Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.01.1980, Blaðsíða 5

Símablaðið - 01.01.1980, Blaðsíða 5
Ný reglugerð um Starfsmannaráð Póst- og símamála- stofnunarinnar Ágúst Geirsson. Hinn 27. mars 1979 skipaði samgöngu- málaráðuneytið nefnd til að endurskoða reglugerðina um starfsmannaráð Pósts og síma. í nefndina voru skipaðir Brynjólfur Ingólfsson, ráðuneytisstjóri, formaður, og tveir fulltrúar frá F.Í.S. Ágúst Geirsson og Bjarni Ólafsson, tveir frá P.F.Í. Björn Björnsson og Gylfi Gunnarsson, einn frá F.H.P.S. (Félagi háskólamennt'aðra póst- og símamanna), Gunnar Valdimarsson og tveir frá stofnuninni, Þorgeir Þorgeirsson og Kristján Helgason. Starfsmaður nefndarinn- ar var Halldór S. Kristjánsson, deildarstjóri í samgönguráðuney tinu. Tilgangurinn með þessari endurskoðun var fyrst og fremst að breyta reglugerðinni til samræmis við nýju lögin um stjórn og starfs- rækslu póst- og símamála og að taka afstöðu til óska F.H.P.S. um aðild að starfsmanna- ráði. Talsverður skoðanamunur kom fram í nefndinni og virtist ætla að verða erfitt að finna leiðir, sem meirihluti gæti skapast um. Þó fór svo að tillögur að nýrri reglugerð, sem formaður nefndarinnar lagði að lokum fram voru samþykktar af meirihluta nefndarinn- ar. Með tillögunum greiddu atkvæðiformað- ur, fulltrúar F.Í.S. og fulltrúar stofnunarinn- ar. Fulltrúar P.F.Í. sátu hjá en fulltrúi F.H.P.S. var á móti. Fulltrúar P.F.Í. gerðu þá grein fyrri af- stöðu sinni að þeir greiddu tillögunum ekki atkvæði vegna þess að breitingartillaga um að báðir fulltrúar félagsins í ráðinu fengju tull réttindi náði ekki fram að ganga. Hins- vegar myndu þeir ekki greiða atkvæði gegn tillögum formanns til að eyðileggja ekki þá samstöðu, sem náðst hafi um málið í heild. Fulltrúi F.H.P.S. tók fram að félagið hafi farið fram á fulla aðild að starfsmannaráði og það teldi útilokað að hlýta því, sem boðið væri uppá í tillögum formanns. Fulltrúar F.Í.S. óskuðu bókað að afstaða félagsins hafi komið skýrt fram í upphafi að hafna allri aðild F.H.P.S. að starfsmanna- ráði, en þar sem fallist hafi verið á veiga- miklar breytingar frá F.Í.S. gæti félagið fallist á til málamiðlunar þessa takmörkuðu aðild F.H.P.S. að starfsmannaráði stofnun- arinnar. Þann 27. des. s.l. undirrituðu Magnús H. Magnússon, samgönguráðherra og Brynjólf- ur Ingólfsson, ráðuneytisstjóri, nýja reglu- gerð um starfsmannaráð Póst- og símamála- stofnunarinnar í samræmi við tillögur meiri- hluta nefndarinnar. Helstu efnisbreytingar frá fyrri reglugerð sem var frá 8. okt. 1976 eru þessar: I. Fulltrúi frá Félagi háskólamenntaðra póst- og símamanna skal eiga sæti í starfsmanna- ráði þegar fjallað er um stöður, þar sem krafist er háskólamenntunar svo og á fundum i ráðinu sem póst og símamálastjóri boðar til skv. 2. mgr. 3. gr. (1. gr. C liður). II. Hlutverk starfsmannaráðs er aukið nokkuð, þar sem það á nú að fjalla um til SÍMABLAÐIÐ 3

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.