Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2005, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2005, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2005 Fréttir XKV Lögregla verði áfram íVík „Sú sjálfsagða krafa er gerð að sýslumaður verði búsettur í Mýrdals- hreppi sem hingað til," segir sveitarstjóm hreppsins sem ítrekað hefur mikla andstöðu við áform dómsmálaráðuneytisins um að færa löggæslu frá sýslu- mannsembættinu í Vflc yfir á Hvolsvöll. Segist sveitar- stjómin óttast að lögreglu- stöðinni í Vflc verði lokað og lögreglumönnum þar gert að mæta til vinnu á Hvols- velli. Sveitarstjómin hvetur Bjöm Bjarnason dómsmála- ráðherra til að finna eftir- mann Sigurðar Gunnars- sonar, sýslumanns í Vflc, sem hætti óvænt fýrir nokkmm dögum. Hundadansá Eiðistorgi Hundahátíð verður í verslunarkjamanum Eiðis- torgi á Seltjamamesi í dag á milli klukkan tvö og fjögur. Það er Tibet Spaniel-deildin sem fagnar tíu ára afmæli. Af því tilefni ætía eigendur að kynna hundana sína og haldin verður tískusýning þar sem Margrét Ellertsdóttir sýnir föt sem hún hefur hannað og saumað. Rúsínan í pylsuendanum verður síð- an þegar Auður Bjömsdótt- ir, hundaþjálfari á fsafirði, kemur og dansar við hund- inn sinn. Dans þeirra hefst klukkan þijú og em áhuga- samir hundaunnendur hvattir til að mæta og missa ekki af neinu. Vantar rokk í Hornfirðinga Kristín G. Gestsdóttir, áheymarfulitrúi í bæjarráði Hornafjarðar, sagði á síð- asta bæjarráðsfundi að sér fyndist þátttaka heimamanna í miklum rokk- tónleikum sem haldnir voru í bænum um síð- ustu helgi ekki hafa verið nógu góð. Tónleikarnir sjálfir hefðu tekist ákaflega vel og verið frábært framtak hjá þeim sem að þeim stóðu. Tók bæjarráðið undir orð Kristínar hvað snerti ágæti tónleikanna. Staða margra íbúa húsnæðis Öryrkjabandalagsins við Hátún er slæm. Margir fá ekki sjálfsagða þjónustu. Sesselja Þórðardóttir, sem er lungnasjúklingur með ónýt- an ristil, hefur hvorki fengið íbúðina sína þrifna né aðstoð frá hjúkrunarfræðing- um. Aðalbjörg Traustadóttir, framkvæmdastjóri þjónustumiðstöðvar Laugardals, segir að auka eigi auglýsingar eftir starfsfólki. Fangar í okkar eigin húsnœði Sesselja hefur sjálf unnið við heimahjúkrun á fsafirði og veit hvað það gengur út á. Þannig getur hún metið þjónustuna frá báðum hliðum. Hún neyddist til að fiytja til Reykjavíkur vegna veikinda fyrir íjórum árum. Hún ber hvorki Velferðarsviði né hjúkrunar- þjónustu Reykjavíkurborgar söguna vel. „ Viö hjónin hugsum bara um einn dag í einu." Hátún 10 íbúðir Öryrkjabanda- lagsins I Reykjavik. Öryrkjar í húsnæði öryrkjabanda- lags íslands við Hátiin 10 í Reykjavflc fá margir hverjir enga umönnun frá Félagsþjónustu Reykjavíkurborgar. Miklum skorti á starfsmönnum til verksins er um að kenna. Settir hafa verið upp forgangshstar á þjónust- una sem þýðir að sumir öryrkjar sitja á hakanum og fá enga eða takmark- aða þjónustu. Engin þrif á íbúðum vegna manneklu Reglur kveða á um að öryrkjar og eldri borgarar geti fengið þrif á heim- ilum sínum. Þegar við komum í heimsókn til Sesselju er hún með þvottakörfuna fulla við dymar. Hún er nýbúin að setja moppu á skaft til að reyna að þrífa gólfið. Hún reynir að gera þetta sjálf, því þrátt fyrir að hafa fengið vil- yrði fýrir þrifum hálfsmánaðarlega, hefur enginn komið síðan í septem- ber. Helsta ástæða þess er mannekla. Sesselja segir margar stöður ræst- ingafólks lausar. Nú sinni einungis tvær konur þrifum á svæðinu. Hún segir jákvæð að hún sé alls ekkert illa stödd miðað við fjölda annarra ör- yrkja sem býr í húsunum þremur. Saga annarra geti verið miklu verri en hennar. „Við hjónin hugsum bara um einn dag í einu,“ segir Sesselja. „Þeir geta verið yndislegir þrátt fyrir allt.“ Engin hjúkrunarþjónusta Sesselja Þórðardóttir hefur búið í Hátúni 10 eftir að hún þurfti að flytja frá ísafirði til Reykjavflcur fyrir um ijórum árum. „Ég hélt að ég yrði nokkuð örugg með þjónustu þegar ég flutti hingað. Annað hefur komið í ljós,“ segir Sesselja. Hún hefur verið lungnasjúk- lingur um margra ára skeið, en fyrir hálfu öðru ári lamaðist hún í ristli og þarf nauðsynlega á umönnun hjúkr- unarfræðinga að halda. „Læknirinn minn, Kjartan Örvar, hefur lýst þeirri meðhöndlun sem ég þarf á að halda og skrifað upp á hana, en heilsugæslan hér segir þá aðferð ekki notaða héma. Á ísafirði fékk ég þessa þjónustu eins og ekkert væri," segir Sesselja og bætir við að heima- hjúkmn í Reykjavflc sé hörmuleg miðað við á ísafirði. „í kjölfarið spurði ég lækninn minn hvort hann ætti eitthvað laust á líkhúsinu," segir Sesselja með alvöm- blöndnu skopskyni. Gleði Sesselju og hamingja þrátt fyrir erfitt hlutskipti em aðdáunarverð þótt henni finnist hún vera fangi í eigin húsnæði vegna slælegrar þjónustu heimahjúkrunar og Velferðarsviðs borgarinnar. ÖBÍ hefur miklar áhyggjur Arnþór Helgason er fram- kvæmdastjóri Öryrkjabandalags ís- lands. Skrifstofa þess er í Hátúni 10 - sama húsi og fólkið sem fær ekki þá þjónustu sem það á rétt á býr í. „Við höfum miklar áhyggjur af ástandinu," segir Amþór sem stað- festir að fólk hafi ekki fengist til að manna heimahlynningu í húsinu. „Það er verið að ræða þetta hér inn- anhúss hvemig bregðast eigi við þessu." Arnþór segir að skýringanna sé ef til vill að leita í lágum launum og að- stöðuleysi starfsmanna. „Umönnunarstörf em því miður ekki metin eins og skyldi," segir Am- þór. „Það er merkilegt því að slflc störf munu gegna æ rflcara hlutverki í þjóðfélagi framtíðar. Við þurfum á sérhæfðu fólki að halda í þau störf, Jolaljósin komin upp „Þetta er bara til að lýsa hjarta mitt svo mér líði betur.“ ekki síður en til dæmis kerfisfræðing- um. Það er eins og Félagsþjónustan átti sig ekki á að hér í Hátúninu sé um sérstakt fyrirbæri að ræða þar sem mikið af öryrkjum þarf mikla um- önnun," segir Arnþór og gagnrýnir Reykjavflcurborg fyxir að sinna ekki skyldum sínum gagnvart borgarbú- um á viðunandi hátt. Viljum gera betur „Við höfum haft miklar áhyggjur af Hátúninu," segir Aðalbjörg Traustadóttir, framkvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar Laugardals sem Hátúnið heyrir undir. Aðalbjörg segir að því miður hafi gengið erfiðlega að manna stöður þar en nú hafi verið tekin ákvörðun um auknar starfsauglýsingar til að bæta þjónustuna við öryrkj- ana. „Við vinnum með Öryrkja- bandalaginu í úrlausn málsins, en manneklan er ekkert frekar leyst hjá okkur en á hjúkrunarheimiiunum eða leikskólunum," segir Aðalbjörg sem vonast til að samstarf við nýjan formann Öryrkjabandalagsins, Sig- urstein Másson, skili góðum árangri: „Það vantar ekki að við viljum gera betur." haraldur@dv.is íbúaþing í Lindaskóla, laugardaginn 19. nóvember Líttu inn milli kl. 10-16 Sjá nánar um dagskrána á www.kopavogur.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.