Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2005, Blaðsíða 30
30 MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST2005
Lífið DV
VERÐ KR. 300
FÆST Á ÖLLUM HELSTU
BLAÐSÖLUSTÖÐUM LANDSINS
SIRIOJS
NÝTT TÍHARIT. NÝR TÓNN.
Úlfar Linnet fyrrum fyndnasti maður íslands er kominn heim
úr mastersnámi frá Danmörku. Núna er hann heimavinnandi
húsfaðir og tekur því rólega.
Heimavinnandi verkfræöingur
„Ég kom bara síðasta sunnudag
og er nú alfluttur heim," segir Úlfar
Linnet grínisti og verkfræðingur.
Hann er nú nýkominn heim úr námi
frá Danmörku þar sem hann tók
masterspróf í hagnýtri stærðfræði
frá Danmarks tekniske universitet.
Nú er hann mættur á klakann og
kemur sér fýrir hjá tengdaforeldrun-
um.
Fór út að læra og fjölga
mannkyninu
Úlfar er með bs-próf úr verkfræði
frá Háskóla íslands en fýrir tveimur
og hálfu ári hélt hann utan til að taka
masterinn. „Ég fór út til að læra og
fjölga mannkyninu og hvort tveggja
gekk upp," segir Úlfar, en hann og
kona hans Ragnheiður eignuðust
litla telpu í september á síðasta ári.
Hún hlaut nafnið Úlfheiður og því
skírð í höfuðið á bæði móður sinni
og föður. Það hafa þvf ekki verið
miklar deilur um valið á nafninu en
oft er það meinið þegar foreldrar
velja nöfn á afkvæmi sín. „Þetta var
allt gert í mikilli gleði. Það var meira
sungið og faðmast frekar en rifist
um nafnið," segir Úlfar.
Atvinnulaus hjá tengdó
Úlfar kom til landsins á sunnu-
daginn var og hefur sem fyrr segir
komið sér fyrir hjá tengdaforeldrun-
um með konu sinni og barni. Nú er
næst á dagskrá hjá honum að leita
sér að vinnu en á meðan er hann
heimavinnandi húsfaðir. „Ég er bara
atvinnulaus aumingi sem býr hjá
tengdó," segir Úlfar. Hann hafði
jafhvel hugsað sér að kaupa íbúð hér
á landi þegar hann kom heim. „Við
ætluðum að kaupa þangað til við
kynntumst húsnæðisverðinu," segir
Úlfar og hlær. „Nú er bara að fara að
safna."
íslendingar klikkaðir
Úlfar segir viðbrigðin að koma
heim ekki svo mikil enda kannski lít-
ið breyst á þessum tveimur árum.
Hann kynntist því þó fyrst hvað ís-
lendingar Ufa hratt þegar hann kom
heim frá Danmörku þegar hann var
19 ára eftir að hafa starfað þar sum-
arlangt. „Þannig er mál með vexti að
ég var einn færasti kjúklingakokkur
landsins þegar ég vann á Kentucky
hér á árum áður. Svo fór ég út til
Danmerkur og vann á Kentucky þar.
Ég er einmitt eini kjúklingakokkur-
inn sem hefur starfað á meginland-
inu. En þar var mönnum sama þó
kjúklingabitarnir þeirra kæmu
klukkutíma of seint. Svo þegar ég
kom heim var allt vitlaust ef það
gerðist, þannig að ég varð að hætta
að steikja kjúkling," segir Úlfar
raunamæddur. „ísland er alltaf jafn
klikkað. Menn segja að Bandarflcja-
menn séu svo heimskir og klikkaðir
en þeir eru svo margir og blanda af
allskonar fólki. íslendingar eru hins-
vegar aUir klikkaðir og manni leiðist
ekki innan um þannig fólk."
„Ég fór út til að læra
og fjölga mannkyninu
og hvort tveggja gekk
upp,"
Á leið í grínið aftur
Úlfar Linnet var eitt sinn kjörinn
fyndnasti maður íslands og vel að
þeim titíi kominn. Á ekkert að vera
með uppistand á næstunni? „Það
þarf að hita sig upp og fara á fidlt,
eins fuUt og hægt er að fara hér á
landi," segir Úlfar og vill ekki meina
að hann hafi misst húmorinn í
Danaveldi. „Nei en þeir eru með al-
veg rosalega senu þarna úti. Þeir eru
í búningum með gervitennur. Eitt-
hvað sem var fyndið fyrir fimmtán
árum. Þetta eru svona lélegir Ladd-
ar, og þá er ég ekki að meina að
Laddi sé lélegur. En það er ótrúlega
mikið af víðum frökkum og gervi-
tönnum í umferð," segir Úlfar.
Þú hefur ekki kippt með þér einu
setti affrakka og tönnum?
„Nei ég sleppti því."
Hnakkar úr Mekka hnakkanna opna heimasíöu
Team-Hnakkz er ekki fyrir alla
Ungir drengir frá Selfossi og
Hveragerði hafa opnað heimasíðu
undir naihinu Team-hnakkz.com.
Þykja þetta vera mikii tímamót því
löngum hefur verið litið á Selfoss
sem Mekka hnakkanna. Enginn úr
bæjarfélaginu hefur þó stigið fram
áður og játað að vera hnakki.
Lengi var taiið að allir hlustendur
útvarpsstöðvarinnar Fm 957 væru
búsettir á Selfossi en nú seinni ár
hefur komið í ljós að sá hlustenda-
hópur er eilítið dreifðari um land-
ið.
Drengir þessir taka sig alvar-
lega sem hnakkar og boða fagnað-
arerindið sitt víða um land. „Jæja
gott fólk vel heppnuð hátíð hjá
TEAM HNAKKZ. Allir voru vel
beyglaðir og útúr hnakkaðir undir
regnfötunum og auðvitað voru
fyrstu líkamsárásirnar nálægt okk-
ur. Fólk verður alveg crazy þegar
við mætum og hnökkum upp allar
mannverur
mannskepnur,
segir einn
hnökkunum í
helgarpistli sínum
á heimasíðunni.
Hnakkarnir
eru miklir bflaá-
hugamenn og aka
um á vel útbún-
um tryllitækjum,
þá sérstaklega
hvað hljómflutn-
ingstæki varðar.
Það er þó ekki
nóg að vera Sel-
fyssingur eða
Hvergerðingur til að komast í téð-
an hóp. „Aðganga í Team-Hnakkz
er ekki opin fyrir alla, þetta er
mjög lokaður hópur vissra ein-
staklinga sem hafa mikinn áhuga á
bflum og skemmta sér saman,"
segir á síðunni.
Eflaust sitja
margir hnakkar
heima með sárt
ennið og óska
þess að fá inngöngu.
soli@dv.is
Loksins Seifoss-
hnakkar búnir að
opinbera tilvistsína.