Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2005, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2005
Fréttir DV
Lára fékk
verðlaun
Menningarverðlaun
Sambands sveitarfélaga á
Austurlandi fyrir árið 2005
voru afhent í níunda sinn á
aðalfundi sambandsins
þann 15. september síðast-
liðinn. Að þessu sinni var
ákveðið að veita Láru Vil-
bergsdóttur frá Egilsstöð-
um verðlaunin. Lára hefur í
alimörg ár verið í forsvari
fyrir ýmsar menningar- og
listahátíðir á Héraði.
Síðastliðin fimm ár
hefur Lára skipulagt
bæjarhátíðina Orms-
teiti sem rækilega
hefur slegið í
gegn hjá íbúum
Fljótsdalshér-
aðs.
Gísli tengist
ekki Aksjón
Með frétt af gjaldþroti
sjó nvarps stö ð varinnar
Aksjón á Akureyri hér í
blaðinu birtist mynd af
Gísla Gunnlaugssyni,
stofhanda stöðvarinnar.
Til að forða öllum mis-
skilningi skal tekið fram
að Gísli og meðeigendur
hans seldu Aksjón fyrir
nokkrum misserum og
tengjast því ekki á neinn
hátt gjaldþroti stöðvar-
innar.
Fótboltamað-
ur dæmdur
„Ég er bara sáttur við
það að þessu máli sé lok-
ið,“ segir fótboltamaðurinn
Magnús Már Lúðvíksson í
Þrótti. Hann var á miðviku-
dag dæmdur í Héraðsdómi
Reykjavíkur til 30 daga skil-
orðsbundinnar fangelsis-
vistar fyrir að nef- og
kjálksabrjóta mann á
Skólavörðustíg í júlí í fyrra.
Magnús sló manninn
tvisvar sinnum í andlitið
með krepptum hnefa. Það
var Magnúsi til refsimild-
unar að hann hafði frum-
kvæði að því að sættast við
manninn sem hann kýldi
og greiddi honum bætur.
„Þaö ergottlífið á Sigló/'segir
Runólfur Birgisson bæjarstjóri
á Siglufirði en viðurkennir þó
að menn séu ósáttur við upp-
sagnirSímans á staðnum.
„Menn vilja bara fá skýringar
á þessu því við höldum að það
sé fullþörfá þessum starfs-
mönn- ____________
Landsíminrt
Þessir
starfsmenn hafa verið til sóma
fyrirSímann og hérskipta
flestir við Símann þess vegna.
Hér kemur fyrir að vegir verði
ófærir dögum saman og þá er
nauðsynlegt að hafa menn á
staðnum sem kunna til verka.
Annars er lífið alveg dásam-
legt þó að það sé leiðindaveö-
ur núna. Það skiptir engu máli,
þá skiptum við bara um ham.
Fyrrverandi framkvæmdastjóri Móa, Ólafur Jón Guðjónsson, á að greiða 68 millj-
ónir króna í sekt vegna þess að kjúklingafyrirtækið greiddi 35 milljónir króna af
staðgreiðslusköttum of seint. Örn Höskuldsson, lögmaður Ólafs, vonar að Alþingi
samþykki í tæka tíð fyrirliggjandi lagafrumvarp sem milda mundi refsingu Ólafs
þegar máli hans verður vísað til Hæstaréttar.
Vonar ao Alpingi slai
á 68 milljána sekt
„Þingmönnum
blöskraði að all-
ir séu jafnt und-
ir þetta settir."
„Það er langlíklegast að þessum dómi verði áfrýjað til Hæstarétt-
ar," segir örn Höskuldsson hæstaréttarlögmaður um 68 millj-
óna króna sekt sem Ólafur Jón Guðjónsson á að greiða sam-
kvæmt dómi í Héraðsdómi Reykjavíkur á miðvikudag. Ólafur
Jón var framkvæmdastjóri og einn eigenda kjúklingafyrirtækis-
ins Móa sem lengi barðist í bökkum og fór loks á hausinn.
Skattrannsóknarstjóri ríkisins tók
skattskil Móa til skoðunar í ársbyrj-
un 2004. Fjórum mánuðum áður
hafði fyrirtækið verið tekið til gjald-
þrotaskipta.
Eftir rannsóknina kærði skatt-
rannsóknarstjóri bæði Ólaf Jón Guð-
jónsson framkvæmdastjóra og Krist-
inn Gylfa Jónsson, stjómarformann
Móa, til Ríkislögreglustjóra fyrir að
hafa ekki staðið skil á staðgreiðslu-
sköttum starfsmanna á tilsettum
tíma.
Stjórnarformaður slapp
Að lokinni rannsókn Ríldslög-
reglustjóra var síðan gefin út ákæra
á hendur Ólafi fýrir að hafa ekki
staðið skil á tæplega 36 miUjónum
króna af staðgreiðslusköttum starfs-
manna á árinu 2002. Var ákært þrátt
fyrir að greiðslurnar hefðu verið
inntar af hendi áður en ákæran var
gefin út. Dráttur á þessum skatt-
greiðslum mun lengi hafa tíðkast hjá
Móum sem iðulega nýtti inneign
sína í virðisaukaskatti til að standa
skil á staðgreiðslusköttunum.
Engin ákæra var gefin út á hend-
ur Kristni stjómarformanni enda
hafði Ólafur Jón sagst við yfirheyrsl-
ur hafa annast daglegan rekstur.
Fyrir dómi sögðu þó bæði Ólafur Jón
og Friðgeir S. Kristinsson, fyrrver-
andi framkvæmdastjóri Móa, að það
hafi fremur verið Kristinn en Ólafur
sem hafði afskipti af fjármálum fýr-
irtækisins.
Þingmönnum blöskraði
öm segir dóminn yfir Ólafi Jóni
vera afar harðan. Lög frá árinu 1995
em hins vegar ósveigjanleg hvað
varðar of sein skil á vörslusköttum til
rfldssjóðs: Hafi
menn skilað skött-
um of seint - eða
einfaldlega alls ekki
skilað þeim - skulu
þeir að lágmarki
greiða sekt sem svar-
ar til helmings þeirr-
ar upphæðar sem
ekki barst á réttum
tíma. Þykir í meira
lagi ósanngjamt að
setja alla undir sama
hatt í þessum efnum
og lögðu þingmenn
allra floldca fram
fmmvarp síðasta
haust til að afnema
þetta
ákvæði um lágmarkssektina.
Frumvarpið hefur enn ekki
verið afgreitt en mun vera
langt komið í meðfömm Al-
þingis.
„Þingmönnum blöskraði
að allir séu jafnt undir þetta
settir hvort sem þeir em eins
og Ólafur sem hafði í raun ekkert
með íjármálin að gera og starfaði hjá
fyrirtæki þar sem allar skattskila-
greinar vom rétt gerðar eða em
hreinlega skjalafalsarar sem skila
hvorki bókhaldi né skilagreinum.
Þetta er ekki beint hvetjandi fyrir
menn að skila inn sköttum séu þeir
orðnir af seinir á annað borð," segir
Öm og bendir á að fjölmörg mál eins
og Ólafs Jóns hafi komið til kasta
dómstóla.
Kapphlaup við tímann
Ólafur Jón er þegar orðinn gjald-
þrota vegna persónulegra ábyrgða
sem hann var í vegna Móa. Öm seg-
ir skjólstæðing sinn því alls engan
Starfsfólkið Móar
I drógu staðgreiðslu af
—I j starfsfólkinu en skil-
j I uðu peningunum of
\ | seint i ríkissjóð.
SMITvORrl
ÖU OVUfKOMANOI
UMftHO
STRANGLEGA
BÖNNUO
örn Höskuldsson Hart
að setja ÓlafJón undir
sama hatt og skjalafals-
ara og þá sem ekki
standa skil á bókhaldi,
segir lögmaður hans.
■ |l
Móar Kjúklingafyrirtækið reyndist
banabiti bæði framkvæmdastjór-
ans og stjórnarformannsins sem
urðu persánulega gjaldþrota þegar
Móar fóru á hausinn.
HiSllK
borgunarmann fyrir 68 milljóna
króna sektinni. Borgi Ólafur Jón
hins vegar ekki sektina inan
fjögurra vikna bíður hans tólf
mánaða fangelsi.
Fjórar vikur em einmitt
fresturinn sem Ólafur Jón hef-
ur til að áfrýja málinu til
Hæstaréttar. Samþykki al- ' •
þingismenn nýja fmmvarpið
áður en dómur fellur í Hæsta-
rétti gæti Ólafúr Jón sloppið
mun betur en nú horfir:
„Ef breytingamar ná fram að
ganga áður en dómur fellur skal
dæma eftir nýju lögunum,“ segir
örn Höskuldsson.
gar@dv.is
I Kristinn Gylfi Jónsson Stjórnar-
formaðurinn var kærður afskatt-
rannsóknarstjóra en Rlkislogreglu-
I stjóri lét nægja að ákæra ólafJón
Guðjónsson framkvæmdastjóra fynr
| vanskil á skattgreiðslum.
Aron Pálmi fékk að flýja fellibylinn Rítu
Betur fór en á horfðist hjá Ar-
oni Pálma Ágústssyni í gær. Um
tíma leit út fyrir að hann fengi
ekki að yfirgefa heimili sitt í
Beaumant í Texas þrátt fyrir að
fellibylurinn Ríta stefndi á bæinn.
Stuðningsnefnd Arons Pálma,
RJF-hópurinn svokallaði, aðstoð-
aði hann í baráttu sinni fyrir að
flýja bæinn og sendi erindi til ut-
anríkisráðuneytisins og sendiráðs
íslands í Washington sem brugð-
ust skjótt við.
Atburðarásin var æsileg í gær.
íslenska sendiráðinu í Was-
hington tókst að endingu að út-
vega formlegt brottfararleyfi fyrir
Aron. Þrátt fyrir að um neyðar-
brottflutning íbúa væri að ræða
þurfti hann engu að síður að
greiða rútufargjald. Aron var með
öllu peningalaus þannig að sendi-
ráð íslands greiddi fyrir hann
rútumiða til Austin í Texas með
VISA-korti sínu.
Aron gekk þá um fimm kíló-
metra leið að næstu rútustöð. Er
það lengsta ganga hans í fleiri ár.
Upphaf frelsisins. Rútuferðin til
Austin tekur venjulega um fimm
til sex tíma. Vegna umferðaröng-
þveitis og skelfingarástands á
þjóðvegum tók hún mun lengri
tíma.
í Austin mun Aron hitta fjöl-
skyldu sína en hún fór þangað í
fyrradag. Skildi hann einan eftir
þar sem tilskilin leyfi höfðu ekki
verið veitt. Hann mun láta sendi-
ráð íslands vita um leið og hann er
kominn til Austin.
Einar S. Einarsson, forsvars-
maður RJF-hópsins sem hefur
hjálpað Aroni, bendir á að þrátt
fyrir þetta skammvinna frelsi Ar-
ons beri hann ennþá GPS-stað-
setningartæki um ökkla sér. Taki
hann það af sér á hann á hættu að
verða fangelsaður á nýjan leik
þegar storminum lýkur. Vonir eru
bundnar við að þetta marki upp-
haf endanlegs frelsis Arons og
hann fái í kjölfarið að snúa heim
til íslands.