Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.01.1980, Blaðsíða 15

Símablaðið - 01.01.1980, Blaðsíða 15
Högni Eyjólfsson. Högni Eyjólfsson var fæddur í Reykjavík 19. júní 1905, og voru foreldrar hans hjónin Eyjólfur Friðriksson og Helga Guðmunds- dóttir. Hann lærði rafvirkjun hjá Halldóri Guðmyndssyni raffræðing, og vann síðan um nokkurt skeið hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur og Johan Rönning. Kynni okkar Högna hófust árið 1932, er hann ásamt fleiri rafvirkjum réðst til Bæjar- síma Reykjavíkur til að vinna við lagnir í húsum. Var það ár unnið að uppsetningu Sjálfvirkrar stöðva í Reykjavík, og því talið nauðsynlegt að vanda til allra lagna innan- húss. Stöðin tók til starfa í árslok. Af þessum mönnum ílengdist Högni einn hjá Bæjarsím- anum, og vann þar síðan sleitulaust til 1970. Ég á margar minningar um Högna frá þeim árum, er við unnum saman, og held ég, að aldrei hafi fallið skuggi á. Hann var sér- staklega kurteis og alúðlegur í framkomu, þrátt fyrir erfiða sjúkdóma síðustu árin hélt hann ávalt glaðværð sinni. í félagsmálum var Högni góður liðsmaður. Þegar F.Í.S. var úthlutað lands- spildu í Heiðmörk til trjáræktar, átti Högni ófáar ferðir þangað og hvatti aðra óspart. Sumarbústaðaland, sem þau hjón áttu fyrr á árum í Fossvogi, ber þess órækt vitni, að Högni unni öllum gróðri, — gaf þar að líta sömu snyrtimennsku og á heimili þeirra í Barmahlíð 25. Kona Högna var Sigríður Einarsdóttir, ættuð úr Austur-Skaftafellssýslu. Höfðu þau verið í hjónabandi í nær hálfa öld. Þeim var tveggja barna auðið, og eru þau Eyjólfur, deildarstjóri við Símstöðina í Reykjavík og Guðrún Helga, húsmóðir hér í bæ. Ég vil að lokum flytja ekkju hans og börn- um innilega samúðarkveðju. Minning geymi góðan dreng. Kristján Jónsson. Sigurður Stefánsson. Sigurður Stefánsson lést á Borgarspítalan- um 14. þ.m. eftir þrálát veikindi. SÍMABLAÐIÐ 13

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.