Símablaðið - 01.01.1980, Blaðsíða 8
Myndin er tekin á 100. fundi Starfsmannaráðs Pósts og síma, sem tók við af
Starfsmannaráði Landssímans árið 1976. F.V.: Björn Björnsson, Gylfi Gunn-
arsson, Bjarni Olafsson, Ágúst Geirsson, ritari ráðsins, Bragi Kristjánsson,
formaður ráðsins, Sigurður Þorkelsson, Kristján Helgason, Páll V. Daníels-
son og Þorgeir K. Þorgeirsson.
4. gr.
Starfsmannaráð er ráðgefandi um þau
mál, sem það tekur til meðferðar og gerir
skriflegar tillögur eða umsögn um þau til
Póst- og símamálastjóra. Ráðið getur kallað
starfsmenn Póst- og símamálastofnunar á
sinn fund til að fá upplýsingar um mál. Ef
um er að ræða mál, sem snerta störf
umdæma, sem ekki eiga fulltrúa í starfs-
mannaráði, skal leitað álits viðkomandi um-
dæmisstjóra.
Áður en starfsmannaráð tekur afstöðu til
stöðuveitinga, skal að jafnaði leitað álits
næsta yfirmanns þeirrar stöðu, sem um er að
ræða.
6 SÍMABLAÐIÐ
(Mynd: Jón Svavarsson).
5.gr.
Umræður á fundum ráðsins, er varða ein-
staka menn persónulega, skulu vera trúnað-
armál.
Reglur þessar eru hér með settar sam-
kvæmt 10 gr. laga nr. 36/1977, um stjórn og
starfsrækslu póst- og símamála til að öðlast
þegar gildi og birtast til eftirbreytni öllum
þeim, sem hlut eiga að máli.
Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr.
365/1976.
Samgönguráðuneytið, 27. desember 1979.
Magnús H. Magnússon
Brynjólfur Ingólfsson