Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2005, Blaðsíða 21
DV Heimilið
FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2005 2 7
Mygla í mat
Ef matvaran er mygluð er besta
ráðið að henda henni því mygla get-
ur valdið slæmri matareitrun. En
það er ekki allur matur ónýtur þó
svo að í honum leynist einn og einn
myglublettur. Ostur getur vel verið
ætur eftir að myglublettimir hafa
verið fjarlægðir. Sama má segja um
ber í pökkum sem maður kaupir í
búðinni. Stundum myndast myglu-
gróður í kassanum þrátt fyrir að
berin h'ti vel út og þau eru í lagi ef
þau snerta ekki mygluna. Það þarf
samt að þvo þau vandlega áður en
þau eru borðuð.
Passa þarf upp á áhöldin sem not-
uð eru til að fjarlægja myglu. Þau þarf
að þvo vel og vandlega og best er að
meðhöndla þau eins og áhöld sem
notuð eru til að skera hráan kjúkling.
Birkiaska
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
Ö
BETUSAN
Muskugræn glerskái
Hönnuð af Sigrúnu Ölöfu Einarsdóttur í Bergvík.
Sigrún sem fædd er árið 1952 hefur tekið þátt í
fjölda sýninga og fengið ótal styrki og verðlaun
fyrir verk sín.
Gler í Bergvík var stofnað árið 1982 og er vinnu-
stofan staðsett að Víkurgrund 10, Kjalarnesi,
rúmlega 25 kílómetra norður af Reykjavík
Mjög svo sérstakar Ijósakrónur eftir
Dögg Guðmundsdóttur
Dögg Guðmundsóttir er iðnhönnuður og stund-
aði nám 1992-1996 við Istituto Europeo di
Design í Mílanó og síðan í Danmarks Designskoli
í Kaupmannahöfn árin 1996-1998. Dögg hefur
tekið þátt í mörgum sýningum erlendis og
nokkrum hönnunarkeppnum. Hún hefur hann-
að marga lampa sem má fjöldaframleiða sem og
lampa sem flokkast undir að vera listaverk.
Stingray-stóllinn
sem gerður er úr hvítu plasti er
hannaður af danska hönnuðinum
Thomas Pedersen. Undir honum
eru ruggufætur úr málmi og hann
er hér skreyttur með skinni.
Stingray er lýst sem hátískuhús-
gagni sem sé framtíðartúlkun á
hinum klassíska ruggustól. Inn-
blástur stólsins kemur frá kræk-
lingaskeljum og notast er við það
form í gerð hans.
Desertskálar,
gaman að blanda
saman litum
Tværsaman á 1200
krónur.
Louise Campbell er ungur dansk-
ur húsgagnahönnuður
sem tekið hefur þátt í fjölmörgum hús-
gagnasýningum auk þess sem hún hefur
hlotið fjölmargar viðurkenningar fyrir
hönnun sína. I Epal er frumsýndur nýr
sófi eftir Louise Campell sem ekki hefur
verið sýndur opinberlega áður en hann er
í laginu eins og vegasalt. Þar fyrir utan er
þar að finna óvenjulegan stól sem Louise
sendi inn í samkeppni um stól sem ætl-
aður var krónprinsi Dana. Stóllinn er
með leiserskornu mynstri sem minnir
mjög á útklippta pappírsdúka. Stóllinn er
bæði til hvítur og svartur, en verður þó
aðeins sýndur hvítur að þessu sinni. Þess
má geta að Campbell var kosin besti hön-
uður ársins af Bo Bedre.
Litskrúðugir munir
fyrir heimiiið
Það er alltaf gaman aö eiga fallegar vörur og í Duka í Kringlunni er úrvalið
víst nóg hvort sem um ræðir nauðsynleg eldhúsáhöld eða skrautmuni.
Blár og silfrað-
ur kokteil-
hristari
3500 krónur.
Glervasi í bláu
og grænu
9900 krónur.
Kaffikanna í
hressilegum lit
2900 krónur.
Jamie Oliver mortél,
nauðsynlegt á hvert
heimili
5500 krónur.
6. Það getur
verið lunkið að
kaupa sér gler-
flösku með
stútoggeyma
ólífuolíuna í
henni í stað
glerflöskunnar.
Hreinlegra og fallegra.
7. Fyrir nýjungagjarna getur verið snið-
ugt að breyta gamalli ferðatösku í koll
með því að bæta á hana fótum. Einnig
er hægt að notað kollinn sem geymslu-
pláss.
Meira um matarsóda
7. Matarsódi getur verið frábært skinn-
hreinsiefni. Hægt er að blanda honum
við hreinsikrem eða mulið haframjöl
og það hreinsar vel dauðar húðfrum-
ur.
2. Matarsódi sem blandað er við maís-
sterkju er frábært náttúrulegt efni sem
kemur í stað barnapúðurs.
3. Matarsódi er góður lyktareyðir.
Hægt er að setja slatta ísmápoka eða í
bolla og skilja eftirí skápum og skúff-
um.
4. Gott er að þvo hendur með matar-
sóda þegar búið er að skera niður hvít-
lauk eða lauk til að losna við lyktina.
5. Gott er að blanda saman matar-
sóda og vatni og bera á bólusýkt
svæði i andliti.
6. Til að gera krítartöflur eins og nýjar
er gott að búa til deig úr matarsóda
og vatni og hreinsa töfluna.
7.1 flestum tilvikum er deig úr vatni og
matarsóda frábært efni til að hréinsa
vaxliti, pennaför og fleira afveggjum.
Bletturinn er nuddaður þar til hanner
horfinn.
8. Matarsódi er oft notaður til að
hreinsa silfur. Hlutirnir eru settir í
Vaskur úr ryðfríu
I stáli Gott eraðþrifa
hann með matar-
sóda og sjampói.
grunna pönnu með vatni og matar-
sóda er dreiftyfir og silfrið er nuddað
með mjúkum klúti.
9. Efvaskurinn þinn er úrryðfríu stáli
þá ergott að þrífa hann með blöndu
afhársápu og matarsóda.
Ij f y ( {' ͣj[ij j/ fjjjjf' X
Blettir eftir svitalyktareyði undir
handleggjum á skyrtum eru leiðin-
legir. Hellið hvítvfnsediki á blettinn
og látið standa í um 30 mínútur.
Skellið flíkinni I þvottavél á hæsta
hita sem hún
þolir. Til þess að
komast hjá
blettunum er
best að bíða
þar til svitalykt-
areyðirinn
þornar áðuren
farið er í skyrt-
una.
Hvít skyrta Blettir
eftir svitalyktareyði
eru leiðinlegir.