Símablaðið - 01.11.1931, Page 25
SÍMABLAÐIÐ
47
Ivotta-Basch, en hann svaraði: „Eg er
dauðvona, en lærisveinn minn skal
fara og Ieita“.
Ivotta-Bascli dó, en lærisveinn lians
lagði af stað til að leita hamingjunnar.
Nafn lians var Lenin.
Þriðja augnablikið er á enda. Lenin
steypti harðstjóranum af stóli.
Sjálfur er hann einnig horfinn. En
trúið þið því, að hann sé dáinn?
Nei, Lenin vissi siðustu ósk Kotta-
Basch.
Hann leitar uppi i fjöllunum að
hamingju mannkynsins.
Þegar jörðin nötrar, kalla menn það
jarðskjálfta.
Þá er Lenin að velta um björgun-
um, til að leita hamingjunnar og sánn-
leikans.
Þegar hann liefir fundið þau, hefst
fjórða augnablikið, — augnablik ham-
ingj unnar.
Velting dyravarSarstöðuiinar.
Þess hefir verið getið hér í blaðinu,
að Gísli sál. Ólafson hefði verið bú-
inn áð lofa C. Björnes dyravarðar-
stöðunni við nýja símabúsið, og að það
væri almanna rómur, að liann væri
vel að henni kominn. Þó hafði það
kvisast, eftir lát landssímastjórans, að
öðrum væri þessi staða ætluð, en svo
ólíklegt þótti það, að fæstir lögðu trún-
að á. Þó er það nú komið á daginn.
Það virðist svo, að vald landssíma-
stjórans sé ekki orðið mikið, er hann
fær því ekki ráðið, hver dyravörður
er við simahúsið.
Það virðist svo, að hér liafi ekki
verið það í húfi, að þurft liafi að gera
fyrverandi landssímastjóra ómerkan
orða sinna í gröfinni, og særa réttlæt-
istilfinningu erlends öldungs og sæmd-
armanns, þrátt fyrir 26 ára strit fyrir
ísl. þjóðina, manns, sem eftir svo
langa dvöl hér á landi, skilur ekki vegi
Iiins ísl. réttlætis, en finst hér vera um
dóm að ræða yfir starfi sínu þessi
25 ár.
Dyravarðarstaðan hefir verið veitt
Hákoni Kristóferssyni alþm. frá Haga.
Orsakir til þeirrar ráðstöfunar eru
Símablaðinu ekki kunnar, og öllum
eru þær torskildar. En livað sem þeim
líður, þá er það skylda sírnans að sjá
um, að Björnes geti átt rólegri daga
hér eftir en hingað til. Hann hefir unn-
ið svo gott og mikið starf, að hann á
skilið að fá nú hvíld frá því með full-
um eftirlaunum.
Eðvarð Árnason
stundar i vetur verkfræðinám i Ber-
lín. Lauk liann stúdentsprófi s.l. vor
við Mentaskólann í Reykjavík. Hann
byrjaði að stunda símritaranám við
símastöðina á Akureyi’i i mars 1926.
Og síðan vann hann ýmist við stöðina
þar eða á Siglufirði, jafnframt því sem
hann stundaði nám við Gagnfræða-
skólann á Akureyri. Mentaskólanámi
lauk hann á tveim vetrum.
Eðvarð er fyrsti ísl. símritarinn, sem
stundar nám undir stúdentspróf, og að
miklu lejdi jafnframt starfi sínu.
Erlendis er slíkt altitt, og myndi
verða tíðara hér, ef nokkrir möguleik-
ar væri fyrir þá menn að fá lífvænleg-
ar stöður innan símans. En simritarar,
sem koma ungir i þjónustu símans,
ætti að geta haft slikt nám samhliða
starfi sínu.