Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2005, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2005, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2005 Fréttir DV Stefnir í Svan- dísarsigur Allar líkur eru á því að Svandís Svavarsdóttir nái kjöri í efsta sæti lista Vinstri grænna fyrir borgarstjórn- arkosningarnar í Reykjavík þegar forval flokksins fer fram næstkomandi laugar- dag. Jafnframt er búist við því að Arni Þór Sigurðsson, núverandi borgarfulltrúi R- listans, nái kjöri í annað sæti listans. Alls gefa tíu frambjóðendur kost á sér og hefur verið gefinn út bæklingur þar sem þeir gera grein fyrir sér og bar- áttumálum sínum. Sam- kvæmt nýlegri Gallupkönn- un fá Vinstri grænir tvo menn kjörna í borgarstjóm. Meira flutt inn Samkvæmt saman- tekt Hagstofúnnar, sem birt var í gær, voru vömr fluttar inn fyrir 25,9 milljarða króna í ágúst, en út fyrir 14,2 milljarða. VömskiptahaJlinn var því 11,8 milljarðar, sem er tvöfalt meira en á sama tíma í fyrra, og hef- ur ekki verið meiri síðan í ágúst 1995. Verðmæti sjávarafurða nam 59% af heildarverðmæti útflutn- ings sem er um 4% meira en árið áður. Aukning í innflutningi er að mestu rakin til fólks- bfla, hrá- og rekstrarvöru og neysluvöm. Hrottará Húsavík Tveir nítján ára piltar bíða nú dóms hjá Héraðs- dómi Norðurlands eystra fyrir meinta lflcamsárás. Samkvæmt ákæru sýslu- mannsins á Húsavík réðust piltarnir í janúar 2004 að manni einum framan við veitingahús í sýslunni. Þeir eru sagðir hafa hrint mann- inum aftur fyrir sig og sleg- ið hann hnefahöggi þannig að hann féll í jörðina. Síðan hafi þeir sparkað í höfuð hans. Maðurinn hlaut skurð á augabrún og meiddist á olnboga. Því hafi fylgt aflleysi og dofi í hendi. Ævar Örn Guðjónsson vann hug og hjörtu kvenna í fyrsta þætti íslenska bachelorsins. Ævar Örn er dæmdur dópsali sem býr í lítilli blokkaríbúð í Kópa- vogi. Hurðin á heimili Ævars er brotin eftir afskipti lögreglunnar af villtu partíi. Ævar Örn segist hafa snúið við blaðinu. —________ Ævar Örn Guð- jónsson Keppirum kvenhylli i íslenska bachelornum. Ævar Örn Guðjónsson, þátttakandi í leitinni að íslenska bachelomum, er dæmdur fíkniefnasali. f vetur sparkaði lögregl- an upp hurð á heimili Ævars Arnar í Engihjalla þegar villt partý fór úr böndunum. Ævar keppir nú um kvenhylli á sjónvarps- skjánum. „Ég bjóst nú aldrei við að komast í sjónvarpið," segirÆvar öm, sem birt- ist þjóðinni á skjánum fyrir viku síðan í þættinum Leitin að íslenska bachelomum. Ævar Öm er dæmdur ffkniefnasali frá því á árinu 1999. í desember í fyrra sparkaði lögreglan upp hurð á heimili hans eftir að villt pam' fór úr böndun- um. Atvinnulaus Ævar Öm býr í blokkaríbúð í Engi- hjalla. í fyrsta bachelor-þættinum veir Ævar spurður út í atvinnu sína. Hann sagði orðrétt: „Ég er nú á milli vinna núna en er að starfa fyrir bróður minn og var að vinna þar fyrir nokkrum ámm síðan." í sama þætti sagðistÆvar elska dýr út af lífinu. Þegar ljósmyndari DV tók myndir af brotinni hurðinni á heimili hans í Engihjallanum mátti einmitt heyra í geltandi hundum fyrir innan. „Jú, lögreglan kom á staðinn til að stöðva helvíti villtpartí. En síðan braut ég upp hurðina. Það er víst." Kemuraf fjöllum Magnús Ragnarsson, fram- kvæmdastjóri Skjás eins, segir málið honum algjörlega ókunnugt. Þegar keppendur skrái sig til leiks í þættin- um sé lagður fyrir þá spumingalisti með stöðluðum spumingum frá eig- endum þáttanna. „Saga film hefur framleitt þetta fyrir okkur og ég kem algjörlega af fjöllum," segir Magnús og spurður hvort þessar upplýsingar breyti ein- hverju segir hann þættina unna fram í tímann. „Það verður allavega engu breytt á punktinum." •. Átti að vera grín „Þetta var nú bara hálfgert grín," segir Ævar Öm. „Bróðir minn skráði mig í þáttinn og gabbaði mig til að fara niður á Hótel Nordica. Þar skrif- aði ég nafnið mitt á eitthvert blað og var svo leiddur inn í stúdíó og nú er maður kominn í sjónvarpið." Um sex ár em síðan Ævar Öm var dæmdur í Héraðsdómi Reykjavflcur fyrir að selja hass og amfetamín. Hann segist í dag hafa snúið við blað- inu. Snúið við blaðinu „Ég lifi mjög góðu og heilbrigðu lífi í dag og vona að þessar gömlu syndir verði mér ekki að falli," segirÆvar. Síbrotamaðurinn Trausti Finnbogason dæmdur enn einu sinni Þriðji fangelsisdómurinn á árinu Spúrður út í bromu hurðina segist Ævar sjálfur hafa brotið hana þegar hann læsti sig úti. Lögreglan hafi alls ekki komið á staðinn. En eftir að DV heyrði í fjölmörgum nágrönnum Æv- ars sem staðhæfðu að lögreglan hefði verið að verki í desember þegar hurð- in var brotin breyttiÆvar sögunni: „Jú, lögreglan kom á staðinn til að stöðva helvíti villt partí. En síðan braut ég sjálfur upp hurðina. Það er víst." simon@dv.is SÍF olli Á þriðjudaginn var síbrota- og kynferðisbrotamaðurinn Trausti Finnbogason dæmdur í tveggja mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir þjófnað. Þann íjórða mars á þessu ári braust Trausti inn í bifreið við Skemmuveg í Kópavogi og stal Sony-kvikmynda- tökuvél að verðmæti hundrað þús- und krónur. Trausti játaði þjófnað- inn skýlaust en með brotinu var Trausti að brjóta skilorð. Fyrr í mánuðinum var Trausti Hvaö liggur á? dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir hrottafengna árás á mann sem hann hugðist ræna. Trausti lamdi manninn ítrekað í höfuðið með trékylfu og hætti ekki fyrr en ná- granni varð var við árásina. Þar að auki var Trausti dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrr á árinu fyr- ir kynferðisbrot. Alls hefur Trausti því verið dæmdur í fangelsi í fimm ár og sjö mánuði á þessu ári í þremur mismunandi dómum. Trausti mætti ekki við dómsupp- kvaðningu á þriðjudaginn enda sit- „Það liggur á hjá mér að finna mér vinnu," segir Atli F. Bjarkason, söngvari hljóm- sveitarinnar Flölt hóra.„Ég er að hætta í vinnunni minni núna um mánaðamótin og er að flytja frá Selfossi í bæinn. Ég er að leita mér að nýrri vinnu til aö geta hafið nýtt lífi höfuðborginni. Svo erum við líka á fullu að æfa fyrir Airwaves og viö lofum ótrú- legum tónieikum þar." Síbrotamaður Trausti hefur nú hlotið þrjá fangelsisdóma á árinu. Hann situr núá Litla- Hrauni. ur hann nú á Litla-Hrauni. Alls hef- ur Trausti nú hlotið sjö refsidóma fýrir þjófnað, fíkniefnabrot, kyn- ferðisbrot og rán. Auk þess hefur hann gengist undir þrjár lögreglu- stjórasáttir fyrir fíkniefna- og um- ferðalagabrot. vonbrigðum Greiningardeild KB banka seg- ir afkomu SÍF á öðrum ársfjórð- ungi valda vonbrigðum þrátt fyrir mikinn söluhagnað. Hagnaður fé- lagsins nam um 2,5 milljónum króna. Spár deildarinnar gerðu ráð fyrir tæplega 460 milljóna króna hagnaði. f lok mars gerði SÍF ráð fyrir hagnaði upp á 540 milljónir og telur greiningardeild- in með ólfldndum að félagið hafi ekld sent ffá sér afkomuviðvörun, „enda er uppgjörið úr öllum takti við uppgefnar áætlanir félagsins," segir í fréttum greiningardeildar KB banka. Gengi hlutabréfa í SÍF lækkaði um 3,6% í gær vegna nið- urstöðu uppgjörsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.