Símablaðið - 01.01.1980, Page 13
Færið öllum félögum í F./.S. okkar inni-
legustu þakkir fyrir hugulsemi og stuðning
meðan á þessum erfiða tíma stóð.
Félagsandi og samhyggð ykkar mun aldrei
gleymast.
Með bestu óskum,
ykkar einlægur
Terry Quinlan,
framkvæmdastj óri.
Eins og sjá má af bréfinu hefur þrautseigja
og samstaða írskra starfsbræðra okkarskilað
góðum árangri. Ég óska þeim til hamingju
með þann árangur og það er ánægjulegt til
þess að vita að stuðningur F.Í.S. og annarra
félaga innan PTTI hefur hjálpað þar til. Það
sýnir okkur áþreifanlega þýðingu þess
erlenda samstarfs, sem við erum aðilar að og
þann bakhjarl, sem við eigum í þessu sam-
starfi, ef á þarf að halda.
Á.G.
Frá heimsókn:
Guðbjörn Sumarliðason og Birgir ísleifur Gunnarsson.
(Mynd: Ólafur Sigurðsson).
Það hefur mjög færst í aukana, að fram-
bjóðendur stjórnmálaflokkanna heimsæki
vinnustaði fyrir alþingiskosningar og tali þar
máli sínu og svari fyrirspurnum.
Sjálfsagt eru skiptar skoðanir um gildi
slíkra heimsókna, en allavega má telja það
jákvætt að stjórnmálamenn kynni sér hina
margvíslegu vinnustaði í þjóðfélaginu, en þá
ekki bara eingöngu fyrir kosningar.
iviynuin hér að ofan er tekin fyrir síðustu
alþingiskosningar þegar Birgir ísleifur Gunn-
arsson heimsótti húsakynni Pósts og síma að
Sölvhólsgötu 11. Á myndinni með Birgi er
Guðbjörn Sumarliðason, verkstjóri í Skipa-
tækjadeild Símstöðvarinnar í Reykjavík.
H.H.
11
SIMABLAÐIÐ