Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2005, Blaðsíða 50
50 LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2005
Helgarblað DV
*Fyrirsætan Elísabet Thorlacius hef-
ur vakið mikla athygli eftir að
myndir birtust af henni naktri á
forsíðu síðasta tímarits Bleikt og
blátt. Elísabet sjálf segist ekkert
skammast sín fyrir það sem hún
hefur gert og fagnar því að tímarit-
ið sé aftur orðið erótískt.
Þegar Bleikt og blátt gaf út
I sitt fyrsta tölublað nú fyrr í mán-
uðinum varð forsíða blaðsins og
innihald vægast sagt umdeilt
umræðuefni í fjölmiðlum um
land allt og eldhúskrókum
hneykslaðra húsmæðra. Hæst
heyrðist þó í femínistum sem
þótti vegið að íslensku kvenní-
myndinni og mótmæltu kven-
réttindaskörungarnir því harð-
lega á umræðuvefjum landsins
að blaðið skuli vera selt á al-
mennum sölustöðum svo sem
matvöruverslunum og bensín-
stöðvum. Olli mál þetta al-
mennum usla meðal femínista
og má geta þess að blaðið kom
út á svipuðum tíma og kvenna-
frídagurinn var haldinn hátíð-
legur.
Bleikt og Blátt orðið eró-
tískt á ný
„Ég horfði nú voðalega tak-
markað til dæmis á umfjöllun-
ina á Stöð 2 því mér fannst þetta
einfaldlega asnaleg umfjöllun
og alveg fáránlega mikið gert úr
þessu,“ segir Elísabet aðspurð
að því hvernig henni hefði fund-
ist umijöllun fjölmiðla hafa ver-
ið í málinu. „Þetta blað hefur
verið til í mörg ár og oft verið
grófara, til dæmis þegar Davíð
Þór var með blaðið og mér
finnst asnalegt hvað það er allt í
einu verið að gera mikið mál úr
þessu þegar konur hafa verið að
sitja fyrir á erótískum myndum í
Qölda ára. Ég meina, af hverju er
þetta allt í einu orðið svona
hræðilegt núna, femínistamir
em að tapa sér yfir þessum
myndum sem birtust af mér um
daginn en oft hafa verið mun
grófari myndir í þessu blaði!” El-
ísabet vísar þarna í tímabil á ár-
unum 1997-2001 þegar Davíð
Þór Jónsson starfaði sem rit-
stjóri tímaritsins Bleikt og blátt.
Ekkert klám
„Ég skammast mín ekkert
fyrir þessar myndir og þetta er
alls ekkert klámfengið eða
þannig. Ég er bara mjög ánægð
með myndirnar ogblaðið," seg-
ir Elísabet sem er greinilega
ekki hrædd við að sýna líkama
sinn á forsíðum tímarita eins og
Bleikt og blátt. „Eiga femínistar
að fara að stjórna því hvernig
blaðið er?? Mér þætti gaman að
sjá hvernig erótískt tímarit
undir þeirra stjórn liti út! Ég
meina hvað er undir eðlilegum
mörkum hjá þessum konum?
Hvernig ætla þær að hafa öðru-
vísi myndir í erótísku blaði?”
Elísabet hafði ekki setið fyrir
hjá Bleikt og blátt áður en hún
mun eflaust ekki hafna því ef
henni byðist slfkt tækifæri aft-
ur. „Mér finnst þetta mjög flott-
ar myndir og ekki dónalegar
miðað við restina af blaðinu,
sérstaklega erlendu myndirn-
ar,“ segir Elísabet ennfremur.
Hún hefur starfað í nokkur ár
sem fyrirsæta og er á skrá hjá
fyrirsætuskrifstofunni Mod-
el.is. „Það er alltaf nóg að gera
en þetta kemur í svona gusum,
stundum er alveg brjálað og
stundum lítið."
Engin fórnarlömb
Elísbet segir stóran þátt í -
rökum feminista fyrir því að
banna eigi Bleikt og blátt vera
þau að stúlkur séu að fá mjög
lítið eða ekkert borgað fyrir að
sitja fyrir og séu jafnvel neydd-
ar til að láta mynda sig á þenn-
an hátt. „Það neyddi mig að
sjálfsögðu engin í þetta og ég
valdi það algjörlega sjálf að láta
taka af mér þessar myndir.
Þetta er mitt starf, ég vel hvaða
verkefni ég tek og það er fárán-
legt af fjölmiðlafólki að reyna
að segja eitthvað annað,” segir
Elísabet sem er greinilega mjög
meðvituð úm starfsgreinina
enda með áralanga reynslu af
svipuðum myndatökum.
brynjab@dv.is
Pamela Andersson er sögð hafa
eytt allri helginni innilokuð með
Mark McGrath, sem er fyrrverandi
söngvari Sugar Ray. Þau rétt
skruppu út í búð til matarinnkaupa
segja sjónavottar. Hún er greini-
lega vaðandí i karlmönnum stúlk-
an því hún hefur verið orðuð við
hina ýmsu kauða, sinn fyrrverandi
Tommy Lee, leikarann Stephen
Dorff og sörfarann Kelly Slater
undanfarið ár. En sílikonbomban
kvartar yfir því að karlmenn gefast
i
Keira keyrir
sig út
Kvikmyndastjarn- ,
an Keira Knightley
hefur sagst ætla að MEjJr
taka sér verðskuld-
myndaleikþvi JgfjH
hun sé algjör- Æ&É
lega utkeyrð.
Stjarnan hefur
verið við tökur á .■
framhalds-
myndinni fcjm******™!
Caribbean J™
back-to-back. a 1
Siðustu helgi Jjj & I
vann ég 32 Jp
myndina án
þess að stoppa,
helgina á und-
an vann ég lika
32 stundirán
þess að stoppa.
Ég þarf virkilega
á fríi að halda,"
segir hin 20 ára gamla leikkona.
Pamela Anders-
son komin með
nýjan upp á
arminn
Nicole segist
ekki í sambandi
Nicole Kidman og Keith Urban
verjast allra frétta af ástarsam-
bandi sin í milli en meira að segja
fréttafulltrúar þeirra bíða spenntir
eftir að mega senda út tilkynningu
af sambandinu. Ljósmyndir af ástr-
alska parinu á rómantískri göngu
hönd í hönd i miðborg Boston birt-
ust í nýjasta tölublaði bandaríska
tímaritsins People Magazine sem
varð til þess að blaðamenn þrýsta
á talsmenn Nicole að staðfesta
sambandið. Kidman sást með það
sem líktist grunsamlega trúlofun-
arhring á fingrinum en fréttafull-
trúi Urban ítrekar að parið sé ekki
trúlofað. „Eins og er eru þetta bara
sögusagnir. Þegar og ef það kemur
staðfesting frá parinu, verður op-
inber yfirlýsing," sagði fulltrúinn.
er einu skærasta nýstirni heims til landsins
natie Melua til íslands
f Samkvæmt öruggum heimild-
um blaðsins er nýstimið Katie
Melua á leið til landsins. Áætlað er
að söngkonan verði með tónleika í
Laugardalshöll í mars. Katie er ein
vinsælasta söngkona heims um
þessar mundir og því um gleðitíð-
indi að ræða fyrir íslenska tónlist-
arunnendur. Katie þykir einhver
helsti vonameisti popp- og djass-
/.únlistar og hefitr þegar skipað sér í
i röð söluhæstu söngkvenna heims.
Þá hefur hún oftar en ekki verið
nefndur arftaki Noruh Jones sem
landsmenn er af góðu kunn.
Lögin 9 million bycicles in pejing
og Closest thing to crazyness hafa
heldur betur slegið í gegn hér á landi
og platan hennar er ein sú mest
selda á landinu það sem af er ári.
Iiklegt þykir að konur muni taka
sig saman og fylla LaugardalshöUina
ef af verður. sotmdv.is