Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.01.1980, Blaðsíða 16

Símablaðið - 01.01.1980, Blaðsíða 16
Sigurður fæddist í Varmadal á Rangár- völlum 21. apríl 1895, sonur hjónanna Sig- ríðar Jónsdóttur úr Vestur-Landeyjum og Stefáns Filipussonar frá Varmadal. Kona hans var Guðfinna Sveinsdóttir frá ísafirði, sem lést 2. apríl 1975. Þau eignuðust 4 dætur og eru þær: Sigríður, gift Sigurði Ólafssyni verslunarmanni; Hulda, gift Gísla Jónssyni brunaeftirlitsmanni; Svava, gift Bjarna Guðmundssyni yfirumsjónarmanni og Þórunn, gift Kristjáni Hjartarsyni síma- manni. Á sínum unglingsárum vann Sigurður hjá Sigmundi á Brúsastöðum sem þá rak veit- inga- og gistihús í Valhöll á Þingvöllum og var hann þá oft hestamaður og fylgdarmaður með útlendingum og ferðamönnum um Þingvallasveit enda voru víst fáir sem þekktu það svæði eins vel. Til Reykjavíkur fluttist hann með móður sinni í von um arðbærari vinnu. Þegar suður kom vann hann ýmis störf til sjós og lands. Árið 1914 réðst Sigurður til Landssíma íslands og vann við línubyggingu og fleiri störf. Síðan hóf hann störf hjá Bæjarsíma Reykjavíkur og varð fljótt flokks- stjóri og síðan sem verkstjóri. Hann var skipaður línuverkstjóri hjá Bæjarsíma Reykjavíkur 1. janúar 1946. í starfi fylgdi honum ávallt góður starfskraftur og gekk honum vel að halda góðum mönnum því hann var stjórnsamur og vinur vina sinna. FRÉTTIR: Póst-og símatíðindi koma út eftir hlé sem varð á útgáfu þeirra til ’76. „Fréttahornið" í Simablaðinu hefur hlerað að senn komi Póst- og símatíðindi fyrir árið 1979 og eftirleiðis komi þau út ársfjórðungslega. Póst- og símatíðindi er merkilegt heimild- arrit um stofnunina og ber að fagna því að tíðindin koma nú út reglulega í framtíðinni. Póst- og símaskólinn skólaárið 1978—1979 29. 11 ’79 fór fram afhending prófskírteina í P & S skólanum. Við þá athöfn skýrði skóla- stjóri JónÁrmann Jakobsson frá því m.a. að námskeið fyrir stöðvarstjóra og fulltrúa þeirra hefðu verið haldin að undanförnu. Þátttakendur hefðu verið u.þ.b. 70. Alls hefðu verið 319 nemendur í 18 bekkj- um. Stundakennarar hefðu verið 58 og kennslustundir 5270. Prófskírteini voru afhent til 168 nema úr eftirtöldum starfs- greinum: Póstafgreiðslumenn I Póstafgreiðslumenn II Yfirpóstafgr.menn Línumenn Símsmiðir Símvirkjar Símvirkjameistarar Ennfremur kom fram í 40 póstafgreiðslumenn I 67 skírteini 20 skírteini 33 skírteini 19 skírteini 4 skírteini 13 skírteini 12 skírteini skýrslu J.A.J. að og 15 símritarar tækju þátt í bréfanámi P. & S. skólans. 14 SÍMABLAÐIÐ

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.