Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.01.1980, Blaðsíða 10

Símablaðið - 01.01.1980, Blaðsíða 10
Til hvers eigum við að nota tölvurnar? Tölva vinur eða óvinur? Margt hefur gerst síðan 1925 að fyrsta sjálfvirka analogvélin lagði grunninn að nú- tíma TÖLVUM. Það er fyrst núna á síðari árum að afleiðingarnar af tölvuvæðingunni (dataseringunni) eru að koma fram. Til að byrja með verður að taka fram að allar tölvur stórar sem smáar væru ekki annað en vélrænt hjálpartæki „tómar eins og poki ef við setjum ekkert í hann“. Tölvu- vinnslu má skýra á eftirfarandi hátt.: Til þess að eitthvað gerist þurfum við INNTAK (INDATA) t.d. nafnnúmer, launa- flokk eða skónúmer. Þannig má meta margt til upplýsinga. Tölvan er síðan mötuð með upplýsingum. Þegar tölvan hefur verið mötuð á miklum upplýsingum er hægt að ákveða hvernig þessar tölvuupplýsingar eru notaðar. Það sem ákvarðar til hvers upplýsingar skulu notaðar kallast FORRIT (PROGRAM). Með því að hafa VINNSLU- MINNI getur tölvan geymt upplýsingar til síðari notkunar. Nú vinnur tölvan eftir gefn- um upplýsingum ákveðið verkefni. Niður- staðan af þessu sem getur t.d. verið að fá fram laun með tilliti til starfsaldurs, kallast ÚTTAK (UDATA). Við verkefnisákvörðun er ákveðið á hvern hátt niðurstaðan kemur fram: í grafi, töflum, stöplum o.s.frv. Það er að sjálfsögðu hægt að nota tölvu fyrir tæknilegar áætlanir. Þá er hægt að gefa upplýsingar sem gefa mismunandi niðurstöð- ur m.a. jafnvel gefa upplýsingar sem gefa þá niðurstöðu sem óskað er t.d. til þess að áætla. Mest er talað um tölvur í sambandi við stjórnunarlega notkun eða hjálpartæki og það er á þann hátt sem við komumst mest í kynni við tölvurnar og áhrif þeirra hjá Sím- anum (TELEVERKET). Samdráttur starfa um 40—60% á næstu 15 til 20 árum í fljótu bragði virðist tölvuvæðingin eins og lýst er hér að framan hafa álíka hættulaus áhrif og rafmagnsritvél á skrifstofu. Samt sem áður hafa útreikningar Sænsku hagstofunnar sýnt að sennilega hverfa 60.000 til 90.000 starfsheiti algjörlega eða eru ekki orðið að neinu með tölvunotkun en stöður sem bætast við yrðu þá 30.000. það að nota tölvur sýnir að 40—60% af núverandi störfum hverfa á næstu 15 til 20 árum. Áframhaldandi tölvuvæðing kemur sennilega til með að hafa í för með sér að fleiri og fleiri skrifstofur verða búnar full- komnustu rafeindatækni. Öll þessi tækni verður ódýrari og ódýrari og einnig einfaldari i útliti og notkun. Síminn (TELEVERKET) hefur í nokkurn tíma haft 8 SÍMABLAÐIÐ

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.