Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2005, Síða 39
J3V Síðast en ekki síst
FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2005 39
Reykjavíkurborg er einn aðalbakhjarl Jazzhátíðar í
Reykjavík og því var við hæfi að setja hátíðina í Ráðhúsi
Reykjavíkur seinnipartinn í gær. Ráðhúsið hefur af mörgum
þótt einhver alversti staður til funda- og tónleikahalds en í
gær hljómaði djassinn undurfagurt upp um alla veggi og mið-
að við hausa- og mjaðmadillingar virtust viðstaddir skemmta
sér konunglega. Djassarar eru líka ekki eins og við hin þegar
kemur að kröfum til hljómgæða svo þetta hlýtur að hafa verið
gott.
Að loknu ávarpi borgarsjóra stigu nokkrir flinkir djassarar
á svið en þeirra á meðal var kyngimagnaður klukkuspilsleik-
ari. Unaðslegir tónar klukkuspilsins í bland við hljómfagurt
píanóið hrifu viðstadda frá fyrsta tóni svo nokkrir Bandaríkja-
menn á aftasta bekk sáu sér ástæðu til að hrópa bravó! Banda-
ríkjamenn eru samt svo jákvæðir að eðlisfari að viðbrögðin
þurfa ekki endfiega að vera vitnisburður um frammistöðuna.
Já, Jazzhátíðin hófst í gær og kvikmyndahátíðin hefst í dag
og þannig ætti þetta að nilla alla eilífð. Allavega þannig að
einu sinni í viku um eftirmiðdaginn hæfist ný hátíð með
pompi og prakt í Ráðhúsi Reykjavíkur og þangað færi maður
eftir vinnu og drykki í síg spennandi menningarstrauma fyrir
útsvarið. Heimilislífið og mannlífið allt gæti ekki haft annað
en gott af því.
Kyngimagnað klukkuspil
Bandaríkjamerm á aftasta bekk
hrópuðu bravóyfir því.
| Öruggur á píanóinu
Hljómburðurinn I Ráðhúsinu
setti jazzarana ekki út af
laginu. ■
Gaman i gær
Það ætti að hefjast ný
hátið I hverri viku i
Ráðhúsinu.
Lófatak Gestir
voru ánægðir
meöjazzinn.
Jæja, þá er loksins farið að
kólna líka í nágranna-
löndunum. Osló, Stokk-
hólmur, Kaupmannahöfn og
London skarta ekki lengur
tuttugu stiga hita. Það
styttist því í að (slendingar
geti hætt að svekkja sig á
veðrinu.
• Kvikmyndin The
40 Year Old Virgin
var frumsýnd um
síðustu helgi og
flykktust fslendingar
í kvikmyndahúsin.
Myndin íjallar, eins
og nafnið gefur til
kynna, um fertugan mann sem hef-
ur aldrei komist yfir konu. Kvik-
myndahúsin gáfú út þá yfirlýsingu
að ef einhver fertugur hreinn sveinn
kæmi á myndina fengi hann frítt.
Bíógestir í Háskólabíói á föstudag-
inn horfðu útundan sér á mann á
fimmtugsaldri sem sat einsamall á
fremsta bekk. Talið var að hann
hefði nýtt sér þessi kostakjör en
hann var fljótur að koma sér í burtu
að mynd lokinni...
• Valsarar og
Framarar spiluðu
litlausan bikarleik á
laugardaginn en
Valsarar báru sigur
úr býtum. Sigur-
mark Valsara var
klaufalegt fyrir
Gunnar Sigurðsson markvörð sem
eitt sinn var kallaður Gunnar „und-
ir“ Sig. Mark þetta var fyrirgjöf sem
flaug yfir markmanninn og í netið.
Að leik loknum heyrðust rauð-
klæddir húmoristar gantast sín á
milli og töluðu um að Gunnar hefði
fengið nýtt gælunafn, Gunnar „yfir"
Sig...
9dol
• Það er engum blöðum um það að
fletta að Idol - Stjörnuleit er góð fyr-
ir þá sem vilja verða frægir. Sigur í
keppninni opn-
ar ný tæki-
færi fyrir
söngvara i
sem hefðu >
kannski
aldrei náð að
koma sér á fram-
færi. En það er ekki einungis þeir
sem að komast í úrslit sem nýta sér
frægðina. Á Lækjartorgi fyrir
skemmstu heyrðist ungur maður
nota áður óheyrða línu til að stíga í
vænginn við unga dömu. „Ég var í
Idolinu, ég var eitt stærsta atriðið í
„worst of‘-þáttunum," sagði ungi
maðurinn og blikkaði dömuna...
• Á dögunum var velt upp þeirri
spurningu í Sandkomum af hverju
myndirnar Dís og Gargandi snilld
hafi ekki komið til greina sem fram-
lag íslands á Óskarsverðlaunahátíð-
inni. Ástæðan mun vera sú að þær
komu ekki
út á réttum
tíma til þess
að geta ver-
ið með. I
takt við tím-
ann og
Strákarnir
okkare ru því einu myndirnar sem
koma til greina. Kvikmyndagerð á
íslandi í blóma...
• Nú er Logi Bergmann Eiðsson
farinn frá Ríkissjónvarpinu yfir til
365 - ljósvakamiðla. Ljóst er að Logi
skilur eftir sig stórt skarð hjá þessari
ágætu stofnun. Hann hefur verið
stoð og stytta í fréttalestri en einnig
hefur hann verið spyrill í Gettu bet-
ur við frábæran
orðstír. Nú em
menn farnir að velta
fyrir sér hver muni
taka við af Loga í
starfi spyrils og hafa
nú þegar nokkrir
verið nefndir. Ber
þar fyrst að nefna
Hilmi Snæ Guðnason leikara sem
þykir hafa afbragðsframsögu...
*