Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.01.1980, Blaðsíða 23

Símablaðið - 01.01.1980, Blaðsíða 23
yrkinn að gefa merki og hætti það er haft samband við hann. Öll kerfin eru þannig að öryrkinn getur hvenær sem er kallað á hjálp. Ef hann t.d. fellur af klósettinu eru höfð bönd meðfram gólflistunum þar, sem gera viðvart sé tekið í þau. 2) Viðbótartæki, sem smellt er á hlust tal- færis og gerir fólki með heyrnartæki fært að nota síma. 4) Þrýstingur er frá heyrnarlausum og heyrn- arsködduðum um að sjónvarpað verði skrifuðum texta með öllum útsendingum. Hægt er að senda þennan texta þannig að hann komi aðeins fram á þeim sjónvarps- tækjum, sem hafa sérstakan viðtökubún- að fyrir hann. 5) Alls konar búnaður er væntanlegur á markaðinn fyrir hreyfihamlaða, svo sem statív fyrir heyrnartalfærið ásamt armi til þess að stjórna gaffalrofanum, hnappa- símar með stórum hnöppum, kerfi þar sem val fer fram með hljóðum eða blæstri o.s.frv. 6) Sérstakar bjöllur og ljósmerki fyrir hring- ingar fyrir heyrnardaufa. 7) Sjálfvirkir númerasendarar með geymslu •-■-■-■-■-■-■-■-■-"-"-"-■---■-■-■-"-"-■-■-■-■-“-■-c."-"-"-"-"-"-“-1 fyrir eitt eða fleiri símanúmer. Til þess að setja þessa númerasenda af stað þarf að- eins að loka einni snertu og er til ýmiss búnaður fyrir þá framkvæmd sérhannað- ur miðað við fötlun þess sem búnaðurinn er hjá. 2.12 Tölvukerfi Nú er verið að setja upp tölvukerfi fyrir símaskrárupplýsingaþjónustu Pósts og síma, sem veitt er við upphringingu í símanúmer 03. Hönnun hugbúnaðarins verður gerð af starfsmönnum Pósts og síma með aðstoð sérfræðings, sem starfar sjálfstætt. Eftir að þetta kerfi hefur verið tekið í notkun munu símaskrárbreytingarnar verða settar inn daglega. Þegar prenta þarf nýja símaskrá eru upplýsingarnar teknar yfir á segulband, sem síðar stýrir sjálfvirkri setningu símaskrárinn- ar. Þegar vinnu við þetta tölvukerfi er lokið, er líklegt að undirbúningur fyrir önnur tölvu- kerfi byrji. Sem dæmi um tölvukerfi, sem til greina gæti komið, er kerfi fyrir uppsetningu síma með allar upplýsingar um númer, bæj- arlínur, tækjalager, o.fl. Þ.J. SkrifstofaF.Í.S. Jóhann L. Sigurðsson. Nú í ársbyrjun urðu mannaskipti á skrif- stofu F.Í.S. Jóhann L. Sigurðsson, sem verið hefur starfsmaður félagsins frá 1974, lét af störfum og tók aftur við stöðu sinni á Fjar- skiptastöðinni í Gufunesi. Við störfum á skrifstofu félagsins tók Ragn- hildur Guðmundsdóttir. Ragnhildur hefur haft mikil afskipti af félagsmálum F.Í.S. að undanförnu. Formaður ísafjarðardeildar F.Í.S. hefur hún verið um árabil og á sæti í Félagsráði og framkvæmdastjórn F.I.S. Um leið og Símablaðið þakkar Jóhanni samstarfið á liðnum árum, býður það Ragn- hildi velkomna til starfa fyrir félagið og lætur í Ijós áframhaldandi góða samvinnu við starfsmann skrifstofu F.Í.S. Ragnhildur Guðmundsdóttir. SÍMABLAÐIÐ 21

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.