Símablaðið - 01.01.1980, Qupperneq 28
15. Evrópuþing
PTTI
Dagana 18. til 21. sept. 79 var haldið 15.
Evrópuþing póst- og símamanna (PTTI) í
Stokkhólmi í húsi alþýðusambandsins.
Þingfulltrúar voru um 170 frá 21 landi auk
um 40 aðstoðarmanna og ráðgjafa sendi-
nefnda.
Aðalverkefni þingsins var að ræða afleið-
ingar tölvuvæðingarinnar og viðbrögð í því
sambandi.
Eins og fram kemur í samþykktum hér á
eftir er höfuðvandinn það atvinnuleysi er
tölvunotkun getur valdið. Því var mikið um
það rætt á þinginu hvernig bæri að mæta
þeim vanda.
Spurningin var þessi:
A tölvan að vinna í þágu mannsins eða á
maðurinn að verða þræll tölvunnar?
Svarið við spurningunni var:
Aukin tölvuvæðing á að ieiða til styttri
vinnutíma, lengra orlofs og styttri starfs-
aldurs. Þannig á vélin að vinna fyrir mann-
inn en til þess að svo megi verða þarf maður-
inn að ráða yfir eignarhaldi á tækinu en ekki
fjölþjóðarhringar eða einkaaðilar.
Það var athyglisvert að margir háttsettir
embættismenn Stokkhólmsborgar þ.á.m.
póstmeistarinn Ove Rainer voru við setningu
þingsins og einmitt þeir mæltu hvað þyngst
orð um það að með sameign á tölvubúnaði
gæti fólk litið björtum augum til framtíðar-
innar, annars ekki. „Við tökum við tölvu-
tækni og virkjum hana í þágu fólksins til
áhrifa og betra lífs.“
Hér á eftir eru birtar ályktanir 15. Evrópu-
þingsins. Lestur þeirra skýrir best hvað fram
fór á þinginu.
26 SÍMABLAÐIÐ
15. Evrópuþing PTTI sem kom saman
í Stokkhólmi 18.—21. sept. ’79,
tekur þau meginatriði sem ákveðin voru
undir viðvíkjandi styttingu vinnutíma í
almennri samþykkt þirðja þings
evrópska fagsambandsins,
krefst að stytting vinnutíma sé þáttur í
þess að bæta félags lega aðstöðu starfs-
manna og minnka atvinnuleysið,
Undir- að núverandi efnahagsástand í
strikar Evrópu hefur orsakað aukið at-
vinnnuleysi í ákveðnum löndum
í Evrópu; og endurskipulagning,
vélvæðing og sjálfvirkni sem fram-
kvæmd er í auknum mæli í við-
komandi löndum eykur enn á at-
vinnuleysið;
að framleiðsluaukning sem ofan-
greindar aðgerðir hafa í för með
sér á líka að koma starfsfólki PTT
til góða m.a. í formi styttingu á
vinnutíma.
15. Evrópuþingið
staðfest- að grundvallarregla um hæst 35
ir því tíma vinnuviku fyrir allt starfsfólk
PTT í Evrópu sé það takmark sem
hafi algeran forgang.
Álítur að öll vinnuhlé eins og t.d. eru
veitt vegna einhliða vinnu, tafir
vegna umferðar, dag- eða vakta-
vinnu og flutningur frá aðalbæki-
stöð til eiginlegs vinnustaðar, allt