Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2005, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2005
Fréttir DV
Kanínur
heftar í Mosó
ViEtar kanínur eru orðn-
ar að svo miklu vandamáli
að bæjarstjórn Mosfells-
bæjar samþykkti að kannað
verði með aðgerðir til að
hefta útbreiðslu kanína í
bæjarfélaginu. Þá ætlar
Mosfellsbær að taka upp
viðræður við önnur sveitar-
félög á höfuðborgarsvæð-
inu um samræmdar að-
gerðir til þess að stemma
stigu við uppgangi minks,
refs og vargfugls.
Ræða offitu
í Svíþjóð
Norðurlandaráð heldur
sína árlegu septemberfundi
í Karlstad í Svíþjóð þessa
dagana. Fyrir hönd íslands
mæta þau Jónína Bjart-
marz, Rannveig Guð-
mundsdóttir, Drífa Hjartar-
dóttir, Ásta R. Jóhannes-
dóttir, Steingrímur J. Sig-
fússon, Sigurður Kári Krist-
jánsson og Arnbjörg
Sveinsdóttir. Meðal annars
verður rædd óhollusta og
offita Norðurlandabúa,
verndun Eystrasaltsins og
aðgerðir gegn skipulögðum
flutningi á ólöglegu vinnu-
afli frá Eystrasaitslöndun-
um.
Selfyssingurinn Gregg
Thomas Batson má tína söl
í Eyrarbakkafjöru. Þetta
ákvað umhverfisráð Ár-
borgar á fundi sínum á
mánudag. „Nefndin sér
ekki annmarka á sölvatekju
í fjörunni út frá umhverfis-
sjónarmiðum, enda verði
tekið tillit til hefða sem
skapast hafa á svæðinu um
að almenningur geti farið
til sölvatekju í fjörunni,"
sagði einhuga umhverfis-
nefnd um málið.
Skjár einn hefur hafiö sýningar á íslensku útgáfunni af Bachelor. Magnús Ragn-
arsson sjónvarpsstjóri hefur áhyggjur af að upplýsingar um gang mála geti lekið út
þar sem framleiðslufyrirtæki þáttanna er í eigu helsta samkeppnisaðilans, 365.
40 milljóna sekt fyrir
aö kjafta frá í Bachelor
Þátttakendur í íslenska sjónvarpsþættinum Bachelor sem hóf
göngu sína á Skjá einum í gærkvöldi hafa skrifað undir samning
þess efnis að þeir verði sektaðir um 40 milljónir króna kjafti þeir
frá innihaldi þáttanna.
„Já, ég hef heyrt af þessu en get
ekki staðfest þar sem ég er ekki með
pappírana fyrir framan mig,“ segir
Magnús Ragnarsson, sjónvarpsstjóri
á Skjá einum. „Saga Film framleiðir
þættina fyrir okkur og þeir gera
þessa samninga við fólkið sem tekur
þátt," segir sjónvarpsstjórinn.
Fyrstu fjórir þættirnir af Bachelor
fjalla um leitina að piparsveininum
og stúlkunum sem eiga að girnast
hann. Að því loknu hefst hinn raun-
verulegi Bachelor og skiptir augljós-
lega miklu að ekkert leki út um
hvernig gangi. Getur það reynst
erfitt þar sem margir koma við sögu
og þættimir teknir upp fyrirfram.
Óheppileg staða
„Við emm reyndar í mjög
óheppilegri stöðu eftir að sam-
keppnisaðili okkar keypti Saga Film.
Svo óheppilegri að jafna má við að
Skjár einn væri að framleiða Idol fyr-
ir Stöð 2," segir Magnús sjónvarps-
stjóri. „Því hef ég sent 365 samsteyp-
unni erindi þess efnis og gert kröfu
um að ef eitthvað leki út um gang
,Þvf hefég sent 365
samsteypunni eríndi
þess efnis og gert
kröfu um að efeitt-
hvað leki útumgang
mála íþáttunum frá
þeim sem vinna að
gerð þeirraverði allur
framleiðslukostnað-
urinn endurgreiddur,
mála í þáttunum frá þeim sem vinna
að gerð þeirra verði allur fram-
leiðslukostnaðurinn endurgreiddur.
Ég hef hins vegar ekki fengið neitt
svar frá þeim,“ segir hann.
Malar gull
Sjónvarpsþátturinn Bachelor
hefur farið sigurför um ailan heim
og margar þjóðir tekið upp eigin út-
gáfu af þættinum. Binda stjómend-
ur Skjás eins miklar vonir
við þáttinn og eiga sér
draum um að íslenska út-
gáfan verði ekki síður
vinsæl en sú upphaf-
lega sem þegar hefur
malað meira gull í
vasa framleið
enda en nokkur
bjóst við
upphafi.
Magnus Ragnarsson Sjónvarpsstjári
Skjás eins hefur fariö fram á að fram-
leiðslukostnaður vegna Bachelors verði
endurgreiddur að fullu leki eitthvað út
frá starfsfólki Saga Film sem er i eigu
helsta samkeppnisaðila Skjás eins.
Jon Ingi Hákonarson
S tjórnar leitinni að ís-
lenska Bachelornum fyrir
Skjá einn. Hann má ekki
kjafta frá frekaren aðrir.
Sakamál aldarinnar
Svarthöfði verður að viðurkenna
að hann er löngu hættur að skilja upp
eða niður í „Stóra Baugsmálinu" sem
nú skekur samfélagið, ef hann skildi
þá nokkum tímann eitthvað í því. í öll-
um venjulegum dómsmáium er ger-
andi og þolandi, t.d. bytta sem lemur
aðra fyllibyttu í hausinn eða gjaldkeri
sem stelur frá fyrirtækinu sem hann
vinnur hjá. Þetta mál er miklu snúnara
og Svarthöfða sýnist að í fyrsta lagi sé
gamall diskóbolti að klaga sjálfan sig
fyrir ólöglegt athæfi og í öðm lagi fyrir-
tæki sem er kært fyrir að hafa stolið frá
sjálfu sér. Mjög sérstakt allt saman.
Gamii diskóboltinn úr Hollywood,
Jón Gerald Sullenberger, sakar Baug
um að hafa sagt sér að falsa einhverjar
nótur. Svo er það þetta með snekkjuna
sem Svarthöfða skilst af Sullenberger
að hinn illi Jón Ásgeir hafi ætlað að
mylja undir sig með því að leggja sér-
stakan snekkjutoli - 5 kr. - á hvert
Bónusbrauð. Ha?
Löggan tók ásakanir diskóboltans
mjög alvarlega, réðst til inngöngu í
kastala illskunnar, Baugsskrifstofuna,
og fann samtals 40 glæpi sem hægt var
að kæra. Kæran sem kom út úr þessari
þriggja ára leiftursókn þótti svo óskilj-
Hvernig hefur þú það?
„Ég er á fullu að undirbúa liðið mitt fyrir bikarúrslitaleikinn á laugardaginn," segir
Ólafur Kristjánsson, þjálfari Fram.„Ég lofa því að mlnir menn mæta grimmir til
leiks þvíþeir ætla sér sigur. Annars erþetta búið að vera strangt tímabil og það
verður kærkomið að fá smáfrl eftir leikinn um helgina."
anleg að henni var hent út úr héraðs-
dómi fyrr í vikunni. Ef sprenglærðir
lögfræðingamir þar skilja ekkert í
þessu, hvemig á þá fólkið í landinu
með 120 kall á mánuði og hor í nös að
skilja upp eða niður í þessu?
Svarthöfði rembist þó og glápir á
fréttimar. Eitt kvöidið sjáum við lög-
fræðing Jóns Ásgeirs blása hressilega á
þetta allt saman og áhorfendur ganga
snarlega í lið með Baugi. Daginn eftír
kemur bláeyg lögga, heiðarleikinn
uppmálaður, og hrekur allt til baka úr
fréttunum daginn áður. Er
alveg brjáluð meira að
segja út af ruglinu í
Ingibjörgu, segir að
auðvitað hafi Davíð
bak við tjöldin ekkert
með þetta að gera. Nú
er komin upp
svokölluð
„pattstaða"
og Svart-
höfði bíður
í ofvæni eftir því hver kemur næstur til
að reka hvað niður í kokið á hverjum.
Svona gengur öll umræða fyrir sig á fs-
landi. Pattstöður koma upp aftur og
aftur þar til fólk hættir að nenna að
spá í þessu enda málin orðin óskiljan-
leg fyrir löngu.
Hvað sem öðm h'ður er þetta eitt af
sakamálum aldarinnar. Kemst óhikað
í flokk með Kennedy-morðinu, Guð-
mundi og Geirfinni og Hafskipsmál-
inu, sem Svarthöfði skilur ekkert í
heldur. Svarthöfði veit bara að
aðalkrimminn í því máli er
nú í feitum máliim, rík-
astur í bænum og á eit-
urgrænni grein. Ætti
Baugsfólk þá ekki
að hlakka til að
komast aðeins í
fangelsi?
Svart-
höfði