Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2005, Blaðsíða 10
7 0 FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2005
Fréttir DV
Kostir Sigríðar eru að hún hef-
ursterka útgeislun og er
dugnaðarforkur.
Helsti galli hennar er að
hún getur verið smámuna-
söm og er með bíladellu.
„Sigga hefur gríðartegan
kraft og útgeislun og hún
er líka hörkudugleg. Hún
hefur reynst mér traustur
vinur ígegnum okkar 15
ára samvinnu, sem stend-
ur enn. Þá er Sigga ein afokkar
bestu söngkonum í poppgeiran-
um. Hennar helsti galli er að
hún er með mikla og ólæknandi
bíladellu."
Grétar Örvarsson tónlistarmadur.
„Sigga er afskaplega
fylgin sér og dugleg og
veit hvað hún vill. Hún fer
langtá vöggugjöfinni
sem erjákvæðni og út-
geislun. Sigga er klár og góður
söngvari en mér finnsthún ekki
alltafhafa valið sér rétta tónlist.
Hún er fylgin sér og hefur gott
viðskiptavit. Hennar helsti galli
er hógværð sem verður til þess
að menn halda að hún hafi ekki
bein I nefinu."
BubbiMorthens tónlistarmaður.
„Sigga er æðisleg, hún er
mjög góð vinkona og
vinnufélagi og þægileg i
umgengni. Helstu kostir
hennar eru heiðarleiki,
dugnaður og vinnusemi. Sigga
er líka mjög skemmtileg og mik-
ill húmoristi. Helstu gallar henn-
ar eru smámunasemi, og svo er
hún mjög heimakær sem verður
til þess að hún hefur lltinn tíma
fyrirvini sína."
María Björk Sverrisdóttir söngkona.
Sigríður María Beinteinsdóttir er fædd 26.
júlí 1962. Hún söng með Stjórninni og hefur
tvisvar verið fulltrúi Islendinga í Eurovision.
Sigga hefur sungið inn á fjölda geisladiska
og ernú einn afdómurunum I Idolinu.
Snæddi með
saksóknara
Siv Friðleifsdóttir al-
þingismaður er nú í
Cascais í Portúgal. Þar sæk-
ir Siv fund efnahagsnefndar
Evrópuráðsins. Samhliða er
haldin ráðstefna í samstarfi
Evrópuráðsins og dóms-
málaráðuneytis Portúgals
um efnahagsbrotastarf-
semi. Sigríður Friðjónsdótt-
ir saksóknari hjá rfldssak-
sóknara er einnig í Cascais.
„Eftir að hafa tékkað okkur
inn á hótelið fengum við
Sigríður okkur kvöldverð í •
verslanamið-
stöðinni
sem er hér
rétthjá,"
skrifar
Siv um
fyrsta
kvöldið á
heima-
síðu
sína.
Ásókn stórfyrirtækja í menntaskólanemendur eykst með hverju árinu. Tilboðum
rignir yfir skólakrakkana sem eru taldir álitlegur markhópur enda fulltrúar
neysluhyggjunnar. Halldóri Armand, ungum nemanda í MH, ofbauð þó ástandið
þegar Síminn bauð nemendum ókeypis á busaball skólans ef nemendur hættu við-
skiptum við OgVodafone.
Síminn bnuð nnmendnm
MH okeypis á busabal
Síminrí** ...ef nemendur hættu viðskiptum við OgVodafone
raNKI ...KB banki tókþáttí leiknum og bauð veglegan afslátt
K .rektorMH geðjast ekki að slíkum vinnubrðgðum
m
Halldór Armand Ásgeirsson, nemandi í MH, segir að nemenda-
félögum skólanna sé mútað með geysilegum fjármunum frá
stórfyrirtækjum í formi styrkja. Á busaballi skólans bauð Síminn
nemendum ókeypis á bailið ef þeir hættu viðskiptum við
OgVodafone og kæmu yfir til þeirra. Rektor MH segist ekki
kunna við slíka starfshætti.
Halldór Armand er ritstjóri vefs-
ins dindill.is sem virðist vettvangur
róttækra menntaskólanema til að
koma skoðunum sínum á framfæri.
í grein sinni segir Halldór að á
busaballi skólans hafl nemendum
verið boðnir ódýrari miðar á ballið
ef þeir fengu sér kort hjá KB banka.
Starfsmenn bankans hafi verið á
staðnum, tilbúnir að skrá krakkana
til viðskipta. Halldór segir einnig að
Síminn hafi boðið nemendum 500
króna afslátt ef nemendur væru í
viðskiptum við þá.
Boðið á busaballið
„Toppinum var þó ekki náð.
Skyndiiega ákvað Síminn að bjóða
nemendum á ballið ef það skipti úr
OgVodafone yfir í Símann," segir
Halldór í grein sinni og telur þetta
augljósa mismunun á nemendum
skólans. Þannig birtust auglýsingar
skólanum þar sem Síminn „bauð"
nemendum á busaballið. Þeir sem
höfðu þegar keypt sér miða gátu
fengið hann endurgreiddan hjá Sím-
anum ef þeir hættu hjá OgVodafone
og færðu viðskipti til Símans.
„Það á ekki að koma niður á
nemendum við hvaða banka þeir
kjósa að eiga viðskipti sín eða síma-
fýrirtæki. Markaður er markaður og
skóli er skóli. Þetta er menntastofn-
un, fjandinn hafi það! Þetta eru líka
Lárus H. Bjarnason rektor
Játar þvlaö ásókn stórfyrirtækja I
nemendur skólans sé mikil._____
Halldór Armand Ásgeirsson
nemandi (MH „Þetta eru líka
svlviröilegir starfshættir; kúga
fátæka námsmenn Iþágu eigin
hagsmuna."
svívirðilegir starfshættir; kúga fá-
tæka námsmenn í þágu eigin hags-
muna," segir Halldór.
Geðjast ekki að þessu
Lárus H. Bjarnason, rektor
Menntaskólans í Hamrahlíð, segir
skólann almennt reyna að spyrna
við fótum til að hann verði ekki eitt
allsherjarmarkaðstorg. „Við leyfum
ekki fyrirtækjum að koma inn nema
í undantekningartilfellum, ef það
gerist reynum við að gæta jafnræðis.
Annaðhvort koma allir eða enginn."
Spurður út í hið höfðinglega boð
Símans þar sem nemendur fengu
ókeypis á ballið færðu þeir viðskipt-
in yfir til þeirra segist Lárus ekki hafa
verið kunnugt um það. „Þetta kemur
„Það á ekki að koma
niður á nemendum við
hvaða banka þeir
kjósa að eiga viðskipti
sín eða símafyrirtæki"
mér á óvart en mér geðjast ekki að
þessu. Annars þori ég lftið að tjá mig
um það þar til ég fæ nánari upplýs-
ingar."
simon@dv.is
Nesjavellir Ljósleiö■
arinn aö virkjuninni
gæti síöar tengst
G rimsnesveitu.
Helgi Pétursson Löngu
tímabært aö bæta fjar-
skiptasambandiö við kerfis■
stjórnina i Reykjavík.
Fjarskipti bætt við Nesjavelli
Ljósleiðari á 25 milljónir
„Orkuveitan hefur í hyggju að
bæta fjarskiptasamband við Nesja-
vallavirkjun, sem er löngu tímabært,"
segir Helgi Pétursson, verkefnisstjóri
hjá Orkuveitu Reykjavíkur, um lagn-
ingu ljósleiðara fyrir fyrirtækið frá
Þingvallavegi að Nesjavallavirkjun.
„Virkjunin verður stækkuð til
muna með gangsetningu ijórðu vél-
arinnar á laugardaginn kemur og þörf
er á mun betra sambandi við kerfis-
stjóm Orkuveitunnar hér á Bæjar-
hálsi. Þá er gert ráð fyrir að strengur-
inn geti orðið þáttur í tengingu áfram
í Grímsnesveitu þegar síðar verður,"
segir Helgi.
Samkvæmt upplýsingum er áætl-
aður kostnaður vegna framkvæmdar-
innar við ljósleiðarann um 25 milljón-
ir króna.
Bolli Thoroddsen endurkjörinn formaður
Ólýsanleg tilfinning
Á aðalfundi Heimdallar á þriðju-
daginn var Bolli Thoroddsen kosinn
formaður annað árið í röð. Fundur-
inn var sá stærsti í sögu Heimdallar.
Yfir þúsund manns greiddu atkvæði
og eftir stormasaman aðalfund stóð
Bolli að lokum uppi sem sigurvegari.
„Jú, þetta var ólýsanleg tilfinn-
ing," segir Bolli og bætir við í ögn
gamansömum tóm. „Ég var þegar
búinn að semja tapræðuna en sem
betur fer þurfti ég ekki að grípa til
hennar."
Eftir fundinn fögnuðu stuðnings-
menn Bolla á skemmstaðnum
Pravda fram eftir nóttu. Gleðin var
ósvikin enda sigurinn stór. Fram-
boðslisti Bolla fékk 10 stjórnarmenn
kosna á móti einum af lista and-
stæðinga þeirra sem Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson laganemi leiddi. Það
mátti heyra á Bolla í gær að gærdag-
urinn hefði tekið á. „Ég er alveg bú-
inn. Nú þarf maður að safna orku til
að takast á við næstu verkefni."
Og miðað við uppganginn f
Heimdalli verða þau verkefni ekki af
smærra taginu. Félagafjöldinn
margfaldaðist í kosninga-
baráttunni og eru nú
7000 manns skráðir
í Heimdall. „Maður
getur ekki verið
annað en sáttur,"
segir Bolli. „Það var
hart barist milli
manna en á endanum
er það félagið sem
skiptir máli."