Símablaðið - 01.01.1980, Qupperneq 30
Álítur að öll takmörkun á einkasölu PTT
auki erfiðleika þess að ná þessu
takmarki.
Skorar á aðildarfélögin að verjast þessum
árásum á einkarétt PTT og þerjast
gegn öllum tilraunum til þess að
vekja hann og
hvetur félögin til þess að taka virkan þátt
í vörn og baráttu fyrir viðhaldi
þessa opinberu ríkisfyrirtækjum
bæði innanlands sem alþjóðlega
m.a. með því að nota aðildina að
Trésmíðaverkstæði Pósts og síma
F.v.
Guðmundur Eyjólfs-
son, Árni Heiðar
Árnason, Guðmund-
ur Samúelsson,
Halldór Stefánsson
og Ingi Björgvin
Guðjónsson.
Meðfylgjandi mynd var tekin á símstöð-
inni á ísafirði síðastliðið sumar, þegar starfs-
menn Trésmíðaverkstæðis Pósts og síma,
undir stjórn Halldórs Stefánssonar, voru að
leggja síðustu hönd á þær miklu endurbætur
sem gerðar voru á húsakynnum stöðvarinn-
ar.
Húsakynnin þar hafa tekið algjörum
stakkaskiptum við þessar breytingar og hefur
verkið verið unnið af mikilli vandvirkni og
smekkvísi. Þessara endurbóta mun bæði
starfsfólk og viðskiptavinir njóta góðs af,
því staðreyndin er sú, að án hentugs og góðs
húsnæðis er afar erfitt að veita góða þjón-
ustu.
Þetta hafa forráðamenn Stofnunarinnar
gert sér grein fyrir, því að fyrir utan hinar
fjölmörgu nýbyggingar fyrir póst- og síma-
þjónustu, þá hefur á hverri símstöðinni á
fætur annarri um land allt, verið gerðar
margvíslegar endurbætur á húsakynnum
þeirra.
Flestar þessar endurbætur hafa verið unn-
ar af Halldóri Stefánssyni og mönnum hans.
H.H.
28
SÍMABLAÐIÐ