Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.11.1931, Blaðsíða 22

Símablaðið - 01.11.1931, Blaðsíða 22
44 SÍM AB L AÐIÐ Eftlr 100 ár. Fjarsýni og fjarskynjun.* Heilabrot draumóramanns. Frá ómunatíð hefir mannkynið kept að því, að skilja og þekkja veröld þá sem við lifum í. Það hefir verið löng og erfið harátta. Þrátt fyrir aðvaranir og hleypidóma hafa hugumstórir vísindamenn lagt út á óþekt höf og inn í eyðimerkur. Af þiisundum þeirra hafa engar sögur farið, en faðmur hins ókunna hefir lukst um þá. En þúsundir liafa seinna farið vfir grafir þeirra — lengra móti hinu óþekta. Sumir komust til baka og þekking mannanna óx stöðugt. Og saga þeirrar þekkingar er dásamleg, — alt frá því að jörðin var flötur með krystalhimni yfir, — frá því jörðin var alheimurinn, með sól, stjörnum og mána til að verma og lýsa lienni, — þar til nú, að liún er aðeins sandkorn á sjávarströnd alheimsins. Og nú stöndum við við lokaþáttinn í baráttu mannanna við að þekkja jörðina. Við þekkjum lögun liennar, stærð, lönd og höf, mannflokkana og dýrin. Vísind- in liafa gert hina stóru, óþektu „ver- öld“ að örlitilli kúlu. Með skipunum, járnbrautunum, flugvélunum, film- unni og loftskeytunum liafa allar fjarlægðir stytst. Filman liefir sigrast á rúminu en ekki tímanum. Hún er altaf á „eftir tímanum“, sýnir bið liðna. En loftskeytafræðin hefir sigrast á hvorutveggja, gagnvart hevrn okkar. Samtimis getum við hevrt um alla * bauslega þýtt. jörðina. En þegar fjarsýnin er orðin veruleiki, sem væntanlega er ekki langt að bíða, höfum við sigrast á rúmi og tíma gagnvart tveim þýðing- armestu skilningarvitum okkar — sjón og hevrn. Við sjáum og heyrum sam- timis um „víða veröld“. En svo undursamlegir sem þætt- irnir um sigurinn yfir jörðinni hafa verið, verða þeir hversdagslegir móts við þá tíma, sem mannkynið hefur nú göngu sína inn í, „landkönnun al- heimsins.“ Sú „landkönnun“ er að vísu jafn gömul hinni, sem að framan er getið. En svo sem við brosum að „stjörnu- skoðurum“ og „stjörnuspámönnum“ fornaldarinnar, munu eftirkomendur okkar brosa að vísindamensku okkar og áhöldum. • Stjörnukíkirinn, sem er dásamlegt áliald, verður aðeins til á söfnum að 100 árum liðnum. Framtíðarinnar menn rannsaka himingeiminn við „fjarskynjun‘“. Nú þegar sjáum við og lieyrum yfir fjarlægðir. Og fjarsýni er innan skamms tíma engum örðugleikum háð. En eftir 100 ár hefir fjarskynjunin tekið við. Við sjáum, heyrum og finnum það, sem fjarlægt er. Við sjáum Afríku, — lögun hennar og liti, sjáum dýrin og heyrum öskur þeirra, og við finnum hita brunabelt- is sólarinnar. Við leggjum ekki lengur á okkur erfiði ferðalaganna, hvorki til að kynna okkur lönd og þjóðir, né til heilsubóta. Við flytjum Riviera-strönd- ina hingað norður undir heimskauts- bauginn, lifum þar í glaum og gleði eða teigum af hinni suðrænu heilsu-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.