Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.01.1980, Blaðsíða 27

Símablaðið - 01.01.1980, Blaðsíða 27
vinnuaðstaða og svo er einnig á flestum sim- stöðvum í Danmörku. — Hversu margt fólk vinnur við Rigstele- fonen? — Við Talsímann vinna um 90 manns, þar af 5 karlmenn og ríkir þarna jafnrétti, sama vinna, sama kaup. Á Ritsímanum vinna 15 konur, auk eins varðstjóra á hvorri vakt. — Hvað getur þú sagt okkur um vinnu- skilyrði að öðru leyti? — Það er 40 stunda vinnuvika, en vaktirn- ar eru mjög breytilegar, eða 5—7 klst. vaktir frá kl. 6 á morgnana til kl. 24 á kvöldin. Næturvakt hefst kl. 23 og eru tveir á vakt að vetrinum, en einn að sumrinu. Fjölmennast er milli kl. 9—16. Frí er aðra hvorahelgi. Það er mjög auðvelt að fá vaktaskipti og semur fólkið um það sín á milli. Hafa varðstjórar engin afskipti af því. Á hverri vakt er matar- hlé í 1 /2 klst. og 15 mín. kaffihlé. Mjög góð kaffistofa og mötuneyti er á staðnum. Bannað er að reykja á vinnustað, en leyfilegt í kaffistofu. Handavinna er leyfð við vinnu eftir kl. 18 og um helgar. — Hvernig eru launakjörin? — Byrjendur eru á tímakaupi fyrsta árið, eða þar til þeir eru skipaðir. Veturinn 1978 voru launin um það bil 6000 kr. danskar á mánuði (um það bil 400.000 kr. ísl.). — Hvernig er fræðslustarfi varið innan Rigstelefonen? — Eftir 5 ára starf við Talsímann, er fólki gefinn kostur á að taka þátt í 17 vikna nám- skeiði, bóklegu og verklegu, og veitir það möguleika á að fá vinnu við Ritsímann. Að öðru leyti er engin fræðsla á vegum Rigstele- fonen, en aftur á móti er fræðslustarf á vegum stéttarfélaga. —Er mikil samheldni meðal starfsfólksins, sameiginlegar skemmtanir og ferðalög? — Ekki er hægt að segja það. Starfsfólkið er mjög þægilegt og vingjarnlegt, en sam- gangur utan vinnunnar þekkist ekki. Engar skemmtanir eru haldnar, en á hverjum jólum hefir starfsfólkið sameiginlegan jólamorgun- verð — julefrokost —, eins og gert er á flest- um vinnustöðum í Danmörku. Það er mjög góður vinnuandi þarna og þótti mér það einna jákvæðast við starfið. Ég var eini Kristjana H. Guðmundsd. útlendingurinn og voru allir mér einstaklega vingjarnlegir. Hefði ég ekkert á móti því að starfa þar einhverntíma síðar. Oktavía er nú farin til Árósa á ný. Starfið hjá Rigstelefonen stendur henni opið þegar hún vill, en nú í vetur stundar hún nám í félagsráðgjöf við Den Sociale Hojskole í Árósum. Við óskum henni og fjölskyldu hennar alls góðs í framtíðinni og þökkum fyrir spjallið. KHG Sumarhús í Danmörku Sumarhús verða leigð út í Danmörku í sumar fyrir félagsmenn F.Í.S. á sama hátt og undanfarin sumur. Allar nánari upplýsingar á skrifstofu F.Í.S. Umsóknir þurfa að hafa borist fyrir 1. mars. SIMABLAÐIÐ 25

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.