Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2006, Side 16
16 FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2006
Fréttir DV
Hljjóp og hljóp
Vinningshafi ofurmara-
þons í Vín í Austurríki hélt
áfram að hlaupa eftir að
hafa komið fyrst í mark á
nýársdag. Hún hvarf fljót-
lega sjónum aðstandenda
hlaupsins sem ætluðu að
heiðra hana með veglegum
verðlaunum. Furðulegt
háttarlag vinningshafans
kom aðstandendunum í
opna skjöldu, en fljótt kom
í ljós að konan hafði hringt
í vinnuna sína og sagst vera
veik til að geta tekið þátt í
hlaupinu. Af ótta við að
missa vinnuna hljóp hún
því áfram, ffamhjá mynda-
vélum og vinningnum.
Sjeik lést í
Astralíu
Forsætisráðherra og
varaforseti Sameinuðu ar-
abísku fursta-
dæmanna, sjeik
Maktoum bin Ras-
hid al-Maktoum,
lést árla dags í gær
íÁstralíu. Hann
var hálfsjötugur
að aldri og hafði þjáðst af
hjartakvillum um árabil.
Hann hafði alltaf haldið sig
til hlés á fjölmiðavettvangi,
meðal annars til að gefa
yngri bróður sínum tæki-
færi á að stjórna hinu dag-
lega lífi í landinu. Ákveðið
hefur verið að heiðra minn-
ingu hans með 40 daga
sorgartímabili meðal þjóð-
arinnar.
Úr gleðií sorg
Eftir að fregnir spurðust
út í gær um að námuverka-
mennirnir 13 sem lokuðust
inni í námugöngum í Vest-
ur-Virginíu væru á lífi brut-
ust út mikil fagnaðarlæti
meðal ættingja og björgun-
armanna. Gleðin varð þó
skammvinn þar sem um
leiðinlegan misskilning var
að ræða. Einungis einn
námuverkamaður fannst á
h'fi og liggur nú þungt hald-
inn á sjúkrahúsi.
Á nýársdag varð gestum sem voru á leið í veislu til rokkarans Bryans Harvey og
Qölskyldu illilega brugðið. í staðinn fyrir veislugleði og Qölskyldumatarboð blasti
við gestunum lögregluteip og sírenur lögreglu- og slökkviliðsbíla. Fjölskyldan hafði
verið bundin, kefluð og skorin á háls.
Annar helmingur hljómsveitarinnar House of Freaks, Bryan
Harvey, fannst látinn í kjallara heimilis síns ásamt fjölskyldu
sinni, eiginkonu og tveimur ungum dætrum í Richmount í
Vancouver í Bandaríkjunum. Þau höfðu verið myrt, skorin á
háls. Það var hinn helmingur hljómsveitarinnar, Johnny Hott,
sem tilkynnti lögreglunni um að ekki væri allt með felldu.
Óhugnanleg sjón blasti við
Johnny Hott, öðrnrn meðlimi hljóm-
sveitarinnar House of Freaks, jaðar-
hljómsveitar sem var vinsæl á
níunda áratugnum, á nýársdag.
Hann var ásamt ungri dóttur sinni á
leiðinni í árlega nýársveislu til
Bryans Harvey, félaga sins úr hljóm-
sveitinni.
Líkin geymd í kjailaranum
Þegar Johnny fékk engin svör og
varð var við að reyk lagði frá húsinu
var honum illa brugðið og hringdi á
lögregluna. Slökkviliðsmenn sem
kvaddir voru á staðinn gengu fram á
lík allrar fjölskyldunnar í kjallara
hússins; Bryans, eiginkonu hans
Katherine og dætra þeirra, Stellu níu
ára og Ruby fjögurra ára. Fjölskyldan
hafði verið bundin, kefluð og skorin
á háls. Morðinginn hafði svo ætlað
að kveikja í húsinu og afmá þar með
sönnunargögn.
Getgátur aðstandenda
Á bloggsíðum fólks sem kannað-
ist við hjónin hans hafa þegar komið
fram getgátur um ástæðurnar fyrir
þessum hrottalegu morðltm. Á einni
af bloggsíðunum er því haldið fram
að. þau hjónin hafi nýlega verið að
reyna að hjálpa ættingja að losna við
fíloiiefnavandamál og -skuldir og
líkur leiddar að því að morðin tengist
eiturlyfjumá einhvem hátt.
Nágranninn hitti eiginkonuna
Haft var eftir nágranna sem sá
húsmóðurina, Katherine, síðast á lífi
um tíuleytið á nýársmorgun að hún
hafi verið mjög föl og virkað mjög
hikandi þegar hún tók á móti eldri
dóttur sinni þegar henni var skutlað
heim eftir að hafa gist hjá vinkonu
sinni um nóttina. Sumir telja að
óhugnaðurinn hafi þegar verið
hafinn sem myndi útskýra af hverju
Katherine hafi verið svona föl og úr
jafnvægi.
Lögreglan í Richmont, heimabæ
fjölskyldunnar, sem nú rannsakar
málið segir að ekki hafi fundist merki
um innbrot en rannsókn málsins sé
á byijunarstigi.
rap@dv.is
Hljómsveitin House of Freaks
Johnny Hott er til vinstri og Bryan
i Harvey heitinn til hægri. Myndin
er tekin á níunda áratugnum.
Victory böð
með eða án nudds í úrvali
Fosshálsi 1
110 Reykjavík simi 525-0800
www.baðheimar.is
Margra ára bandarískri rannsókn lokiö
Atkins-kúrinn virkar ekki
á konur
Víðtæk bandarísk rannsókn hefur
leitt í ljós að Atkins-kúrinn víðfrægi
virkar ekki á konur. Atkins-kúrinn
felst í því að fólk sem er á honum
sleppir því að borða kolvetnaríkan
mat eins og brauð, pasta, hrísgrjón og
kartöflur en borðar þess í
,, stað kolvetnissnauðan
mat eins og kjöt,
rjóma, beikon og egg.
«Fylgismenn Atk-
ins-kúrsins hafa oft
haldið því fram að
fitusnautt og kolvetna-
ríkt fæði auki þyngd
fólks og leiði
Ásmund Stefánsson
Rlkissdttasemjari boð-
aði Atkins-fagnaðarer-
indið hér á landi.
ekki til megr-
unar.
Rannsókn-
in var gerð á 49
Dr. Robert Atkins Boðaði umdeildmegr-
unarfræöi. Sumir segja aö megrunin hafi
farið með hann I gröfma.
þúsund Bandaríkjamönnum á nokk-
urra ára tímabili, frá árinu 1993 til
1998 auk þess sem fylgst var með
konunum allt til í ágúst 2004.
Rannsóknin fór þannig ffarn að
annar hópurinn neytti matar með
eðlilegu fituinnihaldi meðan hinn
hópurinn minnkaði við sig af fituríku
fæði og jók neyslu á grænmeti, ávexti
og komi.
í báðum hópum var þyngdartap
mest hjá þeim konum sem minnkuðu
við sig fitu og kolvetnasnautt fæði.