Símablaðið - 01.11.1931, Blaðsíða 26
48
SÍMABLAÐIÐ
Lagt af stað í Þrastarlund.
Útvarp úr djúpi Atlantshafsins.
I febrúarmánuði n.k. verður tækifæri til
að hlusta á merkilegt útvarp. Hafa útvarps-
fél. vestan hafs samið við kafara um það
að kafa niður að flakinu á „Titania", er
var sökt af kafbáti með allri áhöfn, við
strendur írlands 1915. Liggur skipið á 240
feta dýpi. Hefir kafarinn meðferðis mikro-
fon, og segir jafnóðum frá því, sem fyrir
augu hans ber á ferðalagi hans um þessa
dauðragröf í djúpi hafsins. Verður því út-
varpað bæði vestan hafs og austan. Ætti ísl.
útvarpsnotendur að geta fylgst með þessum
viðburði.
En sú rigning!
Ræðumönnum útvarpsins hættir stundum
til að gleyma því, að hvert orð, sem sagt er
í nánd við hljóðnemann, fer um víða veröld.
Fyrir nokkru var franski forsætisráðherr-
ann að tala fyrir fullu húsi áheyrenda, og var
ræðunni útvarpað. I miðri ræðunni urðu
fagnaðarlæti áheyrenda svo mikil, að ráð-
herrann varð að þagna, og á meðan á því
stóð varð honum litið út um glugga.
Varð honum þá að orði: „En sú rigning!“
En útvarpshlustendurnir skildu ekki vel
samhengið milli ræðunnar og ])ess, — hvað
hann rigndi!