Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2005, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2005, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2005 HelgarblaO DV Heimili Silju og Bjama er eftir- sóknarverður staður því gleðin er nánast áþreifanleg. Ekki verður hjá því komist að byrja á að spyrja þau um ástina og hvað farsælt hjóna- band skuli uppfylla. „Svarið er einfalt. Tvær ástfangn- ar sálir sem eiga vel saman og mikla vináttu," svarar Bjami og Silja kinkar til samþykkis en þau kynntust í gegnum föður Silju. Bjarni er fyrst og fremst tónlistarmaður og starfar samhliða söngnum sem útvarps- stjóri Bylgjunnar og Létt 96,7 og konan hans Silja er nemi á tann- tæknibraut og söngkona. Rækta hvort annað „Við emm mjög dugleg að rækta sambandið," svarar Silja þegar hún er innt eftir því hvort þau hlúi vel hvort að öðm. „Með hverju ári höf- um við vaxið enn frekar saman og samband okkar styrkst mikið í ljósi þess að í byrjun gekk sambandið ekkert sérstaklega vel enda mikið álag sem hvíldi á okkur vegna veik- inda og annarra þátta. Við byrjuðum snemma að eignast böm," útskýrir Silja og heldur áfram frásögninni geislandi yfir móðurhlutverkinu og því sem hún hefur afrekað. „Við eigum tvær heilbrigðar og yndislegar dætur. Það gekk heldur illa að koma þeim í heiminn. Thelma fæddist 660 grömm eftir 25 vikna meðgöngu og var mikið veik fyrsta árið. Kamilla fæddist fullburða en eitthvað gerðist í fæðingu svo hún var tekin með bráðakeisara," segir hún og bætir við einlæg: „Ég var frá vinnu á báðum með- göngunum. En hver veit nema það komi annar erfingi einhvem tím- ann," og Bjami heldur áfram að rifja upp þessa erfiðu tíma: „Silja var meira og minna fárveik alla fyrri meðgönguna. Hún fékk svokallaða meðgöngueitrun og þurfti að liggja allan tímann frá því að það uppgötvaðist," svarar Bjami einlæg- ur og opinn um fæðinguna og líðan konu sinnar. „Silja var svo nánast meðvitund- arlaus í sólarhring áður en henni var rúllað inn á skurðdeild, en þá var verið að bíða eftir að sterasprauta sem hún hafði fengið myndi virka áður en bamið yrði tekið með keis- ara. Stelpan fæddist svo á 25. viku og var rúmar 2 merkur." Sannar hetjur „Okkur báðum leið vægast sagt mjög illa. Ég var rétt nýútskrifaður úr áfengismeðferð, alveg kofruglaður og mjög óömggur með sjálfan mig og rétt að byrja að feta mig á beinu brautinni á nýjan leik. Samband okkar Silju var erfitt á þessum tíma og mikil óvissa sem ríkti um hvemig Thelmu myndi reiða af. Thelmu var vart hugað líf, en var góð inn á milli. Svo kom niðursveifla og svona var þetta sitt á hvað." „Svo fékk hún lungnabólgu en það er auðvitað alls ekki gott þegar um svo óþroskuð lungu er að ræða. Stelpan okkar barðist hetjulega. Það var samt greinilegt að hún ætlaði að ná þessu, þessi duglega stelpa, hún er algjört laaftaverk. Erfiður tími en verðlaunin alveg yndisleg. Það er yndislegt að fylgjast með henni vaxa og dafna í dag. Okkur finnst ótrúlegt hvað þetta hefur gengið vel. Við emm svo himinlifandi og þakklát fyrir allt saman. Ég verð að fá að hrósa Silju fyrir hversu dugleg og mögnuð hún var í þessu öllu saman. Hún stóð sig eins og hetja. Ég efast um að ég hefði getað gengið í gegn- um það sama og hún. Það þarf mikið æðruleysi í svona veikindi 19 ára gömul og að komast í gegnum þessa erfiðleika. Thelma Ósk var á spítal- anum þann tíma sem vantaði upp á meðgönguna eða þrjá og hálfan mánuð. Svo gerðist þetta hægt og ró- lega einn dag í einu, eitt lítið skref í hvert sinn. Silja var í svolítinn tírna að ná sér líka enda var þessi með- göngueitrun mikil hjá henni." Áföllin breyta miklu Blaðamaður situr gáttaður yfir frásögn Bjama og Silju og reynslunni sem þessi ungu hjón gengu í gegn- um með kraftaverkið hana Thelmu. En breyta svona áföll einhverju? „Þau breyta heilmiklu. Til dæmis var Silja rosalega hrædd alla hina meðgönguna en ég held að við met- um lífið öðruvísi í dag en áður. Það er alls ekki sjálfsagt að þessi litlu grey komi alheilbrigð í heiminn," segir Bjami meðvitaður um ríkidæmi sitt sem felst í ijölskyldunni. „Við vomm einstaklega heppin að eldri stelpan kom heil út úr þessu. Það em svo margir fyrirburar sem eiga við einhverja fötlun að stríða en Thelma er alheilbrigð og fírí. Lífið er svo mikils virði. Þetta minnir mann á að þakka fyrir. Vera þakklátur og okkur er mjög ofarlega í huga þakk- læti til allra þessara frábæm heil- brigðisstarfsmanna á Landspítalan- um, þessara frábæm lækna, svo ekki sé talað um þessar yndislegu ljós- mæður og hjúkmnarkonur sem þar em. Þær gáfu okkur Silju þvílíkan styrk, hlýju og vonir á degi hveijum á meðan þessu stóð. Þetta fólk vinnur svo óeigingjamt starf og er starfandi þama að manni finnst aðallega af hugsjón frekar en hitt. Seinni meðgangan gekk brösu- lega en þó betur, þegar kom að fæð- ingu var eitthvað að svo Silja lét kalla á lækninn sinn því hún fékk ein- hverja undarlega tillfinningu um að það væri eitthvað sem væri alls ekki í lagi. Það reyndist vera rétt og það var hlaupið með rúmið sem hún lá í inn á skurðdeild og skorið. Þá hafði fylgj- an losnað og það mátti engu muna með bamið en allt fór vel á endan- um. Hún er mikill ijörkálfur sú yngri. Alveg uppskrift að Astrid Lindgren- persónu. Lífið leikur við okkur," segja þau ánægð og reynslunni rík- ari. Fjölskyldan mikilvæg „Draumafrídagur er að vakna saman. Familían fer og fær sér góðan bmnch með góðum vinum og böm- um þeirra. Svo er farið í Bláa lónið og látið dekra við sig þar. Síðan er gert það sem bömunum finnst skemmti- legast. Seinna um kvöldið hittast svo systkinin og bömin okkar og elda góðan mat. Við hlæjum saman og segjum hvert öðm frá liðnum dögum og hvað hver er að gera hveiju sinni," útlistar Bjami spurður um góðan frt- dag í faðmi fjölskyldunnar. „Við hlæjum mikið saman. Syngj- um saman, gemm skemmtilegt grín hvert að öðm og höfum húmor fyrir því, oftast," segja þau, líta hvort á annað og skella upp úr. Hjálpast að á heimilinu „Að syngja er yndisleg tifinning. Það er ekkert sem jafríast á við „kikk- ið" þegar vel gengur í söng. Að syngja fyrir fullan sal af fólki og finna að fólk er að njóta þess að hlusta er einstök tillfinning. Við viljum syngja eins lengi og raddimar leyfa," segir Bjarni og viðurkennir að söngurinn sé númer eitt, tvö og þrjú. „Söngurinn er eiginlega okkar eina sameiginlega áhugamál," segir hann en bætir snögglega við: „Jú, og bflar! Silja vildi helst eiga tuttugu hesta en ég lifi góðu lífi án þeirra," segir hann hlæjandi og hún lítur í „Þau breyta heil- miklu. Til dæmis var Silja rosalega hrædd alla hina meðgöhg- una en ég held að við metum lífið öðruvísi í dag en áður. Það er alls ekki sjálfsagt að þessi litlu grey komi alheilbrigð í heim- inn." augu hans heillandi og umburðar- lynd hvað það varðar. Langir vinnudagar „Þetta em oft langir dagcir en líka oftast svakalega skemmtilegir. Það em forréttindi að fá að vinna við út- varp og tónlist," segir Bjami og við- urkennir að verkaskiptingin á heim- ilinu sé ekkert sérstök. „Við göngum bæði í öll verk, ef eitthvað þarf að gera gerir sá aðili það sem er laus hveiju sinni." Silja hlær og nær að töfra blaðamann með áreynslulausri og góðri nærvem sinni þegar hún út- skýíir heimilishaldið: „Bjarni tekur úr þvottavélinni, eldar, þrífur eld- húsið og þurrkar af sjónvarpinu. Reyndar það eina sem hann þurrkar af," segir hún stríðin og h'tur til Bjarna sem brosir út í annað. Bónorðið borið upp „Þetta byrjaði allt í þrítugsafrnæl- inu hans Bjama þegar að ég gaf hon- um lag í afinælisgjöf," segir Silja þeg- ar talið berst að söngnum og sam- vinnu þeirra. „Ég vissi ekki hvað ég ætti að gefa honum svo ég ákvað að láta minn draum rætast í leiðinni og fór og tók upp lag sem var svo spilað í veislunni. Það var gert myndband við lagið og það sló bara í gegn. Bjami bað mín á staðnum þar sem aílir vom að fylgjast með spenntir eftir svari. Þetta var ffábær og eftirminnileg stund. Svo var ákveðið þar sem Bjami bað mín á hans afmælisdegi að við giftum okkur á mínum afmæl- isdegi ári seinna en þegar kom að því að velja tónlistarmenn í kirkjuna langaði okkur bara að sjá um þetta sjálf ásamt Elvis sem söng líka eitt lag. Og það lukkaðist svona rosavel. Við sungum lag saman í kirkjunni sem Kristófer Helga og Þorgeir Ást- valds á Bylgjunni spiluðu svo á Bylgj- unni mánudeginum eftir. Við vorum búin að taka lagið upp bara fyrir okk- ur, og þeir fengu diskinn Iánaðan og það varð eitt vinsælasta lag sumarins á Bylgjunni," segir Silja og brosir fal- lega við frásögnina. „Margir áttuðu sig þó ekki á að það væm íslenskir flytjendur að lag- inu enda sungið á ensku og ítölsku. Við höfum síðan sungið einmitt þetta lag í mörgum brúðkaupum," segir Silja og Bjami hlustar hugfang- inn á hana rifja upp góða tíma og bætir við: „Enda frábært lag sem á vel við í brúðkaupi." Brúðurin kom alltof seint í kirkjuna Líflegar umræður eiga sér stað tengdar söngnum og brúðkaupum í góðu yfirlæti á heimili þeirra. „Ég söng einu sinni í brúðkaupi þar sem athöfnin gekk vel og mikill kærleikur var í kirkjunni og mikið grátið. Nokkmm dögum síðar þegar ég ætl- aði að fara að innheimta þóknun fyr- ir vinnu mína bentu brúðhjónin hvort á annað varðandi greiðslu en þau vom þá komin í sundur. Það tók óratíma að fá þetta greitt," viður- kennir Bjarni og blaðamanni er skemmt og undrandi yfir íjörugri frá- sögn söngvarans. „Svo er það þetta klassíska að brúðurin kemur alltof seint í kirkj- una, jafnvel hálftíma of seint og far- nar að renna tvær grímur á gestina. Brúðguminn jafnvel búinn að bóka að hans heittelskaða sé hætt við," segir Bjami og heldur áffarn að rifja upp: „Einu sinni var ég beðinn um að syngja „Release me" sem Engelbert Humperdinck söng um árið en þá er fólk ekkert að spá í textann heldur kannski frekar að lagið hafi tengt þau saman. Textinn er eitthvað á þessa leið," segir Bjarni og syngur innilega og ömggt: „Please release me, let me go, for I don’t love you any more," og heldur áfram: „Ég fékk þau ofan af þessu sem betur fer." Vann plötuna með góðu fólki „Þetta er plata sem mig hefur alltaf langað að gera," segir Bjami en hann gefur út plöm fyrir þessi jól sem ber heitið „Bjami Ara-Svíng". „Platan er í svona „big band“-stíl. Fullt af ffábæmm tónlistarmönnum og blásumm sem koma við sögu,“ segir þessi hæfileikaríki tónlistar- maður sem kemur blaðamanni reyndar á óvart með yfirvegaðri og hlýrri framkomu. „Það em tónleikar, áritanir og alls konar vinna framund- an sem tengist því að gefa út plötu. Þetta er eins konar kosningabarátta vil ég segja. Annars vann mjög gott fólk plötuna með mér og þar ber fyrstan að nefna Þóri Úlfarsson," segir Bjarni meðvitaður um að allir hafa þörf fyrir að finna að verk sín séu metin að verðleikum. „Hann Þórir er mikill galdramað- ur sem hefur gert með mér nokkrar plötur áður. Svo er það Einar Valur Scheving á trommur, Róbert Þórhall- son á bassa, Jón Páll Bjamason og Guðmundur Pétursson á gítara, Ósk- ar Guðjónsson á sax, Samúel Samú- elsson á básúnu, Kjartan Hákon- arson á trompet og Þórir Úlfarsson á píanó og fjöldinn allur af textasmið- um eins og Stefán Hilmarsson, Sverrir Stormsker, Ingibjörg Gunn- arsdóttir, Kristján Hreinsson, Ómar Ragnarsson og Eiríkur Hauksson svo einhverjir séu nefrídir. Það var líka gaman að fá að spila aðeins á trompetið mitt á plötunni. En Silja er minn helsti stuðningur. Alveg frá- bært að hafa hana sér við hlið. Hún er svo úrræðagóð og hefur svo gott nef fyrir öllum hlutum. Ég legg alltaf fyrir hana lagalistann áður en ég fer að syngja í veislum. Ég fæ hana til að leggja blessun sína yfir þetta hjá mér." Jólin eru tími fjölskyldunnar „Við höfum þá reglu að vera alltaf heima á jólunum en þegar búið er að tæta upp alla pakka er farið yfir til systur Bjama og þar er drukkið heitt kakó og borðað fullt af kökum og góðgæti," segir Silja og heldur áfram: „Við njótum þess að vera saman og vera í fríi á þessum yndislegu dög- um. Hvað er yndislegra en fjölskyld- an á jólunum saman?" „Silja er með þá dellu að það verður alltaf að vera hvítt á rúmun- um á jólunum og ekkert annað kem- ur til greina," svarar Bjami ánægður með konuna sína þegar talið berst að hefðum jólanna. „Svo reynum við líka að fara upp í kirkjugarð á að- fangadag og setja kerti hjá okkar nánustu. Svo er auðvitað nauðsyn- legt að fá jólasnjóinn klukkan fjögur. Og auðvitað svínasteikin fina." Við kveðjum þessi samrýmdu og elskandi hjón, Bjama og Silju, og endum spjallið á að spyrja hvort þau eigi góð ráð fyrir verðandi söngvara? „Trúa á sjálfan sig. Ef maður hefur ekki trúna hefur hana enginn ann- ar,“ svarar Bjami. Við þökkum þeim fyrir yndislega kvöldstund og óskum þeim velfamaðar í öllu sem þau takast á við í ff amtíðinni. elly@>dv.Í5
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.