Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2005, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2005, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDACUR 29. SEPTEMBER 2005 Menning DV Eggert verðlaunaður Eggert Pétursson myndlistar- maður tók í gær við Camegie Art Award-verðlaun- um frá Sonju Noregsdrottn- ingu við at- höfn í Henie Onstad-list- miðstöðinni. Eggert vom veitt önn- ur verðlaun að upphæð 600.000 sænskar krónur. Við sömu at- höfn vígði drottningin sýningu tuttugu og eins norræns lista- manns sem valdir vom af sex manna dómnefnd. Meðal dóm- nefndarmeðlima er Halldór Björn Runólfsson frá Listaaka- demíunni í Reykjavík. Sýningin verður sett upp í Listasafni Reykjavíkur í júní á næsta ári. Frumsýnið okkur í kvöld fmmsýnir Borgarleik- húsið, í samvinnu við leikhóp- inn Common Nonsense og Nemendaleikhús LHÍ, leikverkið Forðist okkur sem byggt er á teiknimyndasögum Hugleiks Dagssonar. Leikstjórar em Stef- án Jónsson og Ólöf Ingólfsdóttir. Hugleikur hefur gefið út þrjár teiknimyndabæk- ur á jafnmörg- um árum og í síðustu viku kom út heildarsafn verkanna þriggja. Síðar á árinu er fjórða bók Hugleiks væntanleg. Vinjettuhátíð í Lækjargötu á laugardaginn Ármann hvílir þjóðina á Baugsmálinu „Þetta verður hvild frá Baugsmál- inu. Ekki veitir af," segir rithöfundur- inn, skáldið og athafnamaðurinn Ár- mann Reynisson sem gengst fyrir Vinjettuhátíð í bókabúðinni Iðu í Lækjargötu í Reykjavík á laugardaginn. Ármann hefur þegar gefið út fimm vinjettubækur en það em örsögur um almenn fyrirbæri eins og þau velkjast um í höfði Ármanns. Hafa þær fengið góða dóma og enn betri viðtökur hjá unnendum skáldskapar. „Ég hef fengið landsfræga einstak- linga til að lesa vinjettur mínar í þess- ari Baugshvíld og má þar nefna Stein- unni Valdísi borgarstjóra og Egil Ólafs- son stórsöngvára," segir Ármann sem á árum áður var einn umsvifamesti fjárafla- maður landsins en sneri sér að bók- menntum eftir fall fýrirtæk- is síns, Ávöxtunar, sem var fyrsta verðbréfa- fýrirtækið á ís- landi sem eitthvað kvað að. Vinjettuhátíðin í Lækjargötu hefst klukkan eitt á laugardaginn og stendur til klukkan fimm. Þar býður Ármann upp á kirsuberjalíkjör, rósa- vínskynningu, harm- onikkuleik auk þess sem íslenski lfkjör- inn Haustsól frá Húsavík verður sérstak- lega kynntur. Árm Býðu Baug Um helgina munu ferskir vindar næða um fætur dansáhugafólks í Sporthúsinu því nokkrir af fremstu danshöfundum heims eru þangað mættir til að halda námskeið Dansarinn Sigrún Birna Blomsterberg hefur ferðast um heiminn og sótt dansnámskeið hjá þekktum danshöfundum. Sigrúnu finnst ýmislegt ábótavant í danskennslu á íslandi og þess vegna ætlar hún að standa fyrir námskeiði í Sporthúsinu um helgina þar sem nokkrir þessara höfunda munu kenna dansþyrstum. „Ég er búin að ferðast víða um heim og sækja dansnámskeið. Ég fór fyrst til Los Angeles í október á síð- asta ári og sótti námskeið í Milleni- um-dansverinu í Hollywood og þar kynntist ég hópi dansara sem kallar sig Dance2xs en hópurinn er með starfsemi víða um heim," segir Sig- rún sem fór í framhaldinu til London og sótti sambærileg námskeið þar sem hún drakk í sig nýja strauma og kynntist fleiri dönsurum. „í London kynntist ég dansara að nafni Sisco Gomez og fór í framhaldinu með honum og öðrum dönsurum á flakk um heiminn þar sem við sóttum enn fleiri námskeið." Áhugasöm um íslenska dans- menningu „í sumar ákvað ég svo að flytja aftur til Los Angeles og læra meira auk þess sem ég ákvað að setja að- eins meiri hörku í þetta, útbjó möppu og sótti inntökuprufur. Ég var svo í sambandi við Dance2xs og frétti af námskeiði sem þau voru með í Portúgal þar sem saman voru komnir mjög hæfir kennarar frá öll- um heimshornum," segir Sigrún sem fór til Portúgals með hópnum en þar kviknaði sú hugmynd að dansararnir kæmu hingað til lands og héldu sambærilegt námskeið. „Þau voru mjög til I það enda hafa þau mikinn áhuga á því sem er að gerast hér á landi og finnst það ansi framandi," segir Sigrún. Fleiri æfingar „Fyrirkomulagið hér á landi er þannig að oftast eru bara tveir tímar í viku í boði og maður er alltaf að dansa með sama hópnum. Það segir sig sjálft að kennslan er of lítil hér á landi og ekki nógu fjölbreytt," segir Sigrún sem.vill sjá íslenska dans- menningu á æðra plani. „Fyrsta skrefið er að hafa opnari og tíðari námskeið því ef þú ætlar að vera virkur dansari þá þarftu mikla æf- ingu.". Hvetur stráka til að mæta Sigrún segir námskeiðið í Sport- húsinu um helgina vera opið öllum þeim sem hafa áhuga á dansi og hvetur hún stráka eindregið til að mæta. Námskeiðið er frá föstudegi til sunnudags en á lokadeginum er markmiðið að hafa upprifjun og dansa til síðasta manns. Jazzhátíð Reykjavíkur hófst í gær og stendur fram á sunnudag með þéttri tónleikadagskrá Jazz í Reykjavík Fimmtudaaur Kaffi Reykjavfk - kl. 20.30 Miðaverð: 1.800,- „Be bop septett Óskars Guðjónssonar" Óskar Guðjónsson og Ólafur Jónsson ten- órsaxófónar, Jón Páll Bjarnason og Ómar Guðjónsson gítararjóhann Ásmundsson bassi, Pétur Grétarsson slagverk og Matthf- as Hemstock trommur. Þjóðleikhúskjallari - kl. 22.30 Miðaverð: 1.500,- „Karmelgebach" Róbert Reynisson gltar, Tobias Schirrer sax, Noko Meinhold, Eirlkur Orri Ólafsson trompet og Helgi Svavar Helgason trommur. Þjóðieikhúskjallari - kl. 00-01 Miðaverð: 1.800,- „Koko“ Japanski vibrófónleikarinn Taiko Saito og þýski planóleikarinn Niko Meinhold. Póstbarinn og Kaffi Reykjavík - kl. 00- 02 Miðaverð: 1.000,- á báða klúbba „2 jazzklúbbar“ Hljómsveitir kynntar slðar Föstudaaur Hótel Saga - kl. 20.30 Miðaverð: 3.000,- „Guðmundarvaka - Jazzvakning 30 ára“ Bandarlskiplanóleikarinn Jon Weber og hollenski planóleikarinn Hans Kwakkernaat leika lög Guðmundar Ingólfssonar ásamt Birni Thoroddsen á gftar, Gunnari Hrafns- syni á bassa og Guðmundi Steingrlmssyni á trommur. Danski planóleikarinn Arne Forchhammer leikur að tilefni hljómdisks sem kemur útum þessar mundir. Kaffi Reykjavík - kl. 22.30 Miðaverð: 1.800,- „M & M kvartettinn + 3 gestir" Róbert Þórhallsson bassa, Kjartan Valde- marsson píanó, Ásgeir J. Ásgeirsson gltar, Ólafur Hólm trommur, Kjartan Guðnason slagverk og söngvararnir Kristjana Stefáns- dóttir og Glsli Magnason. Jazzhátíð Reykjavíkur var sett í gær með viðhöfti í Ráðhús- inu og tónleikum í kjölfarið. Hátíðin heldur ótrauð áfram fram á sunnudag með þéttu tónleikaprógrammi alla dagana. Jazzhátíð Reykjavíkur er mikilvæg vítamínsprauta í íslenskt tónlistarlíf og ættu djassunnendur og annað tónlistaráhugafólk að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í fjölbreyttri dagskránni. Kaffi Reykjavík - á miðnætti Miðaverð: 1.500,- „Rodent á Jazzhátíð 2005" Haukur Gröndal altó sax.Jakko Hakala trompet, Lars Thormod Jenset bassa og Helgi Svavar Helgason trommur. Kaffi Reykjavfk, Hótel Borg og Póst- barinn - kl. 00-02 - Miðaverð: 1.000,- á alla þrjá klúbba „3 jazzklúbbar" Hljómsveitir kynntar slðar. Lauaardaaur Hótel Borg - kl. 12-14 Miðaverð: 2.500,- m. brunch „Jazz Brunch - Inga Eydal" Inga Eydal söngur, Gunnar Gunnarsson pl- anó, Jón Rafnsson bassa og Benedikt Brynj- ólfsson trommur. NASA - kl. 16-18 - Miðaverð: 1.500,- „Stórsveit Reykjavfkur - Söngbók Duke Ellingtons" Stórsveitin undirstjórn danska pianóleikarans og stjórnand- ans Ole Kock Hansen. NASA - kl. 20.30 - „Kenny Garrett Kvartett" - Miðaverð: 3.500,- Stórtónleikar bandarlska saxófónmeistar- ans Kenny Garrett með Carlos McKinney á pfanó, Ronald Bruner trommur og Kristoph- er Funn á bassa. Kaffi Reykjavfk - kl. 22.30 Miðaverð: 1.800,- „Tóneyra MEGASAR" Póstberarnir, Ólafur Stolzenwald bassa, Agnar Már Magnússon planó, Andrés Þór Gunnlaugsson, gltar, Eyjólfur Þorleifsson tenór sax og Erik Qvick trommur leika valin verk eftir MEGASI djassútsetningum þeirra félaga. Kaffi Reykjavfk, Hótel Borg og Póst- barinn - kl. 00-02- Miðaverð: 1.000,- á alla þrjá klúbbana „3 jazzklúbbar" Hljómsveitir kynntar siöar. Sunnudaaur Dúndrandi djass Frá Jazz- hátið i Reykjavik i hittifyrra. Langholtskirkja - kl. 17 Miðaverð: 2.500,- „Helgisöngvar Ellingtons" Langholtskórinn ásamt Stórsveit Reykjavík- ur og Kristjönu Stefánsdóttir undirstjórn Ole Kock Hansens og Jóns Stefánssonar syngja og leika helgisöngva Duke Ell- ingtons. Kaffi Reykjavfk - kl. 20.30 - Miðaverð: 1.500,- „Lokatónleikar 2005 - Oktett Ragnheiðar Gröndal“ Haukur Gröndal klarinett/sax, Jóel Pálsson sax, Sigurður Flosason sax, Ólafur Jónsson sax, Ásgeir J. Ásgeirsson gitar, Graig Earle bassa og Erik Qvick trommur með glænýtt prógram.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.