Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2005, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2005
Fyrst og fremst DV
Útgáfufélag:
365 - prentmiðlar
Rltstjórar:
Jónas Kristjánsson
og MikaelTorfason
Fréttastjóri:
Óskar Hrafn Þorvaldsson
DV: Skaftahlið 24,105 Rvik, sími: 550
5000 Fax: Auglýsingar: 515 7599 -
Ritstjórn: 550 5020 Fréttaskot: 550
5090 Ritstjóm: ritstjorn@dv.is
Auglýsingar auglysingar@dv.is.
Setning og umbrot:
365 - prentmiðlar.
Prentvinnsla: (safoldarprentsmiðja.
Dreifing: Pósthúsið ehf.
dreifing@posthusid.is
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent
efni blaðsins í stafrænu formi og úr
gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
Jónas Kristjánsson heima og að heiman
Margt er það, sem ég veit ek
Þegar ég kom til
landsins I fyrra-
kvöld, las ég, að
háskólakennar-
inn Þorfinnur
Ómarsson segi
alla hafa fyrir
löngu vitað um
náið samband
Styrmis Gunnarssonar, rit-
stjóra Morgunblaðsins, og Jón-
Inu Benediktsdóttur, baráttu-
konu gegn Baugi. Sjálfur kom
ég affjöllum, unztölvupóstur
milli þeirra varð að fréttaefni
hér I blaðinu. Svona get ég ver-
ið utangátta, þótt það sé at-
vinna mín að fýlgjast með frétt-
um. Úti I bæ er hins vegar fullt
af fólki, sem kann enga blaða-
mennsku, en veit samt um lyk-
ilatriði I framvindu mikilvægra
mála I þjóðfélaginu.
Þetta varðar málið
Auðvitað varðar það Baugsmál-
ið, að ritstjóri Morgunblaðsins
og baráttukonan
gegn Baugi hafi
verið (nánu
sambandi.
Það getur
skýrt, hvers
vegna Styrm-
ir Gunnarsson
hefur beitt sér
persónulega af afli I
málinu. Frásögn Morgunblaðs-
ins I fyrradag af fundi hans
með blaöamönnum segir svart
á hvltu, aö f sumum málum
tekur hann að sér fréttastjórn
og heldur öllum þráðum blaðs-
ins I eigin hendi. Þar á meöal I
þessu margrædda Baugsmáli.
Svo er það auðvitað mál blaða-
manna og aðstandenda Morg-
unblaðsins, hvort þeir sætta sig
við þetta. En þeir geta ekki
sagt, að Styrmir standi utan við
málið.
Handstýrðér
Öorgunblaðið er ekki hefð-
bundinn miðill,
heldur stofnun
borðviöþjóö-
kirkjuna. Þar
er biskup, sem
ákveður, aö
ekki sé sagt frá
mikilvægum
fréttum á borö
hótanir Daviðs I garð umboðs-
manns Alþingis. Þar er biskup,
sem ákveður I smæstu atriðum,
hvernig fjallað er um lykilfréttir
á borð við Baugsmál og samráð
oliufélaga. Það kom fram á
fundi hans með starfsfólki rit-
stjórnar. Svo kom (Ijós I frétt f
DV, að hann hefur náinna per-
sónuhagsmuna að gæta, sem
Þorfinnar f þjóðfélaginu hafa
vitað um, en haldið leyndu, af
þvf að þaö er ekki til siðs aö
fjalla um einkamál. Þvf þarf
þjóðin DV.
Jónas Kristjánsson
Elclci verðurþess vart innan lands eða utan, að samtölc blaðamanna
mótmœli meðferð Yalioo á Sji Tao eða lýsi áhyggjum yfir því, að
blaðamenn séu að breytast í blaðurfulltrúa.
Ritskoðuð fjölmiðlun eykst
Kínverski blaðamaðurinn Sji Tao var
nýlega dæmdur í tíu ára fangelsi
fyrir að birta nýjar ritskoðunar-
reglur stjórnvalda á vefnum. Það var
netrisinn Yahoo, sem veitti kínverskum
yfirvöldum upplýsingar, svo að hægt væri
að handtaka manninn. Yahoo er í vasan-
um á harðstjórninni í Kína.
Google er annar netrisi, sem hefur
samið við glæpalýðinn, sem stjórnar Kína
um að sía út óþægilegar upplýsingar. Enn
einn netrisinn er Microsoft, sem hefur
látið sía út vond orð á borð við „lýðræði",
„frelsi" og „mannréttindi". Stjórnvöld í
Kína vilja ekki, að kínverskir notendur
sjái blótsyrði.
Yahoo, Google og Microsoft verða sí-
fellt fyrirferðarmeiri fjölmiðlar í heirnin-
um. Yahoo er meira að segja byrjað að
ráða blaðamenn. Með þessum netfýrir-
tækjum hefur spilling í fjölmiðlum vaxið,
því að þau líta svo á, að vinsamleg sam-
búð við harðstjóra og auglýsendur sé
mikilvægari en siðferði.
Sameiginlega hefur Yahoo, Google og
Microsoft tekizt að loka
hlutum veraldarvefsins fyr-
ir Kínverjum. Hið eftirsótta
frelsi, sem átti að fýlgja
netinu og blogginu, hefur
ekki rætzt í Kína, þótt það
hafi haft jákvæð lýðræðisá-
hrif í Úkraínu, Georgíu,
Kirgistan, Líbanon, Argent-
ínu og Bólivíu.
Forveri risanna þriggja
var Rupert Murdoch, sem
samdi árið 1993 við Kína
um aðgang að sjónvarps-
markaði gegn því að passa
upp á pólitíldna. Ári síðar
tók hann BBC út af
rásinni til að móðga ekki
stjórnvöld. Árið 1997 lét
hann hætta við að gefa
út sjálfsævisögu Chris
Patten, landstjóra Hong
Kong.
Fleiri aðilar en Kína reyna að beita fjöl-
miðla þrýstingi. Til dæmis hafa Morgan
Rupert Murdoch
samdi árið 1993 við Kína
um aögang að sjónvarps-
markaði gegn því að
passa upp á pólitíkina.
Stanley og BP, tóbaksrisar,
flugfélög og bílaframleið-
endur tilkynnt, að taka verði
út auglýsingar þeirra í tölu-
blöðum, sem hafa efni, er
þessum aðilum fellur ekki í
geð. Þetta er bein ritskoðun
eins og hjá Murdoch.
Óbein afleiðing þessara
breytinga er, að fleiri blaða-
menn snúast eins og skopp-
arakringlur umhverfis valda-
mikla aðila í auglýsingum og
pólitík. Þeir reyna að breiða
yfir eymd sína með því að
gagnrýna aðra blaðamenn
fyrir grófa blaðamennsku,
nafn- og myndbirtingar og
fyrir brot á úreltum siðaregl-
um.
Ekki verður þess vart innan lands eða
utan, að samtök blaðamanna mótmæli
meðferð Yahoo á Sji Tao eða lýsi áhyggj-
um yfir því, að blaðamenn séu að breyt-
ast í blaðurfulltrúa.
einstaklingar sem
Morgunblaðið
gæti hjálpað
2. Yrsufellsmæðgmin
Tony og mamma hans
eiga verulega bágt.
5. Ernar Már Knstjánsson
Langt leiddur offltusjúklingur
á biðlista sem er enn lengri.
Manngæska Styrmis leiddi
hann inn i Baugsmalið
6. Ruth Reginalds
Þarf að komast í
upphaflegt form.
3. Regína L. Rist
Heilbrigðisráðherra
lætur henda henni út
af Landakoti um
hverja helgi.
1. Kattakonan
Berst fyrir for-
ræði yfir börn
um sínum og
dýrum.
4. Jóhanna VUhjálmsdóttir
Lifir á tíu þúsund krónum
á mánuði.
TÓBAKIÐ DREPUR. Þess vegna hætta
menn að reykja. Einfaldlega vegna
þess að flestir vilja lifa lengur og eiga
kost á ævikvöldi með sínum nánustu.
Sumir tregðast við undir því yfirskini
að ekkert líf sé eftir fimmtugt. Þeir vita
ekki sem er að lfflð byrjar um fertugt.
Fyrst og fremst
barAttan gegn tóbakinu hefur
gengið vel. Sést best þessa haustdaga
þegar fólk hímir í kulda og trekki fyrir
utan vinnustaði og sogar að sér eitrið.
Fómarlömb ómerkilegrar fíknar.
Flestir vinnustaðir orðnir reyklausir og
röðin komin að veitingahúsunum. Tó-
bakið hefur tapað.
DV ER EINN af þessum vinnustöðum
sem hefur verið á efflr í þróuninni
hvað þetta varðar. Fyrst nú em starfs-
menn þar að hætta að reykja; fimm
árum á eftir öðrum og venjulegri
vinnustöðum. Baráttan hófst 11. sept-
ember; á degi sem aldrei gleymist. Átta
manns strengdu þess heit að hætta að
reykja.
ÞAÐ GEKKILLA. Mikael Torfason rit-
stjóri gafst upp eftir hálfan annan dag.
Var þá nær búinn að kyrkja nýliða á
ritstjóminni. Bergljót Davíðsdóttir
dugði í fjórar klukkustundir en þá var
hún farin að gráta. Jakob Bjamar Grét-
arsson hangir reyndar enn inni með
aðstoð geðveikilyfsins Zyban, tyggj-
andi nikótíntyggjó með nfkótínstaut í
munni. Litlum sögum fer af öðrum.
FRÁHVARFSEINKENNI stórreykinga-
manna em gríðarleg þegar þeir loks
hætta að reykja. Lýsa mætti því sem al-
varlegu þunglyndi með tilheyrandi
áhugaleysi um flest það sem aðra gleð-
ur. Á því öllu má þó ráða bót með
hjálpartækjum sem fáanleg em í öll-
um apótekum. Tóbaksframleiðendur
hafa bmgðist við minnkandi tó-
Mönnum skal þó bent
á heildsöluapótekið
Lyfjaver á Suður-
landsbraut 22 þar
sem nikótínið kostar
30 prósentum minna
en i öðrum apótekum.
baksölu með framleiðslu á nikótín-
skömmtum í ýmsu formi.
FLESTUM HEFUR reynst best að nota
svokallaða nikótínstauta sem hafa
þann kost að menn geta áfram beitt
þeirri handahreyfingu sem fylgir reyk-
ingum og er stór hluti vanans. Þó
mætti hanna plaststautinn betur því
hann er líkari túrtappa en sígarettu. En
það er vandamál framtíðarinnar og
aðeins spuming um hönnun.
Humphrey Bogart Reykti sig í hel langt fyr-
ir aldurfram.Naut fyrir bragðið aldrei þess
ævikvölds sem hans beið og hefði getað orð-
ið toppurinn á annars glæstum ferli.
NÍKÓTÍNSKAMMTARNIR kosta álíka
mikið og sígarettur. Það hlýtur því að
vera sjálfsögð krafa að heilbrigðisyfir-
völd niðurgreiði hjálpartæki þessi. Til
dæmis með þeim peningum sem fara
í almennar tóbaksvamir sem sjaldnast
em í takt við tímann. Mönnum skal þó
bent á heildsöluapótekið Lyfjaver á
Suðurlandsbraut 22 þar sem nikótínið
kostar 30 prósentum minna en í öðr-
um apótekum.
EFTIR STENDUR Þó fíknin í nikótín.
En með henni er vel hægt að lifa því
engar rannsóknir hafa hingað til sýnt
fram á að níkótín sé heilsuspillandi.
Það er reykurinn sem drepur og við
hann þarf að losna.
eir@dv.is
Ásgeir og Logi Völdu
Sölva í landsliðið jafnvel
þótt hann hafi aðeins
spilað tvo leiki með Djur-
gaardens á tímabilinu.
Fazmo-gaur í landsliðinu
Landsliðsþjálfaramir
Ásgeir Sigur-
vinsson og Logi
Ólafsson völdu
í gær landsliðshópinn í knattspymu
fýrir vináttuleikinn gegn Pólverjum í
Varsjá 7. október næstkomandi og
gegn Svíum í Stokkhólmi 12. október
en það er lokaleikur liðsins í und-
ankeppni HM 2006. Ásgeir og Logi
völdu einn nýliða í hópinn, vamar-
manninn Sölva Geir Ottesen, sem
leikur með sænska liðinu Djurgaar-
dens en hann hefur verið lykilmað-
ur í U-21 árs liði fslands
undanfarin ár.
Þetta val Asgeirs og Loga '*•
kemur nokkuð á óvart því að þótt
Sölvi sé afskaplega öfíugur vamar-
maður þá hefur hann a ðeins spilað
tvo leiki fyrir Djurgaardens í sænsku
deildinni á þessu tímabili. Það hjálp-
aði honum heldur ekki að vera bendl-
Sölvi Geir
Ottesen Fulltrúi
Fazmo i íslenska
landsliðinu.
aður við ofbeldisklíkima
Fazmo sem gekkí skrokk
á tveimur mönnum á
Hverfisbarnum í apri1. Sölvi
var viðstaddur en tók ekki þátt í
slagsmálum sjálfur en það var gæfu-
legt íyrir atvirmumarm í þróttum og
fyrirmynd ungra íþróttamanna að
vera béndlaður við félagsskap á borð
við Fazmo.