita.
„Ég skil ekki hvernig ég hafði kraft til
að yfirbuga mennina en það er
enginn fólk í höfuðið með felgulykli
til þess eins að hræða það.
með felgulykli
„Ég skildi ekkert í þessu en þeir sögðu
við mig að ég vissi afhverju þeir væru
komnir. Þeir börðu mig síðan eins og
harðfisk með felgulykli
Nafn á gamla
Lækjarskóla
Fræðsluráð Hafnarfjarð-
ar fór á fundi sínum þann
10. ágúst yfir tillögur sem
bárust um nafn á Lækjar-
skólann gamla. Alls bárust
75 tillögur og valdi fræðslu-
ráð fjórar þeirra til að setja í
kosningu á heimasíðu
Hafnarfjarðar. Nöfnin sem
urðu fyrir valinu eru: Gamli
barnaskólinn, Lækjarsetrið,
Menntasetrið við Lækinn
og Skólagerðið. Ákveðið
hefur verið að starfsemi í
húsinu verði tengd mennt-
un og menningu.Kosning
er nú þegar hafin á vef bæj-
arins og mun hún standa til
22. ágúst.