Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1954, Síða 26

Freyr - 01.09.1954, Síða 26
278 FREYR Tafla 2. Áhrif fangdags á frjósemi ánna í eldistilrauninni að Hesti veturinn 1953-54. Flokknr Tala áa alls Fengu fyrir miðjan fengi- líma 26.12— 3.1 Tala Tvilemb. % Fengu eftir miðjan fengi- tíma 4.1 og síðai Tala Tvílemb. % A-flokkur 60 25 32.0 35* 11.4 B-flokkur 100 43 58.1 57** 52.6 C-flokkur 39 14 28.6 25*** 44.0 Af A-flokks ánum (beitaránum), sem fengu fyrri hluta fengitímans, uröu 32% tvílembdar, en aðeins 11.4% af þeim, sem fengu siðari hluta fengitimans. Styður það kenninguna, að því auðveldara sé að fá ær tvílembdar, sem þær fá fyrr að vetri. Af B-flokks ánum, sem byrjað var að ala 10 dögum fyrir fengitímabyrjun og eldið látið' fara vaxandi til 3. janúar, var svipað- ur hundraðshluti tvílembdur af þeim, sem fengu fyrir og eftir miðjan fengitíma, en þó urðu aðeins hlutfallslega fieiri tvílembd- ar af þeim, sem fyrr fengu, sjá töflu 2. Af C-flokks ánum, sem byrjað var að ala 4 dögum fyrir fengitímabyrjun og eldið lát- ið fara vaxandi til 5. janúar, urðu aðeins 28.6% tvilembdar af þeim, sem fengu á fyrri hluta fengitímans, en 44% af þeim, sem fengu eftir miðjan fengitíma, sjá töflu 2. Athyglisvert er það, að af 2 ám í A-flokki og 3 ám í B-flokki, sem gengu upp og fengu eftir venjulegan fengitíma, varð engin tví- lembd, en af 4 ám í C-flokki, sem eins stóð á með, urðu 3 tvílembdar, en þess ber að geta, að þessar 3 tvílembur fengu allar snemma á öðru gangmáli, þ. e. 14. janúar. Þessar niðurstöður benda til þess, að ekki sé ástæða til þess að byrja eldi í þeim til- gengi að auka frjósemi ánna fyrr en 10 dög- um fyrir fengitímabyrjun, en það sé aftur á móti of seint að byrja það ekki fyrr en 4 dögum áður en byrjað er að hleypa til. *) 2 af þessum ám gengu upp og urðu báðar ein- lembdar. — **) 3 af þessum ám gengu upp og urðu all- ar einlembdar. — ***) 4 af þessuni ám gengu upp og urðu 3 tvílembdar. Gera þarf enn víðtækar tilraunir með áhrif eldis á frjósemi ánna og hvernig heppilegast er að haga sliku eldi áður en full vissa er fengin um þetta mikilvæga mál. Mun Tilraunaráð búfjárræktar láta vinna að því á Hesti og víðar á næstu ár- um. Hormónatilraunirnar. í þeirri tilraun voru 40 ær á þriðja vetri. Þeim var skipt í tvo jafna flokka með 20 ær í hvorum eftir uppruna og vænleika. Engin þeirra hafði átt tvö lömb áður, en allar gengu þær með lambi tvævetrar. Ærn- ar 1 báðum flokkum voru fóðraðar saman fyrir og um fengitímann, og voru þær fóðr- aðar eins og A-flokks ærnar í eldistilraun- inni, sem lýst er hér að framan, sjá töflu 1, þ. e. þeim var beitt og gefið meö beitinni, svo að þær héldust vel við frá 12.12.—11.1., sjá töflu 3. í allar ærnar í öðrum flokknum var dælt 750 alþjóðaeiningum af gonadotrop hormón í þeim tilgangi að auka frjósemi þeirra. Hormóninum var dælt í ærnar á 12. degi eftir, að þær gengu síðast, áður en þeim var haldið. Ærnar í hinum flokknum voru hafð- ar til samanburðar. Tafla 3. Áhrif gonadotrop hormóna á frjó- semi áa á þriðja vetri að Hesti veturinn 1953—1954. Hormónaær Samanburðarær Tala áa 20 20 Létting ánna, kg, frá 1/10—12/12 4.90 4.85 Þynging ánna, kg, frá 12/12—11/1 0.85 1.42 Fóðureyðsla, F.E., frá 16/12—11/1 11.1 ll.i Prósent af ánum áttu: ekkert lamb 10 0 1 lamb 10 80 2 lömb 55 20 3 lömb 20 0 4 lömb 0 0 5 lömb 5 0 Af hormónaánum urðu 2 lamblausar, 2 einlembdar, 11 tvílembdar, 4 þrílembdar og

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.