Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2005, Page 11
Einstakur lífsferill
Ævi Jörgens Jörgensen, eða Jörundar hundadagakonungs, hefur alltaf verið Islendingum
hugleikin. I þessari bók er ótrúlegt lífshlaup hans rakið allt frá æskuárunum í
Kaupmannahöfn þar til hann lýkur ævi sinni á Tasmaníu.
Sagt hefur verið um Jörund að líf hans væri lygilegra en nokkur skáldskapur enda hafa
margir spreytt sig á því að skrifa skáldsögur sem byggja á lííi hans. Þessi bók sýnir þó að
engin þörf er á að grípa til skáldskapar til að skrifa æsilega bók um Jörund.
Frásagnargleði og atburðarás sem minnir einna helst á Munchausen greifa gera þessa
bók að frábærri skemmtun en jafnframt veitir hún nýja innsýn í sögu Evrópu á fýrri
hluta 19. aldar. Björn Jónsson þýddi.
Sérlega vel skrifuð og vönduð ævisaga.
SKRUDDA
Eyjarsióð 9 - 101 Reykjavík
s. 552 8866 - skrudda@skrudda.is
www.skrudda.is
Farðu á
wvw.spiderwick.com
og fáðu að vita meira um þessar
frábæru bækur.
Lennon
Spiderwick-sögurnar hafa farið sigurför um heiminn
og hlotið fjölda verðlauna frá því að þær komu fyrst út fyrir
tveimur árum. Þrjú systkini uppgötva ósýnilegan hulduheim
þegar þau flytjast með móður sinni í gamalt og skuggalegt hús.
Álfar, tröll og hvers kyns furðuskepnur koma við sögu í þessum
heillandi nútímaævintýrum.
Fyrstu tvær bækurnar í þessum bókaflokki
koma út fyrir þessi jól en þrjár seinni bækurnar á næsta ári.
Það þarf ekki að kynna John Lennon. Hann vr einn frægasti og áhrifamesti tónlistarmaður
20. aldar. Stormasamt líf hans var fullt af öfgum og andstæðum, hann var ýmist hetja eða
skúrkur. Hér er á ferðinni hrífandi ævisaga sem segir okkur heillandi sögu af sigrum og
ósigrum, baráttu Lennons við djöfulinn í sjálfum sér, dópið og brennivínið og endalausar
tilraunir hans við að gera upp við æsku sína. Steinþór Steingrímsson þýddi.
Frábær bók sem varpar nýju ljósi á eina helstu
rokkstjörnu 20. aidar.
Frábærlega spennandi og fallegar bækur
fyrir börn og unglinga í snilldarþýðingu Böðvars
Guðmundssonar.