Símablaðið - 01.01.1980, Blaðsíða 33
Verðuröryggi sjómanna skert?
Að undanförnu hefur verið til umræðu
hugmyndir stofnunarinnar að leggja niður
næturvaktir á tveimur strandstöðvum, þ.e. á
Höfn í Hornafirði og í Vestmannaeyjum, og
fjarstýra í staðinn þjónustunni frá Gufunesi
þann tíma sólarhringsins.
Þessar hugmyndir hafa mætt mikilli and-
stöðu fjölmargra aðila. Framkvæmdastjóri
Slysavarnafélags íslands Hannes Hafstein
hefur varað við þessari breytingu og sagt að
það væri ekki sæmandi stjórnvöldum gagn-
vart öryggi sjómanna að láta slíkt koma til
framkvæmda. Myndi Slysavarnafélagiðmót-
mæla þessu ef til kæmi.
Þá hafa ýmsir aðilar i A-Skaftafellssýslu,
svo sem sýslumaður, sveitastjórnir, Björgun-
arfélag Hornafjarðar, Verkalýðsfélagið
Jökull og samtök sjómanna sent formlega
áskorun til stjórnvalda um að gera hér engar
breytingar á.
Segja þeir að lokun Hornafjarðarradíós að
næturlagi, myndi mjög draga úr öryggi og
þjónustu við báta og löggæslu, svo og torvelda
mörgum íbúum sýslunnar að ná til læknis.
Leiða þeir rök að því að þjónusta um
Gufunesradíó geti aldrei komið að fullu í stað
þjónustu á staðnum.
Einnig hafa starfsmenn loftskeytastöðv-
anna á Isafirði, Siglufirði, Neskaupstað,
Höfn og Vestmannaeyjum skrifað póst- og
símamálastjóra bréf þar sem þeir láta í ljós
álit sitt á þessu máli vegna ummæla hans í
Dagblaðinu nýlega um að „næturvaktirnar
falli undir óarðbæra starfsemi í rekstri stofn-
unarinnar.“ Benda þeir á að starfsemi
strandstöðvanna hafi ekki verið hugsuð sem
ágóðafyrirtæki, heldur öryggisþjónusta.
Telja þeir jafnframt að þessi ummæli póst-
og símamálastjóra standist ekki og aðstrand-
stöðvarnar standi undir sér. Flutning nætur-
þjónustunnar telja þeir mjög varhugaverðan
og mikla hættu á að það stórskaði öryggi
sjómanna.
Miklu geti munað að staðarkunnugir
menn séu á stöðvunum verði slys að nætur-
lagi, en ekki menn í allt öðrum landshluta.
Skora starfsmennirnir á stofnunina að
hætta strax við þær áætlanir að fjarstýra
næturþjónustunni.
Á fundi Félagsráðs F.Í.S. 30. janúar s.l.
var einróma samþykkt ályktun, þar sem lýst
var yfir andstöðu við hugmyndir stofnunar-
innar í þessu efni og minnt á að strandstöðv-
arnar gegni mikilvægu öryggishlutverki sem
ekki megi draga úr, og jafnframt skorað á
póst- og símamálastjóra að falla frá þessum
hugmyndum.
Daginn eftir Félagsráðsfundinn átti for-
maður og varaformaður F.Í.S. ásamt
fulltrúa starfsmanna strandstöðvanna fund
með póst- og símamálastjóra, afhentu
honum bréf starfsmannanna og ályktun Fé-
lagsráðs og skýrðu málið frá sínusjónarmiði.
Póst- og símamálastjóri skýrði málið frá
sjónarhóli stofnunarinnar og kvað þetta gert
í sparnaðarskyni og að ekki yrði um skerð-
ingu á þjónustunni vegna þessarar breyting-
ar. Aðspurður hafði hann þó engar tiltækar
tölur um hver sparnaðurinn yrði eða hvað
breytingin myndi kosta. Hann lofaði að at-
huga málið nánar og láta kanna betur ýmis
mótrök í málinu, sem fram komu á fundin-
um. Þá hét hann því að samráð yrði haft við
félagið og starfsmennina um frekari fram-
vindu málsins.
Á.G.
SÍMABLAÐIÐ