Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2005, Qupperneq 40
JT1 y ^ t t íl 3 J CO Í! Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrirhvert fréttaskot sem
birtist, eða er notað íDV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar
^wfnleyndar er gætt. QjQ Q Q <Q Q
SKAFTAHUÐ24,10SREYKJAVÍK [ST0FNAÐ1910] SÍMIS50S000 5 690710'íI1117
• Forsvarsmönnum
* Herra íslands
keppninnar er
vandi á höndum.
Hingað til hefur
fallegasti karlinn
verið krýndur af
fallegustu stúlk-
unni, sjálfri Ungfrú ísland. Unn-
ur Bima VUhjálmsdóttir sem nú
ber þann titil verður hins vegar
ekki á landinu þegar keppnin fer
fram, þann 24. nóvember. Ekki
nóg með það heldur verða Ing-
unn Sigurpálsdóttir og Margrét
Elísa Harðardóttir sem voru í
öðru og þriðja sæti einnig í út-
löndum. Allt lítur því út fyrir að
Herra ísland 2004, Páll Júlíus
Kristinsson, verði að ganga í það
kvenlega starf að sjá um krýn-
ingu arftaka síns. Margir bíða
spenntir að sjá hvernig þetta fer
fram, hvort Páll kyssi arftaka
sinn til hamingju að sið feg-
urðardrottninga eða láti sér
nægja karlmannlegt handtak...
Það logarallthjá RÚV!
$
Kastljós, Op og Mósaík brædd
saman Páll blæs í herlúðra
„Vinnutitillinn er Opið hús. Ann-
ars var bara verið að ráða mig. Við
eigum eftir að setjast yfir þetta og
ákveða hvað við viljum gera,“ segir
Logi Bergmann Eiðsson. I gær var til-
kynnt á fundi í Efstaleitinu að til
stæði að leggja Kastljósið
niður sem og unglinga-
þáttinn Ópið og menn-
þeim efnivið stendur svo til að smíða
einn stóran magasínþátt sem Logi
stýrir. Þátturinn verður á dagskrá
Rfldssjónvarpsins frá klukkan 19.40
til 20.40.
Opið hús hjá Páli Logi fer fyrir
hópi reyndra sjónvarpsmanna í
nýjum magasínþætti sem lítur
dagsins Ijós 10.október.
„Já, mánudaga til fimmtudaga.
Föstudagurinn verður svo einfaldari
og sunnudagurinn verður svipaður
og verið hefur," segir Logi. Hann er
afar spenntur að takast á við þetta
verkefni en til stendur að
þátturinn líti dagsins ljós
10. október.
Því er ekki mikill tími til
stefnu en gríðarleg stemn-
ing er innan stofnunarinn-
ar vegna verkefnisins að
sögn Loga. í hópnum
verða Kristján Kristjáns-
son, Sigmar Guðmunds-
son og Eyrún Magnús-
dóttir úr Kastljósinu,
Ragnhildur Steinunn og
Þóra Tómasdóttir úr Óp-
inu og Jónatan Garðars-
son sem hefur haft umsjá
með Mósaflc.
Pródúsentar verða
þeir Egill Eðvarðsson
og Arnar Þórisson.
Ljóst má vera að
Páll Magnússon nýr sjónvarpsstjóri
ætlar að blása í herlúðra. Logi segir
að mikið verði lagt í þáttinn. „Þarna
á að vera pláss fyrir allt mögulegt:
Menningu, pólitík, tónlist, gaman-
mál... bara allt sem þér dettur í hug.
Þátturinn á að koma á óvart á hverj-
um degi. Og heilmikið af flinku fólki
fær góðan tíma í að vanda til verks-
ins."
Logi Bergmann þekkir vel til
slíkrar vinnu frá því að hann var í
magasínþættinum Dagsljósinu fyrir
margt löngu. Hann segist síður en
svo skammast sín fýrir að hafa tekið
þátt í því. „Gott er að geta litið til
þeirrar reynslu og metið hvað var að
virka þar og hvað ekki.“
Aðspurður hvort þetta þýði ekki
að hann sé kominn í bullandi sam-
keppni við konu sína Svanhildi
Hólm, sem starfar hjá samkeppnis-
aðilanum 365 við hliðstæða dag-
skrárgerð, segir Logi: „Ég hef engar
sérstakar áhyggjur af því fremur en
áður."