Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2005, Side 24
24 FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2005
DV
Sigurbjörg Bergsdóttir útskrifaðist í vor frá Háskóla íslands með BA-próf í stjórnmálafræði. Nú starfar hún sem ráðgjafi hjá Hreyfingu
en starf hennar felst í því að taka vel á móti fólki og hjálpa því að komast af stað í líkamsræktinni.
RHEAD
i'ESS
einu
„Mikilvægt er að
* oma reglulega að
reyfa sig. Það er ekki
rétta iausnin að um-
breyta öllu lífi sínu í
PWI »OQl OQIUll lovoi
Sigurbjörg
Bergsdóttir Sigur
björg er líkams-
rxktarráðgjafí I
Hreyfingu.
Framkvaema „Láta verk-
in tala, það er best þegar
fólk er að takast á við
nýja hluti, ekki velta sér of
mikið upp úr þeim."
Sitjum ekki auðum hfindum
fúrrn j rráw:
„Ég er til taks fyrir fólkið á meðan það er
að æfa hjá okkur, aðstoða það við ailt sem
það er að glíma við. Að byija í ræktinni, hjálpa
því að finna réttan einkaþjálfara, gefa þeim
ráð og vera til staðar. Mörgum finnst gott að
vita af mér ef eitthvað er að. Það er líka svo
gaman að fylgjast með fólki koma inn á stöð-
ina og ná árangri og dafna hjá okkur," segir
Sigurbjörg Bergsdóttir, ráðgjafi hjá Hreyf-
ingu.
Haustið kallar á hraustleika
Nú er haustið gengið í garð og margir að
fara af stað í heilsuátak.
Áttu nokkui ráð fyrir fólk sem á erfítt með
að koma sér afstað?
„Besta og eina ráðið sem virkar fyrir þá
sem eiga erfitt með að byrja er að ákveða
hvaða daga þú ætlar að æfa og klukkan hvað.
Það að skipuleggja æfingatímann er grunnur-
inn að góðum árangri. Þeir sem kaupa kort og
hafa ekki skipulagðan æfingatíma eiga það til
að heltast úr lestinni og allt í einu eru liðnar 3
vikur og þú ert ekki enn mættur í ræktina.
Annað gott ráð er að fá sér einkaþjálfara, það
er mikið aðhald og stuðningur í því,“ segir
Sigurbjörg. „Það er best að hugsa sem minnst
um að þú sért að byija að æfa, ekki mikla
hlutina fyrir þér heldur bara láta slag standa
og mæta. Láta verkin tala, það er best þegar
fólk er að takast á við nýja hluti, ekki velta sér
of mikið upp úr þeim.“
Mataræði er
mikilvægt
„Best er að
borða í litlum
skömmtum á 2-3
tíma frestí og hafa
það fyrir reglu að
borða vel á morgn-
ana og í hádeginu.
Annað jafn mikil-
vægt er vatnið, það
baðar okkur að
innan og er jafn
nauðsynlegt og
sturtan sem við
förum í eftir æf-
ingu. Ef fólk er að
hugsa um að létt-
ast er mikilvægt að
borða ekki eftir kl.
20.00 á kvöldin
en fá sér
kannski te, vatn
eða einn ávöxt.
Mataræði er
mjög mikilvægt
þegar fólk er að
hreyfa sig.
Grunnurinn að
góðri heilsu er
gott mataræði.
Gott mataræði
þarf ekki að
vera flókið."
Ein lausn ekki til
„Mikilvægt er að koma reglulega að
hreyfa sig. Það er ekki rétta lausnin að um-
breyta öllu lífi sínu í einu, best er að byrja að
æfa, finna daga og tíma og fara svo að huga
að mataræðinu og byrja rólega að breyta um
lífsstfl, taka smám saman út það óholla og
fituríka og neyta hollari og fituminni fæðu í
staðinn. Annað sem ég ráðlegg öllum sem
vilja grennast er að sjóða sér vatn á kvöldin
og morgnana, láta það kólna og kreysta síð-
an sítrónu út í. Þetta er ódýrt en hreinsar
ristilinn og losar um gamlar matarleifar
þannig að öll upptaka næringarefna verður
betri," segir hún og bætir við: „Svo er líka
fullt af C-vítamíni í sítrónu."
Nammidagar
„Það hentar mörgum að hafa einn
nammidag," útskýrir Sigurbjörg. „Þá hefur
maður eitthvað að hlakka til. Svo er það nýja
franska æðið, þriggja bita reglan, hún er fín
Einfalt „Grunnurinn að
góðri heiisu ergott
mataræði. Gott matar-
æði þarfekki að vera
flókið."
DV-mynd GVA
fyrir þá sem vilja ekki vera bara með einn
nammidag í viku. Þetta snýst um skammta-
stærðina, þá borðar þú allt sem þig langar í en
hugsar um skammtinn, ekki borða allt
súkkulaðistykkið eða snakkpokann. Andleg
og iíkamleg heilsa helst aigjörlega í hendur."
Lykilatriði í ræktinni
,Aðalatriðið er að hugsa vel um heilsuna
og þennan eina líkama sem maður á, stunda
reglulegar styrktaræfingar og þjálfa hjarta- og
æðakerfið, hugsa jákvætt og vera sáttur við
sjálfan sig. Það væri nú lítið gaman ef við vær-
um öll steypt í sama mótið," segir þessi fal-
lega kona geislandi af ferskleika og jákvæðni.
Mæta og aftur mæta í ræktina. Það að mæta,
drekka vatn, borða á tveggja til þriggja tíma
fresti, sofa nóg og vera jákvæður. Þetta eru
lykilatriði til að ná árangri. Og þessi vísa verð-
ur ekki of oft kveðin," segir hún og brosir fal-
lega.
spamadur@dv.is