Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2005, Page 39

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2005, Page 39
DV Síöast en ekki síst FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2005 39 Fyrirtækið Baugur hefur verið mikið í fréttunum undanfarnar vik- ur og mánuði. Það hefur verið kært fyrir allt milli himins og jarðar, þessi á að hafa stolið milljónum og hinn á að hafa keypt sér kafflbolla og ein- hver á að hafa falsað skýrslur og annar að hafa svikið undan skatti. Allt frekar venjulegar viðskiptaákær- ur en svo var öUu pakkað saman og hætt við að ákæra, bara vegna þess að það var ekki nógu vel orðað. Pælið í því: Orðað. Eins og það að orða hluti sé einhver ástæða tU að orða hluti ekki svo vel að fólk skilji merkingu ekki. Ef þið fattið mig. Hið raunverulega hneyksli hefur hins vegar ekki verið nefnt einu nafni. Hvorki í fréttum, greinum, umfjöll- un né í nokkurri umræðu hefur það komið fram að forstjóri Baugs er ... ja, takið vel eftir ... hann er SONUR JÓHANNESAR!!! Erþað tUvUjun!!!!!! Sumir eru synir sumra Er það tilvUjun að SONURINN skyldi verða ráðinn forstjóri? Ég var ekki nema sautján ára gamaU þegar ég var ráðinn sem kerrusafnari í Bónus og viti menn, á sama tíma var ráðinn ungur maður (hann var þá ekki nema 27 ára gamaU) til þess að starfa mér við hlið. Við söfnuðum saman kerrum á bflastæðinu og röðuðum í röð. Það hljómar kannski ekki flókið en margir síðri menn hafa raglast og gefist upp á því að raða kerram. Það er nefnflega hægt að gera hræðUeg mistök eins og: 1. ýta kerranum á bfla og skemma þannig lakkið á þeim. 2. ýta kerran- um á fólk og fótbrjóta eldra fólk með viðkvæm bein. 3. ýta kerrunum á vörur í versluninni og skemma þannig fyrir sölunni. 4. raða kerran- um aftur á bak þannig að það sé ekki hægt að ná þeim í sundur. Og 5. setj- ast í kerra eins og barn og festa fæt- urna. Ég viðurkenni fuslega að ég gerði öll þessi mistök, ítrekað, en það gerði SONURINN sjálfur líka. Hann var ekkert skárri en ég. En þegar það losnaði staða pappa- kassaopnara (sem er draumur allra kerraraðara), hver ætli að hafi hlotið hnossið ... hver annar en SONUR JÓHANNESAR!!! Þorsteinn Guðmundsson Viö kerrurnar i Bónus. SONURINN var fljótur að vinna sig upp úr þeim. Þorsteinn Guðmundsson er óspilltur á líkama og sál. Síðast en ekki síst Sumir fá allt upp í hendurnar Þannig að á meðan ég stritaði við að raða kerram ár eftir ár, mánuð eftir mánuð, sekúndu eftir sekúndu, jól eftir jól horfði ég upp á SONINN opna pappakassa, inni í hlýjunni. Ég man eftir sorglegu atviki. Ég hafði þá eitthvað raglast og gleymt því að maður má aldrei setjast í innkaupa- kerra eins og barn vegna þess að fuflorðið fólk festir fæturna og kemst ekki upp aftur. Þetta var á Þorláksmessu, það var mikill snjór og ég sat fastur í innkaupakerra úti á bflastæði. Fólk keyrði fram hjá mér og flautaði, ungar stúlkur Jilógu að mér og reiðar mæður hræktu á mig og kölluðu mig kerraperra. Mér var kalt, ég var með standpínu og haus- verk. Kemur þá ekki sjálfur herra Pappakassaopnari gangandi... sjálf- ur SONURINN. Og hver var ekki með honum nema sjálfur FAÐIR- INN? Hann hefur sjálfsagt verið að fara með hann til þess að kaupa handa honum jólaglaðning í Bónus. En eins og allir vita þá er FAÐIRINN þekktur fyrir samkennd og mannúð. Hann bendir á mig og segir: „Sjáðu þennan kerraraðara SONUR. Hann hefur komið sér í vandræði." Og hverju svarar þá sonurinn: „Já, ég Vann með honum einu sinni en ég vil helst ekki hjálpa honum vegna þess að pappakassaopnarar og kerraraðarar tala ekki saman." Og svo gengu feðgarnir inn í búðina og skildu mig grátandi eftir. Þetta gat ég aldrei fyrirgefið. Sumir komast upp með allt Fimmtán áram seinna var SON- URINN orðinn forstjóri og hvar var ég, ég var þá nýbyrjaður sem pappa- kassaopnari og gekk ekki vel. Það kom í ljós að ég hef lítið formskyn og á erfitt með að átta mig á hvaða hlið- ar era hliðar á pappakassa (pappa- kassi lítur svo svipað út frá öllum hliðum). En SONURINN var í góð- um málum. Það var enginn sem hrækti á hann eða kallaði hann pappakassabjána. Mér er meira að segja sagt að hann hafi ekld þurft að ganga með plastpoka á höfðinu þegar hann vann í kjöthakkinu (hann vildi ekki skemma hárgreiðsl- una sem er rándýr greiðsla frá 1985). Þannig að það kom mér ekki á óvart að hann skyldi vera kærður fyrir að stela milljónum og kaffibolla. Það hlýtur að skemma fólk að fá svona allt upp í hendumar. Ég þakka bara guði fyrir að vera enn í pappaköss- unum vegna þess að það hefur eng- inn hjálpað mér með starfsframann, ég er algjörlega óspilltur á lflcama og sál. Og ef ég fengi starf í kjöthakkinu þá myndi ég ganga með plastpoka. Ég er að verða sköllóttur hvort sem er. Kalt. Kalt. Núll til fimm stig ( dag og áfram. Það snjóar fyrir norðan um helgina. Sunnlendingar sleppa við það en verður engu að sfður kalt á höndum. Kaupmannahöfn 78 París 23 Alicante 27 Ósló 75 Berlln 21 Mílanó 23 Stokkhólmur 23 Frankfurt 20 New York 29 Helsinki 16 Madrid 28 San Francisco 19 London 19 Barcelona 23 Orlando/Flórida 32 Sólmundur Hólm • DV heyrir að Mannlíf Reynis Traustasonar muni birta í næsta tölu- blaði sínu ítarlega nærmynd og úttekt á störfum Haraldar Johannessen ríkis- lögreglustjóra. Öll spjót standa nú á Haraldi eftir að ákærum í Baugs- máli var vísað frá í Héraðsdómi en víst er að Mannlíf, sem hefur unnið að þessari grein lengi, mun kafa dýpra í fortíð lögreglustjór- ans. Haraldur hefur verið gríðarlega um- deildur í starfi og ljóst er að Mann- Iífsúttektin muni ekki lægja þær öldur... • Amaldur Indriða- son hefur nú lokið við næsta reyfara sinn og er hann til- búinn til prentunar. Eina sem stendur í vegi fyrir því að Edda sendi skrifin upp í prentsmiðjuna Odda er að illa gengur að finna titil á bókina... • Félagarnir Þor- steinn Joð og Guðni Bergsson hafa dval- ið í Englandi að undanförnu - sveittir við að ganga frá bók sem Þor- steinn er að rita um feril Guðna. Þar verður sagt af uppgjörinu við landsliðið en nú er verið að fá komment frá stór- stjörnum um Guðna og taka myndir frá söguslóðum. Þor- steinn gerði nýverið athygisverða heim- ildarmynd þar sem fjallað er um kjör aldraðra. Nú er sjónum sem sagt beint að kjöram fótboltamanna sem lfldega era ekki eins aum... • Stuðmanna- myndin I'takt við tímann og Strákarn- ir okkar eftir Róbert Douglas keppa um hvor myndin verður framlag íslendinga til Óskarsverðlaun- anna. Verður kosið um það meðal akademíu kvikmyndamanna. Kem- ur þetta val nokkuð á óvart sé litið til þess að Dís Silju Hauksdóttur og Gargandi snilld Ara Ergis Magnússonar hafa verið tilnefnd- ar til kvikmynda- verðlauna Norður- landaráðs. Svo virð- ist sem jafnaðarmennskan sé alls- ráðandi í heimi hinna íslensku kvikmynda... • Hljómsveitin Dr. Spock spilar fyrir fanga á Litla-Hrauni í dag eins og fram kemur í Fókus í dag. önn- ur hljómsveit hafði þó hugsað sér að spila með þeim á Hrauninu en það er hljómsveitin Hoffmann. Þeir fengu þó ekki leyfi til þess að spila með Doktornum í fangelsinu. Ein- hverjir héldu að Hoffmann hefði á sér slæmt orð og marga dæmda einstaklinga inn- anborðs og fengju þar af leiðandi ekki að spila. Það er þó ekki raunin heldur er einungis leyfður viss fjöldi gesta í fangelsinu í einu...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.