Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2005, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2005, Blaðsíða 25
FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2005 25 DV Tónlistarkonan Hera Hjartardóttir hefur nú sentfrá sér nýja plötu sem heitir Don't PlayThis. Á næstu mánuðum mun hún fylgja plötunni eftir hérlendis en eftir áramót mun hún haida til Nýja-Sjálands og fylgja plötu sinni eftir. Hera Nógað [ gera hjá Heru þessa dagana. DV-mynd Heiða „Ég er búin að vera á landinu síðan í mars og taka upp plötuna," segir Hera Hjartardóttir sem sendi frá sér sína fimmtu breiðskífu á mánudaginn. Platan ber heitið Don’t Play This og innheldur 10 lög eftir Heru en eitt eftir breskan grunnskólakenn- ara að nafni Brian Bedford. Það lag heitir Wings. „Þetta er lag sem er ekki þekkt en ætti að vera það. Ég heyrði það fyrir löngu og þetta er eitt fallegasta lag sem ég hef heyrt,” segir Hera. Nýirstraumar Lögin á plötu Heru eru sum hver ný en önnur eldri. Það elsta samdi hún þegar hún var fimmtán ára gömul en það er lagið Chocolate sem hefur heyrst á öldum Ijós- vakans að undanförnu. Hera segir að þessi plata sé frábrugðin fyrri plötum sínum. „Ég er að vinna með ný hljóðfæri á þessari plötu, trompet og fiðlu til dæmis. Svo var náttúrulega síðasta platan mín á íslensku en þessi er á ensku,“ segir Hera. Syngur um eigin jarðarför Hera er þekkt fyrir djúpa og innihalds- ríka texta og því leikur blaðamanni forvitni á að vita hver yrkisefni hennar séu á nýju plötunni. „Þetta er bara lífið og tilveran og tilfinningar. Annað hvort líður manni rosa- lega illa eða rosalega vel. Það er til dæmis lag á plötunni sem er um jarðarförina mína og heitir Muddy shoes. Það er sem sagt um jarðarför að hætti víkinga þar sem fólk er grafið með eigum sínum. í dag er þetta svo rosalega mikið af nauðsynjum þannig að sá sem myndi láta grafa sig þannig núna þyrfti að hafa mikið með sér," segir Hera en í lag- inu talar hún um sjónvarp, hægindastól, koffort, GSM-síma og fleiri hluti sem nú- tímamaðurinn þyrfti að reyna að koma fyr- ir í kistunni. Ádeila? „Ádeila? Nei, þetta er bara hugmynd, mér fannst þetta bara fyndið," segir Hera. í fótspor Árna Johnsen Málningin í andliti Heru vekur athygli hvar sem hún fer. Þetta er vandað listaverk sem Hera segist ekki vera nema fimm mín- útur að setja upp. Letrið er afbrigði af ný- sjálenskri stríðsmálningu. Þá er Hera einnig farin að bera veglegt hálsmen. „Þetta hálsmen er tálgað úr paua-skeljum og kallast Taonga. Það er alls konar mein- ing í þessu, ijölskyldan mín er þarna í þessu og þetta á að boða gæfu. Ég er alltaf með þetta. Ef ég er ekki með þetta um háls- inn þá er ég með þetta í vasanum. Stund- um bind ég þetta á hálsinn á gítarnum," segir Hera sem fetar þar með í fótspor Árna Johnsen sem hefur iðulega arnarkló á sín- um gítar. Hera verður hér á landi þangað til í jan- úar en þá kemur plata hennar út á Nýja- Sjálandi. Þangað kemur hún beint inn í sumarhitann úr vetrarkáranum á íslandi. soli@dv.is Hvað gerir þjálfun fyrir þig? „Þegar maður stundar reglu- bundna þjálfun á maður auðveld- ara með að leysa vandamál og er aimennt í betra jafnvægi en ella. Kvíði og þunglyndi eru mjög stór vandamál í dag og hreyfing vinnur á móti því. Og það ekkert lítið. Ég segi að góð andleg og líkamleg heilsa velti á því hvort fólk hreyfir sig eða ekki því þetta helst algjör- lega í hendur," segir Sigurbjörg og gefur Magasín nokkra nytsamar upplýsingar um hvað líkamsrækt getur gert manni margt gott. - Aukið og viðhaldið þyngdartapi - Dregið úrstreitu - Aukið gæði svefns - Bætt meltingu - Aukið sjálfsálit - Aukið mótstöðu gegn sjúkdóm- um - Gert þig orkumeiri - Gert meltinguna betri - Þjálfað upp vöðvana - Lækkað blóðþrýsting - Dregið úr spennu - Dregið úr neikvæðum áhrifum aldurs - Dregið úr tíðaverkjum - Aukið brennslu - Bætt likamsstöðu - Dregið úr bakverkjum - Lækkað hvíldarpúls - Styrkt bein og liði - Styrkt hjartað Hvernig heldurðu þér í formi? fllltaf á leið í ræktina „Ég reyki ekki, drekk ekki og huga vel að því hvað ég set ofan í mig,“ segir Bjarni Arason útvarps- stjóri Bylgjunnar og Létt. Hann seg- ir að hann sé alltaf á leiðinni í rækt- ina aftur eftir allt of langt hlé. Hvernig leggst haustið í þig? „Alveg gríðarlega vel. Nýja plat- an mín fer að koma út og svona,” svarar hann ánægður. „Ég æfi raddböndin og á trompetið eins og er.“ Á leið í ræktina Bjarni Arason útvarpsmaður ogsöngvari. Ólafur Örn Haraldsson er 58 ára í dag. „Blómin reyna ekki að vaxa heldur opna sjálfkrafa blöð sín. Þaðer eðli mannsins sem um ræðir að láta óskir sínar rætast án þess að reyna á nokkurn vöðva líkamans," segir í stjörnuspá hans. Ólafur örn Haraldsson Mnsbemn (20. jan.-18.febr.) Láttu tímann leiða þig áfram. Hvíldu þig og njóttu stundarinnar með þeim sem skipta þig máli. F\SkmiU19.febr.-20.mars) Ekki láta falskar vonir fara með ímynd- unarafl þitt þessa dagana og haltu þig niðri á jörðinni til að koma í veg fyrir vonbrigði. Hi'úturinng;.man-?9.o/)fl;; Stjarna þin birtist kröfu- hörð.draumlynd og tilfinninganæm. Hugaðu að þvl sem gleður þig fyrst og fremst og leyfðu þér að gefa án þess að fara fram á nokkuð I staðinn. Nautið gö. aprfí-20. mal) Fólk fætt undir stjörnu nauts- ins virðist leita að öryggi þessa stund- ina. Mundu orð þessi: Leitin að öryggi er blekking en óvissan býr yfir mögu- leikum fyrir þig. Tvíburarnir g/ .ml-21.júnl) Þú ættir aö taka það rólega og nota útsjónarsemi þfna og nákvæmni I meira mæli. Góöar fréttir berast þér fyrr en síðnar ef þú tileinkar þér að efla að- eins það jákvæða sem býr innra með þér. Krabbinn (22.júni-22.júii)__________ Biddu hjarta þitt um leiðsögn og veldu rétt fyrir sjálfan þig. Opnaðu hjarta þitt fyrir þeim sem sýna þér skilning og virðingu kæri krabbi og finndu hvað það eflir þig þegar þú ákveður að tileinkar þér það. LjÓnÍð (B.jiili-22. ágúst) Jafnvægi einkennir framkomu þína og almenna líðan og þú býrð yflr ótvíræðum hæfileikum þegar kemur að skipulagi og framkvæmdavilja kæra Ijón. Nýttu hæfileika þína til góðverka. Meyjan gj. dgúst-22. sept.) Málin virðast vera (kyrrstöðu þessa dagana þegar stjarna þín er skoðuð en ef þú ert efnalítil/l fyrir munu aðstæður breytast til batnaðar á örskömmum tfma ef þú hugar vel að því sem fram fer (kringum þig. Vogin gi. sept.-23. okt.) Með þvf að taka öllu sem ger- ist á jákvæðan og skapandi hátt þá breytist ábyrgðartilfinning þfn í jákvæð- an hæfileika sem þroskast með þér þegar fram í sækir. Þú ert um það bil að færa allt til betri vegar en þú axlar ef- laust mikla ábyrgð þegar kemur að starfi þínu. Sporðdrekinn 124.okt.-21.n0v.) Lykillinn að velgengni þinni ert þú. Láttu drauma þfna lifna við og minntu þig hvern dag á að vera þú sjálf/ur. Bogmaðurinn (22.n0v.-21.dej Lfkami þinn mun segja þér hvert stefnir því stundum er eins og þú sért ekki viss um að þú sért í raun að eyða tíma þfnum í rétta hluti í Iffinu. Steingeitingzfa-?9.janj Þér er ráðlagt að nýta hæfi- leika þfna til að uppfylla þarfir umhverf- isins. Ræktaðu einnig þá sem skipta þig máli og láttu skoðanir þeirra sem draga þig niður á einhvern hátt ekki hafa áhrif á Ifðan þína. Tími þinn er of verðmætur fyrir leiðindi. SPÁMAÐUR.IS >

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.