Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1954, Blaðsíða 3

Freyr - 01.09.1954, Blaðsíða 3
XLIX. ARGANGUR NR. 17-18 REYKJAVÍK, SEPTEMBER 1954. SVEINBJÖRN JÓNSSON: MINNI 'SVEITANNA Flutt á fyrsta bændadag Snæfellinga 24. júní, 1953. Heiðruðu tilheyrendur! Kœru ðœndadagsmenn og konur! „Á sælum sumarkvöldum, er sveitin glóir öll, og leikur ljós á öldum og logagyllir fjöll. Og hljóður hvíslar blærinn um helgan frið og ró, l>á er það bóndabcerinn, sem ber aj öllu þó.“ í þessum ljóðlínum felst það, sem ég vildi tala við ykkur hér í dag. Mörg skáld hafa játað aðdáun sína og ást á sveitinni og sveitalífinu í ljóðum, litum og lögum. Ým- ist er þar átt við landið í heild sinni eða einstaka landshluta, eða jafnvel bara blett- inn í kringum bæinn heima. Og þá er það oftast vorið í sveitinni, sem yrkisefni verð- ur. Vorilmur náttúrunnar í sveitinni hefir heillað og laðað menn og konur frá fyrstu tíð, og gjarnast þá mest, sem víðast fara, því þrátt fyrir útþrá og ævintýralöngun æskuáranna leynist þó, í og með, sterk þrá til heimahaga. „Römm er sú taug, er rekka dregur föður- túna til.“ Og þeir sem heima sitja tengjast svo sterkum böndum við heimahagana, að ætt- jarðarástin verður mörgum eins og Ekkj- unni við ána hjá Guðm. Friðjónssyni. „Hún elskaði ekki landið, en aðeins þennan blett....“ Það er leikvöllur bernsku og þroskaár- anna, sem hugann heillar fyrst og fremst. Enda þótt nýtt umhverfi veiti mörgum manninum góða og hamingjusama daga, þá endast þessi mjúku tengsl við fornar slóð- ir oft vel og lengi, og veita ljósi og yl á lífs- brautina. — Sveitalífið er í aðalatriðum svipað hvar á landi sem er. Þessvegna eiga menn hægra

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.