Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.01.1980, Blaðsíða 25

Símablaðið - 01.01.1980, Blaðsíða 25
taka þá skoðun mína, sem ég lét í ljós í síð- asta blaði, að leita beri til eldri starfsmanna Stofnunarinnar, sem kennsl kynnu að bera á þessa gömlu muni, og er mér ekki grunlaust um að Kristján Jónsson, fyrrverandi fulltrúi í Birgðadeild, hafi áður farið höndum um þá muni, sem ég sá þarna syðra. Eftir hugleiðingar mínar í siðasta blaði er það mér sannarlega mikið gleðiefni að geta skýrt frá jafn ánægjulegri þróun safnamála Stofnunarinnar og fram kemur hér að framan, og lofar það sem ég hef séð góðu um framhaldið. Dagblöðin hefðu áreiðanlega haft í fyrir- sögn það sem ég ætla að ljúka þessum frétta- pistli mínum á, en það er að mínu mati mark- verðasti hlutinn. Rúsínan í þessum pylsuenda er nefnilega sú, að hinn 31. desember s.l. setti póst- og símamálastjóri reglur um póst- og símaminjasafn, og eru þær birtar hér á eftir. Jafnframt skipaði hann í safnráð 2. janúar 1980 eftirtalda menn: Braga Kristj- Þorgeir K. Þorgeirsson. ánsson, forstjóra viðskiptadeildar, Kristján Helgason, umdæmisstjóra og Þorgeir K. Þorgeirsson, forstjóra umsýsludeildar, og er Þorgeir formaður ráðsins. Eins og lofað var í síðasta tölublaði, mun Símablaðið fylgjast með þróun þessara mála, og skýra frá henni í næstu tölublöðum. Reglur um Póst- og símasafn og Safnráð: 1. grein Stofnað skal sérstakt safn, Póst- og síma- minjasafn, á vegum Póst- og símamálastofn- unarinnar. Tilgangur þess er að varðveita sögulega muni og minjar tilheyrandi starf- semi stofnunarinnar. 2. grein Safninu stjórnar þriggja manna ráð, safnráð og skal það skipað af póst- og símamála- stjóra til þriggja ára í senn. Safnráð skal annast val og varðveislu muna og minja safnsins og hafa umsjón með rekstri þess. 3. grein Póst- og símamálastjóri setur nánari reglur um safnið að fengnum tillögum safnráðs. Reykjavík, 31. desember 1979. Jón Skúlason Fréttabréf F.Í.S. kom út í annað sinn á árinu í desember. Ákveðið hefur verið að Fréttabréfið komi reglulega út á þessu ári og skýri jafn óðum frá helstu fréttum varðandi félagsstarfsem- ina. Fréttabréfið er sent til trúnaðarmanna og á vinnustaði. Þeir sem hafa áhuga á að fá Fréttablaðið en fá það ekki nú hafi samband við skrifstofu F.Í.S. SÍMABLAÐIÐ 23

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.