Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2005, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2005, Síða 16
J 6 FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2005 Sport DV bestu leikmenn Landsbanka- deildar karla sumarið 2005 1. sæti Allan Borgvardt, sóknarmaður FH Leit lengi vel út fyrir að spila í skugga Tryggva Guðmundssonar í sumar. Hann aftur á móti þreifst á samkeppninni, bætti leik sinn stöðugt og var fljótlega byrjaður að fara á kostum. Hefur átt frábær ár á íslandi en hans bestu taktar í íslenska boltanum komu líklega í sumar. Frábær leikmaður sem söknuður er að úr íslenska boltanum. 2. sæti Auðun Helgason, miðvörður FH Steig nánast fullskapaður inn í vöm FH sem fékk varla mark á sig framan af móti. Tók við leiðtogahlutverkinu af Tommy í vörninni og skoraði þar að auki fimm falleg mörk og komst í landsliðið. 3. sætiTryggvi Guðmundsson, sóknarmaður FH Kom sem stormsveipur inn í íslenska boltann og raðaði inn mörkum í upphafi mótsins. Margir spáðu því að hann myndi slá markametið en það dró aðeins af honum um tíma. 16 mörk í 17 leúcjum er samt stórbrotinn árangur. Tryggvi var einnig óhemjuskemmtilegur á vellinum og fslensk knattspyma er ríkari á meðan hann spilar í Lands- ^ bankadeildinni. 4. sæti Sinisa Valdimar Kekic, varnar-, miðju- og sóknarmaður Grindavíkur Þessi stórkostlegi leikmaður virðist ekki getað spilað slæman leik og enn eina ferðina bar hann Grindavík á herðum sínum í fjölmörgum leikjum. Einstakur knattspyrnumaður og fyrir- myndarfþróttamaður sem margir geta lært af. 5. sæti Fjalar Þorgeirsson, markvörður Þróttar Brjálað að gera hjá honum í allt sumar og hann verður ekki sakaður um að Þróttur féll. Varði eins og berserkur og hélt sínum mönnum á floti í fjölda leikja en það dugði ekki til. 6. sæti Guðmundur Benediktsson, sóknarmaður Vals Endurfæddist í rauða búningnum í sumar og var algjör lykilmaður hjá spútnikliði Vals. Liðið hefði aldrei náð þessum árangri án framlags Guðmundar sem var potturinn og pannan í sóknarleik liðsins. 7. sæti Gunnlaugur Jónsson, miðvörður ÍA Enn og aftur gott tímabil hjá Gunnlaugi. Batt saman Skagavömina og var leiðtogi liðs sem hafði gengið í gegnum miklar breytingar. Barði liðið vel saman ásamt Ólafi þjálfara og ÍA var eitt besta liðið í seinni umferðinni. 9. sæti Helgi Valur Daníelsson, miðjumaður Fylkis Lék eins og hershöfðingi í mörgum leikjum en hvarf algjörlega þess á milli. Vantar stöðugleika, rétt eins og Fylki, en árangur Fylkis í sumar er að mörgu leyti honum að þakka. 10. sæti Grétar Sigfinnur Sigurðsson, miðvörður Vals Miðvörðurinn með mörgu hjörtun náði einstaklega vel saman með Atía Sveini í vörn Vals og þeir félagar eiga stóran þátt í gengi Vals í sum- ar. Var óvenjurólegur fyrir fiaman mark andstæðinganna. 8. sætí Freyr Bjarnason og Guðmundur Sævarsson, bakvarðapar FH Eitt besta bakvarðapar í sögu íslandsmótsins. Þeir félagar eiga nær alltaf góðan leik og mistökin sem þeir gera má oftar en ekki telja á fingrum annarrar handar. Lykilmenn í liði íslandsmeistaranna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.