Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.01.1980, Blaðsíða 20

Símablaðið - 01.01.1980, Blaðsíða 20
verið tekið í notkun nýtt tölvustýrt skipti- kerfi fyrir skeyti í Gufunesi, sem bæði eykur allt öryggi og minnkar vinnuálag. Reiknað er með að þetta nýja kerfi sparist upp á rúmu ári í minnkuðum launagreiðslum og tækja- leigum, enda greiðast engin aðflutningsgjöld til ríkisins af því. Kostnaður kerfisins skiptist jafnt milli tækjabúnaðar og hugbúnaðar. Auk þessa kerfis rekur flugmálastjórn annað kerfi fyrir innanlandsflug. Allur tækjabúnaður nýju tölvukerfanna í Gufunesi er keyptur af innlendum innflytj- anda, sem samkvæmt samningi skal aðstoða stofnunina við viðhald kerfisins. Þessi inn- lendi aðili hefur gert samning við hinn erlenda framleiðanda hugbúnaðarins um viðhald hans. Áður en þetta síðara tölvukerfi var pantað, setti sami íslenski aðili upp minna tölvukerfi í Gufunesi og framleiddi hugbúnað fyrir það. Það kerfi er fyrir sam- böndin við flugvélarnar og auðveldar þá vinnu mikið. 2 Notendabúnaður 2.1 Venjulegt símatalfæri Eftir 2—3 ár verður liklega hætt að kaupa talfæri með valskífu og eingöngu keypt tal- færi fyrir takkaval. Um þessar mundir eru að koma á markaðinn bæði í Evrópu og Ameríku margar tegundir af talfærum með háþróaðri „electronic“ í stað núverandi inn- matar talfæranna. Þessi nýju talfæri eru í miklu betri gæðaflokki heldur en núverandi talfæri og þurfa þau miklu minna viðhald. Þeir takkasímar, sem keyptir verða hingað í náinni framtíð verða með tóngenerator fyrir 7 tóna í tveim flokkum, annar með 3 tóna, en hinn með 4 tóna. Sérhvert tákn eða tölustafur, sem sendur er samanstendur af tveim tónum, einum úr hverjum flokki og á þennan hátt er hægt að senda 3 x 4 = 12 mismunandi tákn með 12 tökkum. Til þess að hægt verði að nota þessi talfæri þarf að tengja móttakara fyrir tónvalið frá talfærunum við hvert einasta Register sjálf- virku símstöðvanna, en þau eru um 1000 talsins. Þessir tónamóttakarar eru nú þegar í séríuframleiðslu í Bandaríkjunum og víðar. Eftir breytinguna geta Register sjálfvirku 18 SÍMABLAÐIÐ símstöðvanna tekið á móti vali bæði frá venjulegum skifusímum og tónvalssímum og er því hægt að innfæra tónvalssímana smátt og smátt. í framtíðinni er reiknað með að fjölga valtónunum upp i 8 með 4 tónum í hverjum flokki og þar af leiðandi með 4x4 = 16 mismunandi táknum og 16 tökkum á talfærunum. Viðbótartakkarnir yrðu notaðir til þess að fá meiri þjónustu í framtíðinni frá PMS-símstöðvunum og frá ýmsum endabún- aðarkerfum, sem hægt yrði að hringja í. Þau talfæri, sem taka við af tónvalssímun- um verða líklega talfærin með innbyggðu A/D-breytingunni, sem minnst var á í kafl- anum um sjálfvirku símstöðvarnar. 2.2 Talfærakerfi Ýmis talfærakerfi, svo sem raðsímar fyrir mismunandi margar miðstöðvarlínur eru algeng hér á landi. Allt bendir til þess að framleiðsla þeirra kerfa, sem Póstur og sími hefur keypt hingað til sé að hætta og ýmist electronisk eða digital talfærakerfi séu að koma í staðinn. 2.3 Sjálfvirkar einkasímstöðvar PABX Á markaðnum í dag eru til bæði tölvustýrðar og electroniskar einkasímstöðvar og munu þær fljótlega yfirtaka þennan markað. 2.4 Fjarritar Electroniskir fjarritar fyrir telex komu á markaðinn frá mörgum fyrirtækjum fyrir 1—3 árum síðan. Nýlega komu einnig á markaðinn electroniskir fjarritar með ör- tölvu og minni og jafnvel með skjá. Með hugbúnaðarbreytingu er hægt að breyta ýmsu hjá þessum fjarritum, sem áður krafð- ist breytingar á hinni vélrænu uppbyggingu þeirra. Erfitt er að spá um framtíð telexkerfisins, en hingað til hefur það stækkað örara en flest önnur símkerfi. Gera má ráð fyrir því að data-kerfin, sem nú eru að koma upp út um allt dragi úr mikilvægi telexkerfisins og leysi það e.t.v. smátt og smátt af hólmi. Eitt þessara kerfa, sem nefnt er telex virðist vera sérstaklega áhugavert, en í byrjun a.m.k. á að vera hægt að senda á milli þess kerfis og telexkerfisins. Einnig eru ný myndsenditæki

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.